Morgunblaðið - 13.03.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 13.03.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Gríðarlegur skjálfti fór um öll helstu flugfélög í Evrópu og Bandaríkjun- um í gær í kjölfar tilkynningar Do- nalds Trump um ferðabann Evrópu- búa til Bandaríkjanna. Um leið og kauphöllin í Ósló opnaði var ljóst að Norwegian Air Shuttle tæki á sig enn eitt höggið, en hlutabréf félags- ins hafa verið í frjálsu falli síðasta mánuðinn. Féllu bréfin um ríflega 22% í gær og hafa þau þá fallið um rúmt 81% frá áramótum. Lækkun bréfanna varð að veru- leika í gær, þrátt fyrir að Erna Sol- berg, forsætisráðherra Noregs, hafi lýst því yfir á miðvikudag að rík- isstjórn landsins myndi tryggja lausafjárfyrirgreiðslu til flugfélaga á meðan afleiðingar útbreiðslu kór- ónuveirunnar ganga yfir. Síðdegis í gær tilkynnti félagið að það þyrfti að segja upp helmingi starfsfólks síns, að minnsta kosti tímabundið. Norwegian var hins vegar ekki eina evrópska flugfélagið sem varð fyrir höggi í gær. Þannig lækkuðu hlutabréf Air France-KLM um tæp 13% í kauphöllinni í París og hafa bréf félagsins lækkað um 58,4% frá áramótum. Bréf Lufthansa lækkuðu um ríflega 14% í kauphöllinni í Frankfurt. Þá lækkaði IAG í Kaup- höllinni í London um 19% en félagið er eigandi að British Airways. Hef- ur markaðsvirði félagsins lækkað um 45% það sem af er ári. Bandarísku félögin í klemmu Markaðir í Bandaríkjunum opn- uðu á eftir hinum evrópsku en ljóst var strax að áhrif ferðabanns Bandaríkjaforseta höfðu ekki síður áhrif á tiltrú fjárfesta á bandarísku flugfélögunum sem beina vélum sín- um yfir Atlantshafið. Þannig lækk- uðu bréf American Airlines um 17,28% og United Airlines lækkaði um 24,85% en bæði félögin eru skráð í Nasdaq-kauphöllina í New York. Þá lækkuðu bréf Delta Airl- ines um 21% í Kauphöllinni í New York. Taugatitringur hefur einnig auk- ist gagnvart flugvélaframleiðendun- um Airbus og Boeing enda virðist mikill samdráttur í spurn eftir flug- ferðum um allan heim geta haft veruleg áhrif á spurn eftir vélum úr smiðjum þeirra. Þannig lækkaði hlutabréfaverð Airbus um 16,73% í Kauphöllinni í París og í Kauphöll- inni í New York lækkuðu bréf Boeing um rúm 18,11%. Hafa bréf félagsins, sem er stærsti flugvéla- framleiðandi í heimi, lækkað um helming síðasta mánuðinn. Kalla eftir aðgerðum Í gær sendu Airlines for Europe, samtök 16 stærstu flugfélaga Evr- ópu frá sér yfirlýsingu þar sem kall- að var eftir því að stjórnvöld í álf- unni frestuðu álagningu nýrra svokallaðra umhverfisskatta sem nú stendur til að leggja á félögin. Þau kölluðu einnig eftir því að að reglum er varða bætur til farþega vegna seinkana eða niðurfellingu flugferða yrði létt af félögunum í einhverjum mæli. Einnig kölluðu þau eftir því að núverandi reglur sem kveða á um að halda verði uppi 80% nýtingu á út- gefnum lendingaleyfum til þess að viðhalda þeim, yrðu numdar úr gildi. Icelandair tók skarpa dýfu Hlutabréfaverð Icelandair lækk- aði um 22,8% í 128 milljóna króna viðskiptum í gær og hafa bréf fé- lagsins nú lækkað um 48,4% það sem af er ári. Við lokun markaða í gær náði markaðsvirði félagsins ekki 21 milljarði króna. Bókfært eigið fé félagsins var hins vegar um áramót ríflega 65,3 milljarðar króna. Hafa bréf félagsins ekki tekið eins skarpa dýfu síðan 10. júlí árið 2018 þegar félagið gaf út svarta afkomu- viðvörun. Þá féllu bréf félagsins um 25% á einum degi. Bogi Nils Bogason forstjóri fé- lagsins og Eva Sóley Guðbjörns- dóttir, fjármálastjóri þess, funduðu með ríkisstjórn Íslands í gær. Þá gaf félagið út tilkynningu um að ferðabann Bandaríkjastjórnar myndi hafa veruleg áhrif á áætlanir félagsins. Þó var ítrekað að lausa- fjárstaða félagsins væri sterk. Hún hefði numið 39 milljörðum króna við