Morgunblaðið - 13.03.2020, Síða 21

Morgunblaðið - 13.03.2020, Síða 21
gladdi það hann mikið að hún skyldi fá nafn móður hans. Svo kom orkuboltinn Þórdís Amalía í heiminn og fékk fallega nafnið Amalía frá Höllu. Í báðum tilvik- um gat hann varla beðið eftir að þær kæmu í heiminn og það var spenntur afi sem kom fyrstur manna í heimsókn, ásamt ömmu Höllu auðvitað, tilbúinn að kynn- ast þeim og knúsa þær. Lenni sýndi barnabörnunum ávallt mikla væntumþykju og hafði ein- lægan áhuga á því sem þau tóku sér fyrir hendur. Þau Guðbjörg Anna áttu sameiginlegt að finnast gaman að spila á hljóðfæri, hann spilaði alltaf nótnalaust eftir eyr- anu á píanó og sama getur hún gert á nokkur hljóðfæri. Þegar hún var yngri spiluðu þau stund- um saman og það voru skemmti- legar stundir. Lenni naut þess að fara á tónleika með henni og í seinni tíð horfa á upptökur þar sem hún spilaði bæði ein og sér og með skólahljómsveitinni og hann var virkilega stoltur af henni. Þór- dís Amalía átti líka einstakt sam- band við afa sinn, hann hafði gam- an af grallaraganginum í henni og alltaf teygði hún sig eða prílaði upp til að knúsa hann – svo spjöll- uðu þau um heima og geima. Ég kveð Lenna tengdaföður minn með orðum Káins: Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir. Innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Hvíl í friði. Anna Kapitola. Elsku afi minn. Takk fyrir að vera alltaf glaður. Takk fyrir að vera alltaf brosandi. Takk fyrir að vera alltaf fyndinn. Takk fyrir að vera alltaf áhuga- samur. Takk fyrir að vera alltaf sterkur. Takk fyrir allt elsku afi. Þín Vigdís Halla. Elsku besti afi Lenni. Við erum þakklátar fyrir yndislegar sam- verustundir og kveðjum þig með miklum söknuði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því. Þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Hjartans kveðjur og knús, Guðbjörg Anna og Þórdís Amalía Haraldsdætur. Elsku afi minn Þú ert fyrirmynd mín og margra annarra. Þú varst svo mikill húmoristi og alltaf með grín upp í erminni sinni þó þú værir svona mikið veikur. Ég á eftir að sakna þín mikið og ég veit að fleiri eiga eftir að gera það. Við vorum mikið saman þegar ég var lítill sem gaf okkur báðum margar minningar. Allar minningarnar mínar með þér eru ómetanlegar. Núna ertu frjáls. Þinn Höskuldur Páll . Ég mun aldrei gleyma hvernig þú heilsaðir þegar við komum að heimsækja þig. „Nei hæ“-ið þitt var alltaf svo glaðlegt. Þú gerðir mig alltaf glaða ef ég var ekki í góðu skapi og aldrei máttir þú missa af góðu partíi ef fólkið þitt var að hittast. Það var alltaf svo gaman að hlusta á lögin sem þú spilaðir á píanóið þegar þú komst í heimsókn og ég vissi að þú yrðir stoltur af mér þegar þú heyrðir mig spila líka. Takk fyrir öll 10 árin sem við áttum saman, þú varst frábær afi. Kristbjörg Sigríður Þóroddsdóttir afastelpa. Stærsta hjarta í heimi sagði loksins stopp og hleypti hvíldinni að. En elsku bróðir, þú skalt ekki halda að þú sért farinn. Þú verður hér áfram. Ekki það að þú sért ei- lífur, heldur verður minningin um þig eilíf, tandurhrein og lifandi. Sumir kalla það meira að segja ei- líft líf. Þú varst besti vinur minn og verndari allt frá upphafi. Ég man enn fallegu, mjúku og heitu höndina þína leiða mig fjögurra eða fimm ára gamlan niður Sund- ið við æskuheimilið við Baróns- stíginn. Líka man ég þegar við litlu pjakkarnir neyddumst til að fara um yfirráðasvæði