Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020 ✝ HallgrímurSveinsson fædd- ist í Reykjavík 28. júní 1940. Hann lést á heimili sínu á Þingeyri 16. febr- úar 2020. Foreldrar hans voru Hanna Kristín Guðlaugsdóttir hús- freyja, f. 25. sept- ember 1911 á Snældubeinsstöðum í Reykholtsdal Borgarfirði, d. 1997, og Sveinn Jónsson húsa- smiður, f. 24. apríl 1885, frá Sauðtúni í Fljótshlíð, d. 1957. Hallgrímur átti fjögur systkini, Stellu Ragnheiði, f. 27. desem- ber 1935, Jón, f. 20. febrúar 1937, Rósu Björgu, f. 3. apríl 1943, og Pálma, f. 19. ágúst 1947. Jón og Rósa Björg eru lát- in. Hallgrímur kvæntist eftirlif- andi eiginkonu sinni Guðrúnu ingarstað Jóns Sigurðssonar for- seta, í rúm 40 ár frá 1964 til 2005, og sáu um vörslu og um- hirðu staðarins fyrir hönd Hrafnseyrarnefndar. Hallgrímur var virkur í fé- lagsstörfum og sat hann meðal annars í hreppsnefnd Auðkúlu- hrepps og var oddviti, hrepp- stjóri og sýslunefndarmaður, sat í stjórn Kaupfélags Dýrfirðinga og sóknarnefnd. Hallgrímur gaf út hundruð bóka í nafni Vestfirska forlags- ins sem hann stofnaði árið 1994. Bækurnar voru langflestar helg- aðar vestfirsku efni og stuðluðu að varðveislu mikilvægra heim- ilda. Hallgrímur var afkastamik- ill í ritstörfum og skrifaði fjöldann allan af greinum, ýmist einn eða með öðrum. Útför Hallgríms verður gerð frá Þingeyrarkirkju í dag, 22. febrúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 14. Steinþórsdóttur 28. júní 1964. Guðrún fæddist á Brekku í Dýrafirði 1. mars 1938. Foreldrar hennar voru Ragn- heiður Stefáns- dóttir, f. 27. októ- ber 1911 á Ísafirði, d. 1985, og Stein- þór Árnason, f. 22. ágúst 1902 í Reykjavík, d. 1941. Guðrún var með fjárbúskap á Brekku í mörg ár. Hallgrímur og Guðrún voru barnlaus. Hallgrímur lauk kennaraprófi vorið 1961 og kenndi fyrst við heimavistarskólann á Jaðri við Reykjavík. Hann var kennari í Auðkúluhreppi og síðan í barna- og unglingaskólanum á Þingeyri og skólastjóri þar um árabil. Hallgrímur og Guðrún voru bændur og staðarhaldarar á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæð- Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Árin í sveitinni á Hrafnseyri hjá ykkur Gullu frænku og ömmu Ragnheiði voru mér kær og þú varst mér fyrirmynd í mörgu, kæri fóstri. Símtölin verða því miður ekki fleiri, ég á eftir að sakna þeirra. Að leiðarlokum kveð ég þig kæri vinur, hvíldu í friði. Gullu frænku sendi ég hug- heilar samúðarkveðjur frá mér og drengjunum. Steinþór Gunnarsson. Í dag kveð ég svila minn og kæran vin um hálfrar aldar skeið. Hallgrímur var í 40 ár staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð og hélt þar nafni Jóns Sigurðssonar forseta, sögu hans og arfleifð á lofti. Hall- grímur og Guðrún ráku þar fjárbúskap og sáu um vörslu og umhirðu staðarins fyrir hönd Hrafnseyrarnefndar. Börn okk- ar Kristínar munu ætíð búa að því að hafa notið návista og upp- eldis þeirra hjóna í sveitinni á Hrafnseyri á sumrin. Hallgrímur var afar skemmti- legur ferðafélagi og er mér of- arlega í huga ferð okkar hjóna með Hallgrími um Evrópu í til- efni af sextugsafmæli hans. Hallgrímur var vel að sér um sögu Bandaríkjanna. Því var einkar fróðlegt og skemmtilegt að heimsækja með honum Washington í aðdraganda for- setakosninganna haustið 2008. Sérstaklega hafði hann gaman af að taka menn tali þar vestra og spjalla um heima og geima og komandi kosningar. Hallgrímur var einkar alþýð- legur og geðþekkur. Fylgdist hann vel með fréttum og aldrei kom ég að tómum kofunum varðandi