áramót og væri „á sama stað í dag“. Ljóst er að fyrrnefnt ferðabann hefur hlutfallslega mikil áhrif á Ice- landair og íslenska ferðaþjónustu miðað við aðra markaði. Samkvæmt greiningarfyrirtækinu CAPA gerðu áætlanir ráð fyrir að í yfirstandandi viku yrðu seld 11.759 sæti milli Bandaríkjanna og Íslands. Hins vegar yrðu seld 10.015 sæti milli Bandaríkjanna og Danmerkur, 4.440 sæti milli Bandaríkjanna og Noregs og 4.806 sæti milli Banda- ríkjanna og Svíþjóðar. Flugheimurinn allur í afar djúpri dýfu  Boeing og Airbus fara ekki varhluta af stöðunni  Icelandair féll um 22,8% í 128 milljóna viðskiptum Áhrifin af yfirlýsingu Trumps ekki enn ljós Daglegar flugferðir : 560 Flugsæti á dag: 160.000 Áætlun um 30 daga frá 13. mars: 40 flugfélög Helstu tölur um hvað geti verið í húfi: Flugferðir milli Bandaríkjanna og Evrópu Heimild: flightglobal.com/Cirium schedules data Umsvifamestu bandarísku flugfélögin Umsvifamestu evrópsku flugfélögin American Airlines Lufthansa Air France Um það bil 60 flugferðir á dag Um það bil 37 flugferðir á dag Delta Air Lines United Airlines4,8 milljónir flugsæta 17.000 flugferðir Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræð- ingur Íslandsbanka segir í samtali við Morgunblaðið að mörg Evrópu- ríki, og í raun Bandaríkin líka, hafi ekki sömu stoðir og Íslendingar hafa, og séu því verr í stakk búin til að tak- ast á við þá stöðu sem komin er upp núna með útbreiðslu kórónuveirunn- ar og ferðabanni Bandaríkjanna á Evrópu næstu 30 dagana. „Mörg Evrópuríki eru mjög skuldsett, og hið opinbera því ekki til stórræðanna til að koma til móts við atvinnulífið í löndunum. Víða í Evrópu hefur í raun aldrei komið almennilegur hag- vöxtur eftir hrunið árið 2008, og skuldir hafa safnast upp. Verkfæra- kistan er ansi fátækleg á að líta víða.“ Jón Bjarki vísar þar til sterkrar stöðu ríkissjóðs Íslands og mikillar skuldaniðurgreiðslu síðustu missera, bæði ríkis og sveitarfélaga. „Sveitar- félögin standa mörg hver býsna vel. Fyrirtækin í landinu eru líka minna skuldsett en þau voru, og heimilin standa sterkari fótum. Það mun reyna á þetta allt saman núna. Við getum prísað okkur sæl að hafa búið í haginn í uppsveiflu síðustu ára.“ Jón Bjarki minnir á að skellirnir sem dynji á þjóðinni þessa dagana séu tímabundnir, og þegar allt verði yfirstaðið séu grunnstoðir landsins traustar til að byggja upp á ný. Góð- ar líkur séu á þokkalega hröðum bata. Spurður um áhrifin á heimilin í landinu segir Jón Bjarki að ekki sé von á verulegum viðskiptahalla. Það takmarki gengissig krónunnar og haldi verðbólgu í skefjum. „Þá ætt- um við síður að sjá höfuðstól verð- tryggðra lána heimilanna rjúka upp.“ Sumaráætlanir ganga ekki upp Sveinn Þórarinsson, hlutabréfa- greinandi hjá Landsbankanum, segir að burtséð frá þessu 30 daga ferða- banni Bandaríkjamanna þurfi nú að horfa á áhrifin sem þetta hefur á mesta ferðamannatíma ársins, sum- artímann. „Áhættufaktorinn fyrir Icelandair er hvernig sumarið verð- ur. Félagið kemst í gegnum erfið- leika í mars og apríl, en ef það kemur risahögg í sumar horfir það öðruvísi við. Það er nú þegar ljóst að áætlanir fyrir sumarið munu ekki ganga upp.“ tobj@mbl.is Ísland í betri stöðu en aðrir  Sumarið áhættuþáttur fyrir Icelandair Jón Bjarki Bentsson Sveinn Þórarinsson Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Allir vöðvar eru sérvaldir úr fitusprengdum Írskum nautgripum sem eingöngu hafa verið fóðraðir á grasi. Kjötið er hægmeyrnað í 21 til 28 daga. Nautakjötið frá John Stone er marg verðlaunað hefur meðal annars hlotið gullverðlaun í World Steak Challenge 2017-2018-2019! Bókaðu borð á matakjallarinn.is eða í síma 558-0000. JOHN STONE STEIKARDAGAR ÁMATARKJALLARANUM 4. - 15. MARS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.