Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 6
Mikið tjón þegar eldur
kviknaði í vélsmiðju
segir að slökkviliðsmenn séu að ljúka
störfum á vettvangi og afhenda lög-
reglu vettvanginn. Um 30 slökkvi-
liðsmenn tóku þátt í aðgerðunum í
nótt, af öllum slökkviliðsstöðvum
höfuðborgarsvæðisins auk fólks á
frívakt. Unnið var við það fram á
morgun að slökkva í síðustu glæðum
og hreinsa upp vatn í húsnæðinu til
þess að bjarga verðmætum.
línis en það er töluverð lykt og það,
fyrir fyrirtæki sem framleiðir mat-
væli og er með lager, getur verið
mjög slæmt,“ sagði Pétur við mbl.is í
gærmorgun en síðar kom í ljós að
lagerinn bjargaðist.
Tugir slökkviliðsmanna
Sigurjón Hendriksson, varðstjóri í
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins,
Kári Pálsson, framkvæmdastjóri
vélsmiðjunnar Hamars, segir útlitið
hræðilegt í húsnæði vélsmiðjunnar í
Vesturröst 36 í Kópavogi en mikill
eldur kviknaði í húsinu í fyrrinótt.
„Hjartað er brunnið hjá okkur,“
sagði hann þegar blaðamaður mbl.is
náði í hann á vettvangi.
Tilkynnt var um eldsvoðann um
kl. 3:30 í fyrrinótt og þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang stóðu eldtungur
út úr gluggum og þaki. Grunur leik-
ur á að eldurinn hafi kviknað út frá
vél í húsnæði vélsmiðjunnar en
versti bruninn varð í kringum vélina.
Freyja brann ekki
Auk vélsmiðjunnar er sælgætis-
gerðin Freyja með lager og skrif-
stofu í húsinu, sem er um 3 þúsund
fermetrar að stærð en verksmiðjan
sjálf er við Kársnesbraut.
Pétur Thor Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Freyju, segir að hann
hafi verið kominn á vettvang um
fjögurleytið.
„Við fengum að fara inn um
klukkutíma síðar með slökkviliðs-
mönnum en það brann ekkert hjá
okkur. Engar reykskemmdir bein-
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tjón Slökkviliðsmenn að störfum við Vesturvör 36 í gærmorgun.
Vélsmiðjan mikið skemmd en lager sælgætisgerðar slapp
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Ný áætlun Uppbyggingarsjóðs EES
um endurnýjanlega orku, umhverfis-
og loftslagsmál í Póllandi
Opnunarráðstefna og samstarfsfundir
3. og 25. mars í Varsjá
Opnunarráðstefna 3. mars í Varsjá
Michał Kurtyka - ráðherra loftslagsmála í Póllandi
Małgorzata J. Jedynak - ráðherra þróunarsjóðs og byggðamála í Póllandi
Lilja Alfreðsdóttir - menntamálaráðherra frá Íslandi,
Olav Myklebust - sendiherra Noregs í Póllandi
Samstarfsfundur um umhverfis- og loftslagsmál 3. mars í Varsjá
milli fyrirtækja frá Póllandi, Íslandi og Noregi
Samstarfsfundur um endurnýjanlega orku, hitaveitur og
vatnsafl 25. mars milli fyrirtækja frá Póllandi, Íslandi og Noregi
Áætlunin um endurnýjanlega orku, umhverfis- og loftslagsmál í
Póllandi, er sú stærsta sem Ísland tekur þátt í á
alþjóðavettvangi er varðar baráttu við loftslagsmál.
Mikil tækifæri eru fyrir fyrirtæki frá Íslandi
í þessum málaflokkum og fundirnir
því mikilvæg byrjun.