Tígriskló- arinnar, strákagengis í Þingholt- unum, á sunnudegi á leið okkar í KFUM á Amtmannsstíg. Þá varst þú í fararbroddi. Alltaf stærstur og sterkastur og enginn þorði að atast í okkur litlu greyj- unum. Þetta eru myndlíkingar en þannig var þetta alla tíð. Glaður og gjöfull á allt og alla í kring um þig. Við bræður áttum langa og ljúfa samleið. Út um holt og hæð- ir lífsins, niður í dalina og upp úr þeim aftur. Eitt stórt mál greindi okkur þó verulega á um: Hvorir voru betri, Bítlarnir eða Rolling Stones? Var Yesterday snilld eða flopp? Þarna skar á milli bræðra og var þetta það alvarlegasta sem okkur greindi á um dagana. Af- staða þín til lífsins og fólksins í kring um þig var gæfa okkar sem þekktum þig og ég held að það hafi verið gæfa þín líka. Ó, hve heimurinn liti öðruvísi út, ef við værum öll eins og þú. Takk fyrir lífið Lenni. Takk Halla og þið fjöl- skyldan og takk Sóltúnsfólk fyrir hve vel þið studduð hann við að halda reisn sinni á síðustu metr- unum. Ást og friður. Haukur. Komið er að kveðjustund. Kær frændi minn og vinur er látinn eftir langvinn veikindi og heldur nú á leið til annarra stranda. Gæfa mín var að fá að eiga með honum samleið frá fyrsta degi. Við Lenni vorum systrasynir. Samband systranna var mikið og náið, samgangur mikill á milli heimila okkar og hafa Lenni og bróðir hans Haukur verið mér sem bestu bræður á lífsins leið. Hann átti rætur að rekja til Stokkseyrar í báðar ættir, þar sem foreldrar hans ólust upp. Plássið var honum ofarlega í sinni, enda mátti ekkert sumar líða án þess að fjölskyldan sækti Stokkseyri heim. Táp og fjör einkenndu æskuár Lenna. Hann stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík, var í sumarvinnu í glaðværðinni í hval- stöðinni í Hvalfirði og lærði tann- læknisfræði við Háskóla Íslands. Að námi loknu starfaði hann sem tannlæknir um árabil, en varð frá því að hverfa á besta aldri vegna þungbærra veikinda. Engan þekki ég, sem tekist hefur á við hlutskipti sitt og náð að mæta því af jafnmiklu æðruleysi. Það lýsir ef til vill best gáfum hans og skaphöfn. Hann mætti örlögum sínum jafn hreinskiptinn, æðru- laus og hjartahlýr sem fyrr. Hann hefur kennt okkur margt og við munum sakna hans mikið, en brosið hans hreina og glettnin hnitmiðuð geymist í huga okkar. Lenni var drengskaparmaður í þess orðs fyllstu merkingu. Hann var stór og mikil persóna og hafði öll einkenni foreldra sinna um lip- urð og ljúfmennsku. Í fjölskyldu- boðum voru jafnan mikil ærsl og atgangur, þegar fjölmennur frændgarðurinn var upp á sitt besta. Þar var Lenni leiðtoginn: hugmyndaríkur, útsjónarsamur og lipur málamiðlari sem oft þurfti á að halda. Lenni var óvenjuheilsteyptur, víðsýnn og frjáls í fasi, enda gæddur heil- brigðum gáfum og beittu skop- skyni. Í brjósti hans var hjarta er jafnan sló með þeim sem ranglæti voru beittir og hann brást ekki þeim sem minna máttu sín og leit- uðu til hans. Tónlistin átti hug og hjarta frænda míns og var hann sérstak- lega liðtækur píanisti. Hann var einlægur aðdáandi Bítlanna og naut þess að deila efni þeirra. Hann sá til þess að allar frum- útgáfur af heildarverkum þeirra, hvort heldur sem er á vinyl, geisladiskum eða DVD, skipa öndvegi í plötusafninu á mínu heimili. Í samkvæmum og á mannfundum var Lenni hrókur alls fagnaðar. Hann var fé- lagslyndur í besta lagi, tryggur í lund og hjálpsamur með afbrigð- um. Hann var þó innst inni al- vörugefinn