Morgunblaðið - 22.02.2020, Page 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 2020
ALLIR LEIKIR - ALLAR DEILDIR
ALLIR HAPPY
pantanir@sportgrill.is
LIFANDI DAUÐIR OG STEFNUMÓT. „ÁTTU SJÁLFSHJÁLPARBÓK UM AÐ KOMAST YFIR FEIMNI?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hörkuspennandi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER
INNIKÖTTUR
BETUR ÞEKKTUR SEM
SÓLDÝRKANDI
FÉLAGAR, VERIÐ NÚ
LIFANDI OG BERJIST!
HVAÐ MEÐ AÐ ÞYKJAST DAUÐUR
OG LIFA AF?
NEI, ÉG VIL EKKI FÁ MÉR
DRY… Í GUÐANA BÆNUM,
ERTU MEÐ HÖFUÐIÐ Í
RÆSINU?!
Páll á soninn Natan Elí Óðinsson, f.
11.8. 2013. Erlendur á dótturina And-
reu Líf Erlendsdóttur, f. 5.1. 1999,
stúdent, og saman eiga Erlendur og
Fjóla soninn Eirík Sæberg Erlends-
son, f. 14.3. 2014.
Systir Erlends er Ragna Eiríks-
dóttir, f. 4.9. 1974, sjúkraliði og við-
skiptafræðingur, búsett í Reykjavík.
Skásystkini eru Jóhannes Pétursson,
f. 9.10. 1974, umsjónarmaður hjá fjár-
festingarfélaginu LTBR, búsettur í
Reykjavík; Guðrún Dadda Ásmund-
ardóttir, f. 12.10. 1972, iðjuþjálfi á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands í
Hornafirði; Arna Ásmundardóttir, f.
22.9. 1975, geislafræðingur hjá Do-
mus Medica í Reykjavík; Matthildur
Ásmundardóttir, f. 22.11. 1977, bæj-
arstjóri Sveitarfélagsins Horna-
fjarðar; Kjartan Ásmundarson, f.
26.1. 1979, vélstjóri á Bylgju VE, bú-
settur í Reykjavík; Ásmundur Ás-
mundsson, f. 6.2. 1989, framkvæmd-
arstjóri og eigandi Árnanes Riding
Tours, búsettur á Höfn í Hornafirði.
Foreldrar Erlends voru Eiríkur
Rúnar Hermannsson, f. 15.10. 1948,
d. 8.3. 2014, vélstjóri, íþróttanuddari,
mannlegur pípulagningahreinsari
(Colonic Therapist) og lifandi fæð-
isgúrú og bjó á Íslandi, í Bandaríkj-
unum og síðast í Noregi, og Helga
Erlendsdóttir, f. 14.1. 1948, d. 23.3.
2009, sjúkraliði, gistihúsaeigandi og
listakona í Árnanesi í Hornafirði.
Eiríkur og Helga gengu í hjónaband
1969 en slitu samvistir 1978. Sam-
býliskona Eiríks frá 2000 til dánar-
dags var Ragnheiður Grétarsdóttir, f.
7.9. 1948, listakona. Sambýlismaður
Helgu frá 1992 til dánardags var Ás-
mundur Gíslason, f. 6.2. 1951, ferða-
þjónustubóndi.
Erlendur
Eiríksson
Kristinn Ingvarsson
verkamaður og organisti
í Rvík, f. í Brúnavallakoti á
Skeiðum
Sigrún Kristinsdóttir
húsfreyja í Rvík og starfsmaður Eimskips
Erlendur Sigurðsson
húsgagnasmiður í Rvík
Helga Erlendsdóttir
sjúkraliði, gistihúsaeigandi
og listakona
Þuríður Pétursdóttir
húsfreyja á Bergi, f. á
Brúsastöðum í Þingvallasveit
Sigurður Árnason
vélsmiður á Bergi í Rvík, f. í
Vesturbotni í Patreksfirði
Kristín Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Vorsabæ, f. á
Hraunshóli í Ölfusi
Eiríkur Jónsson
bóndi á Vorsabæ í Flóa, f. í
Vorsabæ
Ragna Eiríksdóttir
húsfreyja í Rvík
Hermann Bæringsson
vélstjóri í Reykjavík
Jóhanna Guðbjörg Árnadóttir
húsfreyja í Keflavík og Tungu, f.
á Láganúpi í Kollsvík
Bæring Bjarnason
útvegsbóndi og sjómaður í Keflavík við
Látrabjarg og Tungu í Örlygshöfn, f. á Hvallátrum
Úr frændgarði Erlends Eiríkssonar
Eiríkur Rúnar
Hermannsson
vélstjóri og íþróttanuddari
Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson:
Guðþjónusta í heima húsum.
Hann er oft í klettum framinn.
Stundaður af fróðleiksfúsum.
Fjarskalega illa kraminn.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Lesa karl húslestur vann.
Lestur eftir bjargsins vað.
Við lestur margur fróðleik fann.
Fýrinn limlestur er það.
Eysteinn Pétursson leysir gátuna
svona:
Húslestur var til forna framinn.
Fimlega menn sig í klettum lesa.
Ég löngum var talinn til lestrarpésa.
Lestur er sá sem er illa kraminn.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa
lausn:
Húslestur í koti kær.
Upp klett mig las. Vel samið?
Fróðar lágu í lestri tvær.
Sá lestur féll í kramið.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Á húslestur í andakt hlýddu menn.
Á handvað lestur er í klettum framinn.
Lestur stunda fróðleiksfúsir enn.
Af fóli margur lestur er og kraminn.
Þá er limra:
Valdi, ei barnanna bestur
og breyskari en nokkur prestur,
stundar á fundum
með fjörugum sprundum
annað en ljóðalestur.
Síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Í kokkhúsinu kaffi drakk,
kannski ef ég nenni
gátu læt svo fara á flakk
og fá mun svör við henni:
Annað falt lét auga sitt.
Úlfgrátt verður kannski þitt.
Fjarska stækur fiskur sá.
Festur skipa borðstokk á.
Friðrik Steingrímsson skrifaði á
Leir á fimmtudag: „Rúta fauk út af
vegi við Reynisfjall í dag“:
Á Suðurlandi í svarta byl
sjá má verkun slíka,
að rútur fjúka frá og til
og farþegarnir líka.
Ingólfur Ómar stóðst ekki mátið
og svaraði: „Hér syðra er lítil snjór
miðað við allt fannfergið sem er
fyrir norðan og víðar“:
Fjúkið blæs um freðinn völl
frostið læsir tönnum.
Giljadrögin eru öll
undir fönnum breiðum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Lesturinn verður að vanda