Frekari upplýsingar og
skráning má sjá á os.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessi ungi maður þarf að komast
yfir mikið áfall. Hann þarf auk þess
að horfa upp á það að allir vita hvað
gerðist. Við búum við nýjan veru-
leika sem snýr að
því að ofbeldið er
tekið upp,“ segir
Inga Dóra Sigfús-
dóttir, prófessor
við sálfræðideild
Háskólans í
Reykjavík.
Óhætt er að
segja að margir
hafi verið slegnir
óhug eftir að
myndband af lík-
amsárás hóps unglingspilt á fjórtán
ára pilt var birt í fréttum RÚV á
fimmtudagskvöld. Myndbandið hafði
verið í dreifingu á samfélagsmiðlum
en líkamsárásin átti sér stað við bið-
stöð Strætó í Hamraborg í Kópavogi
á mánudaginn í síðustu viku.
Á myndbandinu sést hvernig árás-
armennirnir spörkuðu í drenginn og
slógu hann. Fjölmargir voru við-
staddir en enginn virðist hafa skakk-
að leikinn. Faðir drengsins hefur
upplýst að hann sé enn að jafna sig
eftir árásina og glími við höfuðverk
og uppköst. Hann kveðst telja mögu-
legt að andúð á útlendingum liggi að
baki árásinni en drengurinn er af er-
lendum uppruna. Í fyrra réðst hópur
ungmenna á sama dreng í Grafar-
vogi.
Tilkynnt var í gær að lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu rannsaki nú
árásina. Í tilkynningu segi að lög-
regla telji sig hafa nokkuð skýra
mynd af atburðarásinni en vitni eða
aðrir sem búa yfir vitneskju eru
beðnir að hafa samband í gegnum
einkaskilaboð á Facebook-síðu lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Málið er unnið með aðkomu barna-
verndaryfirvalda.
Ofbeldið hefur harðnað
Inga Dóra segir að þarna sé um að
ræða eitt einstakt hræðilegt atvik.
Almennt séð hafi dregið úr ofbeldi
og einelti meðal unglinga. „Það hef-
ur dregið verulega úr vímuefna-
neyslu og samhliða því hefur dregið
úr annars konar frávikshegðun. Það
sem ég hef haft áhyggjur af er að
formið á ofbeldinu hafi breyst. Þessi
tilvik sem við erum að sjá eru alvar-
legri en áður. Þá voru ákveðnar leik-
reglur um slagsmál og einn barðist
við einn. Ofbeldið hefur harðnað og
nú ráðast margir á einn.“
„Má ekki viðgangast“
Hún segir sömuleiðis áhyggjuefni
ef rétt reynist að árásin tengist af-
stöðu til innflytjenda. „Það er alvar-
legt og þarf að skoða sérstaklega.“
Aðspurð segir Inga Dóra erfitt að
segja til um hvernig jarðvegur
myndist fyrir hegðun sem þessa hér
á landi. „Það þarf að rýna sérstak-
lega í það en ég vona að þetta sé ein-
stakt tilvik. Eflaust veit fólkið í nær-
umhverfinu hvað er í gangi. En
svona má ekki viðgangast og á ekki
að þurfa að gerast. Krakkarnir okk-
ar eiga bara að vera sáttir í sínu.“
Inga Dóra lýsir sömuleiðis
áhyggjum af afskiptaleysi fólks á
vettvangi í Hamraborg. „Það voru
ýmis vitni sem ekki gripu inn í. Því
miður er það þannig að vitni grípa
ógjarnan inn í við svona aðstæður.
Við verðum að passa að láta það
aldrei viðgangast.“
„Það virðist vera eins og þarna sé
einhver slagsmálamenning og það er
alvarlegt áhyggjuefni,“ segir Guð-
rún Svava Baldursdóttir, forstöðu-
maður félagsmiðstöðvarinnar Þebu í
Smáraskóla í Kópavogi. Tíu fé-
lagsmiðstöðvar eru í bænum.