og ráðagóður og víst er að gott var að leita til hans á stundum alvörunnar. Margir eiga honum skuld að gjalda fyrir greiðvikni og hjálpsemi, en í þeim efnum taldi hann ekki eftir sér neina fyrirhöfn. Lenna verður ekki minnst án þess að nefna í sömu andrá ein- staka eiginkonu hans. Fljótt kom í ljós og síðar hefur sannast að dómgreind frænda míns hefur ekki brugðist. Betri lífsförunaut er vart hægt að hugsa sér honum til handa, svo einstakt hefur sam- band þeirra og samleið öll komið okkur fyrir sjónir. Tryggð og um- hyggja Höllu í langvinnum og erf- iðum veikindum frænda míns eru slík að með eindæmum eru. Þau tókust samhent á við lífið og er víst að missir hennar er mikill. Ævi frænda míns er lokið. Að leiðarlokum er mér ljúft og skylt að þakka honum samfylgdina, glaða æsku og órofa tryggð og umhyggju. Höllu, börnum, bróð- ur og öðrum ástvinum sendum við fjölskyldan innilegustu sam- úðarkveðjur. Hann mun lifa okk- ur í minningunni; góðlyndur, æðrulaus, sterkur og kær. Ingimundur Sigurpálsson. Vinur okkar Leonhard Ingi Haraldsson tannlæknir hefur fengið hvíldina eftir langa og erf- iða sjúkralegu. Lenni, eins og hann var ávallt kallaður, hafði einstaklega góða nærveru. Hann stráði hlýju og léttleika á veg samferðamanna sinna með því einu að vera bara sá sem hann var. Hann var algjört ljúfmenni og heyrðist aldrei hallmæla nokkrum manni. Hann var líka mikill húmoristi, orðheppinn og einstaklega skemmtilegur í góð- um hópi. Hann var því óvenju vin- margur, enda félagslyndur með afbrigðum og áhugasamari um hag annarra en sinn. Hann átti bara vini. Leiðir okkar lágu saman er við hófum nám í tannlækningum árið 1965. Ekki var það auðvelt í byrj- un, þar sem tannlæknadeildin var lokuð vegna húsnæðisleysis, hafði verið í kjallara Landspítalans við Hringbraut, en samningurinn við ríkið var útrunninn og ekki end- urnýjaður. Við vorum því skráðir í læknadeild með opna umsókn í tannlæknadeild. Það gekk að lok- um upp og við komumst fjórir (Helgi, Jens, Lenni og Sigfús Þór) inn í deildina á annað ár. Þarna áttum við sex frábær ár saman í krefjandi námi, en alltaf gaman hjá okkur og átti Lenni ekki síst þátt í að halda okkur við gleðihliðina. Við tókum að okkur stjórn fé- lags tannlæknanema og meðal annars tókum við á móti tveimur tannlæknanemum frá Svíþjóð og Danmörku og sýndum þeim mikla kurteisi að íslenskum sið, fórum meðal annars Þingvalla- hring á bíl félagsins, eins og bíll formannsins var kallaður. Svo var haldið hér norrænt þing tann- læknanema og m.a. sníkt frábær móttaka Gylfa Þ. Gíslasonar menntamálaráðherra í ráð- herrabústaðnum við Tjörnina. Eftir að námi lauk fórum við að vinna hér og þar á stofum tann- lækna og hjá skólatannlækning- um Reykjavíkur, en svo fór að lokum að þrír okkar settu upp saman eigin stofur (Helgi, Jens og Lenni) á Rauðarárstíg 18 árið 1975. Einn fór þá strax í sérnám til BNA (Sigfús Þór). Seinna 1986 keyptum við húsnæði og settum upp tannlæknastofur í Skipholti 33. Strax eftir útskrift vorum við teknir inn í Tannlæknafélag Ís- lands og þá settir í félagsheim- ilisnefnd og áttum við þar gott samstarf og héldum margar skemmtanir. Þá var félagið ekki mjög fjölmennt og kollegar sam- heldnir og duglegir að skemmta sér saman. Á þessum árum þurftu tann- læknar að sækja sér fróðleik og viðhaldsmenntun erlendis og lá leið okkar oft til Köben, þar sem við sátum á fyrirlestrum og sáum nýjustu