þekkingu hans á hverju því sem laut að sögu lands og þjóðar. Hallgrímur gaf út hundruð bóka í nafni Vestfirska forlags- ins sem hann stofnaði 1994. Bækurnar voru langflestar helg- aðar sögum og fróðleik af Vest- fjörðum en bókaútgáfan átti hug hans og hjarta síðari árin og enginn leið sá dagurinn að ekki væri unnið að útgáfunni eða greinaskrifum í blöð eða á vef- inn. Hallgrímur var einmitt að ganga frá bókasendingu þegar hinn hæsti höfuðsmiður vitjaði hans. Það verður eftirsjá að reglu- legu spjalli okkar Hallgríms um málefni líðandi stundar. Megi guð halda verndarhendi sinni yf- ir ykkur Gullu að eilífu. Þorgeir Eyjólfsson. Hallgrímur undi sér innan um veðurnæmar heiðar og snjólögð fjöll Vestfjarða. Þau Guðrún bjuggu með sauðpening, fyrst á Hrafnseyri og svo á Brekku í Brekkudal; hún fæddur bóndi, búskapurinn ástríða, þekkir hverja kind; hann heyskapar- maður, naut þess að sjá sláttu- vélarskúffuna taka grasið og skila því í gróskumikla múga; andaði glaður að sér angan af þurri töðu, var sæll á veturna, þegar hann fann heitan ilminn af ánum leggja út um fjárhús- dyrnar, horfði á þær stoltur þar sem þær þyrptust á garðann og stungu nefjunum í góðu lyktina; hafði þessa þykku, sigg-grónu hönd og þennan hlýja lófa, sem tekur varlega um hornið á kind- inni neðst, til þess að brotni ekki. Þau voru viðbrigða gest- risin; Prestafélag Vestfjarða átti tíðum samfundi í safni Jóns for- seta, klerkar kallaðir inn í bæ að þiggja kaffi og með því, borinn voldugur skattur þegar sól rann, og ekki að nefna borgun. Á eftir settist húsbóndinn hjá gestun- um inni í stofu, skríkti og var smástríðinn; sjálfur trúr vörslu- maður kirkju og kapellu, skóla- stjóri og bókaútgefandi. Þau stunduðu dúntekju; þú kemur að æðarkollu, sem liggur á. Allt í einu tekur hún viðbragð, gagg- ar, blæs og stekkur af hreiðrinu. Ofan í spreklóttum kraga af dún liggja ungarnir, ljósari á kvið- inn, sex til átta talsins, oft færri. Einn er elstur og sprækastur. Hann er skraufþurr og ekki svo lítill, tekur eldsnöggt á rás eitt- hvert út í buskann. Þú mátt hafa þig allan við að ná honum. Þegar þú kemur með hann að hreiðrinu er annar þotinn. Þú ferð eftir honum og á meðan leggur sá þriðji á stað út í ver- öldina. Loks tekst þér að hand- sama alla. Einn er minnstur, hálfblautur enn þá og liggur hreyfingarlaus með höfuðið inni í skurninni. Þú leggst á hnén og heldur systkinum hans kyrrum með annarri hendi, með hinni tekur þú dúninn. Það verður að bíða að stinga honum ofan í pok- ann. Í bili setur þú dúnkökuna undir hnéð, svo hún fjúki ekki burt með stífri innlögninni. Svo leggur þú ungahrúguna í hreiðr- ið. Nú er að seilast í heyvisk úr hinum pokanum, sem þú hefur meðferðis, að leggja undir og yf- ir ungana, svo að þeir rjúki ekki burt. Kannski halda þeir að þessi tugga sé mamma. Væri gott að hafa þriðju höndina, því vindurinn belgir út heypokann og er nærri búinn að svipta hon- um af þér. Þú grípur flaggið litla, sem þú merktir með hreiðrið, þegar þú fannst það í vor, kippir því upp úr jörðinni og stingur því niður aftur. En nú skakkt, til merkis um að búið sé að taka dúninn. Kollan situr íbyggin skammt frá, eða hún rásar fram og aftur, blakandi vængjum, klakandi og það korr- ar í henni. Hún er full ábyrgðar, því að blikinn, sem sat hjá henni fyrstu dagana eftir að hún verpti, er nú floginn á sjó út. Stundum tekurðu dúninn áður en ungarnir koma úr egginu og svo klekjast eggin út og þá sjá ungarnir bara hey og engan dún og skyldi það skaða æðarunga, að