Hún segir að skelfilegt hafi verið
að sjá myndbandið af árásinni. Guð-
rún, eða Dúna eins og hún er kölluð,
hafði rætt atvikið við kollega sína en
ekkert þeirra hafði nánari upplýs-
ingar um það. Dúna segir að í gegn-
um tíðina hafi komið upp atvik þar
sem hópar hafi mælt sér mót til að
slást en minna hafi verið um árásir
sem þessa.
Nýtt að ofbeldið fari á netið
„Við höfum ekki orðið mikið vör
við að verið sé að taka einn út þótt
það þekkist auðvitað líka. Það er
hins vegar nýtt að verið sé að taka
þetta upp og setja á samfélags-
miðla.“
Guðrún segir að starfsmenn frá
félagsmiðstöðvunum í Kópavogi séu
alltaf með svokallaða útivakt. Þá
keyra þeir um bæinn og fylgjast með
hópamyndunum, aðallega með tilliti
til útivistartíma ungmenna. „En ef
við hefðum séð þetta þá hefðum við
auðvitað hoppað inn í og reynt að
stoppa árásina. Við hringjum alltaf á
lögregluna.“
Hún kveðst telja að árásin í
Hamraborg sé frekar einstakt tilvik
heldur en merki um þróun í ákveðna
átt. „Mín tilfinning er að það séu
ekki stórir hópar í hverjum skóla eða
hverjum árgangi sem stunda þetta.
En það eru hins vegar alltaf svartir
sauðir inn á milli.“
Viðkvæmur hópur
sem þarf að hlúa að
Sturlaugur Sturlaugsson, for-
stöðumaður Fjölsmiðjunnar, kveðst
ekki þekkja til umræddrar árásar og
segist ekki hafa orðið var við ofbeld-
ishneigða einstaklinga í starfi sínu.
Þar sé hins vegar nokkuð um ein-
staklinga af erlendum uppruna og
upplýsingar um að ráðist sé að fólki
af þeim sökum séu áhyggjuefni.
„Þetta er sá hópur sem er hvað
viðkvæmastur í okkar samfélagi.
Fólk sem er að reyna að fóta sig á Ís-
landi, býr kannski við erfiðar að-
stæður, hefur ekki vinnu eða talar
ekki íslensku. Ég hef áhyggjur af
þeim hópi. Ef þeir skynja að þeir séu
ekki velkomnir hingað þá skapast
alls konar vandamál.“
Ofbeldið alvarlegra en áður
Margir slegnir óhug eftir birtingu myndbands þar sem hópur réðst á ungling Nýr veruleiki að of-
beldi sé deilt á samfélagsmiðlum Alvarlegt ef árásin tengist afstöðu til útlendinga Málið í rannsókn
Óhugnanlegt Hópur unglingspilta réðst á fjórtán ára dreng í Hamraborg í Kópavogi. Árásin var tekin upp á síma.
Inga Dóra
Sigfúsdóttir
„Þessi sorglegi og hræðilegi atburður er sannarlega tilefni til að ræða al-
varlega en á yfirvegaðan hátt við börnin okkar,“ segir í yfirlýsingu á Face-
booksíðu Heimilis og skóla.
Fjölmargir hafa tjáð sig um árásina og myndbandið. Samfok, Samtök
foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, brýna sömuleiðis fyrir foreldrum
að ræða við börnin: „Við biðjum foreldra að ræða þessi mál við börnin sín
og gera þeim grein fyrir því hversu alvarlegar afleiðingarnar geta orðið af
svona árás.“ Alexandra Briem varaborgarfulltrúi furðar sig á aðgerða-
leysi viðstaddra: „Hvernig er hægt að standa hjá og gera ekkert þegar
svona á sér stað? Ég skil ekki hvernig fólk getur látið berja barn fyrir
framan sig án þess að gera eitthvað í því … a.m.k. hringja í lögreglu ef
fólk treystir sér ekki í meira.“
Af hverju gerði enginn neitt?
FORELDRAR HVATTIR TIL AÐ RÆÐA VIÐ BÖRNIN