hafa aldrei komist í kynni við dún? Þökk fyrir vináttu og Guð styrki Gullu og láti nú drengn- um góða, Hallgrími Sveinssyni, raun lofi betri. Gunnar Björnsson pastor emeritus. Ég kynntist Hallgrími fyrst í Lindargötuskólanum árið 1953. Síðan vorum við bekkjarfélagar í nokkur ár og milli okkar myndaðist afar góð vinátta sem entist alla tíð. Fljótlega eftir Kennaraskól- ann fluttist Grímur vestur á firði og vann þar ýmis störf, sem aðrir munu væntanlega tí- unda. Grímur var ekki tíður gestur í borginni en þegar það gerðist var það til mikillar ánægju allra á heimilinu. Annars áttum við óteljandi símtöl þar sem við gáf- um skýrslur. Síðasta símtalið var við okkur Dúnu, daginn áð- ur en hann lést, og snerist um Bókamarkaðinn og okkar þátt í honum fyrir Vestfirska forlagið. Að lokum sendum við Guð- rúnu og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Takk fyrir vináttuna. Jens, Guðrún (Dúna) og fjölskylda. Okkar elskulegi Hallgrímur er fallinn frá, ekki hefði mig grunað að þetta hefði verið okk- ar síðasta samtal þegar þú hringdir í mig til Noregs síðast- liðinn laugardag og sagðir jæja ertu nokkuð á skíðum núna, en laugardaginn áður hringdir þú og þá var ég að tala við þig í skíðabrekkunni. Höggið er alltaf jafn mikið við óvæntan missi og aldrei er mað- ur viðbúinn þegar ástvinir hverfa yfir móðuna miklu. Margs er að minnast þegar litið er yfir farinn veg. Minning- arnar eru svo margar og eiga eftir að ylja okkur um ókomna tíð, öll góðu samtölin, bíltúrarn- ir, pistlarnir þínir, vorin í sauð- burðinum, æðarvarpið, smala- mennskurnar, Forlagið og svo margt, margt annað og svo hafðir þú ótrúlega skemmtilega frásagnargáfu og var oft glatt á hjalla í stofunni á Brekku. Í 15 ár var ég með ykkur Gullu í sauðburðinum á Brekku, eða fram að búskaparlokum ykkar, og hugsa ég oft til þess tíma er við deildum bæði gleði og sorg. Ég minnist þess eitt vorið þegar sauðburður var tekinn að róast er við vorum í varpinu, þú, Gulla, ég og Dagbjartur, speg- ilsléttur sjór og sól og borðuðum við kvöldverðinn í fjöruborðinu, „Þorpari og kók úr sjoppunni“, fuglasöngurinn allt í kring og við höfðum á orði: „Hvað er hægt að hafa það betra?“ Al- gjörlega ógleymanleg minning. Við eigum í framtíðinni án efa eftir að sakna þess að sjá ekki andlit þitt í glugganum á skrif- stofu Vestfirska forlagsins á Brekku þegar rennt verður í hlað. Eða að sjá kappakstursbíl- inn eins og Hemmi Gunn vinur þinn kallaði bílinn þinn renna í hlað á hólnum við skógarhúsið og sjá þig koma röltandi með ömmu stafinn. Eins á ég eftir að sakna sím- talanna að heiman sem hófust venjulega á „jæja, þá er það smá skýrsla“ og þá fengum við fréttir af ykkur, bæjarlífinu, sveitinni, sundlauginni og gangagerðinni og svo spurðir þú alltaf hvað hefði verið til borðs- ins hjá okkur og hvernig Bjarni okkar hefði það. Við Dagbjartur eigum eftir að sakna góðs vinar sem alltaf var ráðagóður og góður að leita til ef þörf var á. Ég kveð þig elsku Hallgrímur með trega, mér fannst við eiga svo mikið órætt, því þú varst al- veg ótæmandi fróðleikur fyrir okkur hin og það var eiginlega alveg sama hvað maður spurði þig um, þú hafðir alltaf svör. Það var sama hvort það voru ár- töl, örnefni, samferðamenn, sag- an, þú hafðir alveg ótrúlegt minni. Reyndar sagðir þú stund- um „það er bara að fletta þessu upp í Mannlífi og sögu Guðrún mín“, þetta er allt þar. Við Vest- firðingar og fleiri eigum þér mikið að þakka fyrir að hafa sett allan þennan fróðleik for- feðranna og samferðamanna í bókaform og átt þú miklar þakkir skilið. Við Dagbjartur þökkum fyrir allar góðar samverustundir og megi minningin um góðan dreng lifa í hugum okkar. Far í friði og guð veri með þér. Elsku Gulla mín, ég bið góðan guð að styrkja þig og vaka yfir þér. þegar húmar og hallar degi heimur hverfur og eilífðin rís sjáumst aftur á sólfögrum degi þar sem sælan er ástvinum vís. (GH) Guðrún Steinþórsdóttir. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Hallgrímur Sveinsson var einstakur maður. Hann var einn af þeim sem allir voru glaðir að sjá og vildu umgangast. Hann var fróður, fylginn sér og skemmtilegur. Hann var mann- glöggur og vinamargur, fagnaði öllum sem hann þekkti við end- urfundi sama hversu langt leið á milli þess sem hann hitti þá. Á löngum ferli sem skólastjóri í Grunnskólanum á Þingeyri hef- ur hann eflaust þurft að fást við ýmis flókin mál, eiga erfið sam- töl við börn og foreldra. En hon- um tókst vel upp með því að sýna alltaf virðingu og um- hyggju í þeim samskiptum þannig að allir fóru sáttir frá borði. Þegar hann var staðar- haldari á Hrafnseyri fann mað- ur hvað hann var stoltur af því hlutverki og hafði gaman af því að fræða fólk. Það voru allir út- lærðir í því sem tengdist Jóni Sigurðssyni forseta við útskrift frá grunnskólanum – hvort sem þeim líkaði betur eða verr. Fræðslu um ýmis málefni hélt hann áfram með sundlauga- spjalli, bókaútgáfu og pistla- skrifum til síðasta dags, alltaf léttur í máli og lausnamiðaður. Þessi litla kveðja hefst á ljóði úr Hávamálum. Það á vel við enda gat Hallgrímur sér góðan orðs- tír hvar sem hann fór. Orðstír sem mun lifa lengi áfram. Elsku Guðrún – þinn missir er mikill og sendum við þér einlæga sam- úðarkveðju. Minningin lifir um góðan mann. Ebba Gunnarsdóttir og krakkarnir á Brekkugötu 36, Þingeyri. Hallgrímur Sveinsson Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Elsku hjartans móðir mín, dóttir okkar, sambýliskona, systir, mágkona og frænka, ESTER ÓSK LILJAN ÓSKARSDÓTTIR, lést í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæsludeild Landspítalans, Fossvogi, föstudaginn 14. febrúar. Vill fjölskyldan þakka viðbragðsaðilum einstök hlýlegheit. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 25. febrúar klukkan 13. Arnar Óli Þórarinsson Svanborg Liljan Eyþórsdóttir Óskar Aðalsteinsson Sigurður Þór Mýrdal Gunnarsson Ólafur Eyberg Rósantsson Kolbrún Harðardóttir Jónas Páll Þorláksson Margrét Hallgrímsdóttir Vilborg Helga Liljan Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir, amma og langamma, HELGA JÓNA ÁSBJARNARDÓTTIR, Lilla Hegga, sjúkraliði, Breiðvangi 8, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 18. febrúar á gjörgæsludeild Landspítalans. Útför fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. febrúar klukkan 11. Þórbergur Egilsson Guðbjörg Halldórsdóttir Jórunn Anna Egilsdóttir Thomas Evegard Gunnlaugur Egilsson Ragnheiður Jóna Grétarsd. Gísli Rafn Jónsson Ásbjörn Leví Grétarsson Jón Leví Grétarsson Harpa R. Helgadóttir Elvar Grétarsson Bryndís Bragadóttir Björn Rósberg Grétarsson ömmu- og langömmubörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG HULDA JÓNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi, Reykjanesbæ, fimmtudaginn 20. febrúar. Jarðarför auglýst síðar. Guðbjörg Jóna Pálsdóttir Sigurður Hallmann Ísleifsson Jón Örn Pálsson Elísabet Kjartansdóttir Magnús Valur Pálsson Jóna Guðrún Jónsdóttir Þórður Pálsson Laufey Eydal Kristinn Pálsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.