tæki og efni í faginu á stórri sýningu, sem haldin var á sama stað í Bella Center á Ama- ger, en auk þess var þetta hin besta skemmtun, því við Íslend- ingar erum duglegir að halda hópinn. Margar samverustundir og skemmtanir hafa fjölskyldur okkar fjórmenninganna átt í gegnum árin. Árið 1996 varð Lenni að hætta störfum sem tannlæknir af heilsufarsástæðum og hefur háð erfiða og mikla baráttu við veik- indi síðan, en er nú búinn að fá hvíldina. Halla stóð eins og klett- ur við hlið Lenna í þessari bar- áttu allt til loka. Blessuð sé minn- ing frábærs félaga og vinar og sendum við Höllu, börnum og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Helgi, Jens og Sigfús Þór. Kveðja frá Tannlækna- félagi Íslands Eitt af því dýrmætasta í lífinu eru góðir vinir og gott samferða- fólk. Leonhard Ingi Haraldsson tannlæknir var einn þessara samferðamanna. Hann lést föstu- daginn 28. febrúar sl. 76 ára að aldri. Reikna má með að mennta- skólaárin í MR hafi mótað Lenna, eins og hann var nefndur meðal vina. Það var öflugt fé- lagslíf í MR á þessum árum og 1964 var 6-B nokkuð áberandi enda margir öflugir nemendur í þessum strákabekk með tveimur stúlkum. Nokkrir létu sérstak- lega til sín taka og urðu síðar þjóðþekktir. Svo stiklað á stóru má nefna Björn Bjarnason, Stef- án Baldursson, Svavar Gestsson, Véstein Lúðvíksson, Ásdísi Skúladóttur, Heimi Pálsson, Ket- il Högnason, Einar Sigurbjörns- son og Sveinbjörn Rafnsson. Í lok þessa vetrar þegar undirbún- ingur stóð sem hæst fyrir stúd- entspróf voru Bítlarnir að halda innreið sína hér á landi og voru Bítlalögin sungin á traktorum á dimmisjón. Lenni hóf nám við tannlækna- deild Háskóla Íslands sem lauk með kandídatsprófi 1971. Í út- skriftarárganginum voru fjórir piltar, enda tannlæknastéttin þá nánast eingöngu karlastétt. Á há- skólaárunum var Lenni hinn mesti gleðigjafi og alltaf til í tusk- ið. Þjóðviljinn birti á þessum ár- um viðtal við Sigurð Lúðvíksson þar sem hann lýsir ferð sinni, Leonhards og Ketils Högnasonar á þing tannlæknanema á Möltu. Nú eru þessir frábæru kollegar komnir yfir móðuna miklu, ásamt Þjóðviljanum. Góðar minningar eigum við um þessa þrjá gleði- gjafa. Eiginkonan, Amalía H. Skúladóttir, Halla, sem þá var þegar orðin lífsförunautur Lenna, var í þessari ferð til Möltu. Lenni var alltaf vinstra megin í pólitík og voru þau hjón samstiga í því eins og öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur. Leonhard starfaði sem aðstoð- artannlæknir hjá Halli Hallssyni í Reykjavík frá júní 1971 til júlí 1975. Skólatannlæknir í Reykja- vík var hann frá september 1971 og rak eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá júlí 1975 til maí 1996. Hann var virkur í félagslífi Tannlæknafélags Íslands og tók að sér ýmis verkefni fyrir félagið. Starfsferill Lenna varð ekki langur. Taugalömunarsjúkdómur fór að láta á sér kræla um fertugt en sennilega hefur hann borið sjúkdóminn frá barnsaldri. Hann varð að ljúka störfum um fimm- tugt og var þá metinn öryrki. Síð- ari árin mörkuðust af veikindum hans, fleiri sjúkdómar lögðust á hann en Halla, stoð hans og stytta, sá lengst af um að koma honum í sjúkraþjálfun og endur- hæfingu. Síðustu ár hans dvaldi hann á hjúkrunarheimilinu Sól- túni. Nokkur hópur kollega, skólafélagar frá háskólaárunum og síðar samstarfsmenn, Helgi, Jens, Sigfús og Sigurjón Ólafsson studdu sérstaklega við bakið á honum með heimsóknum og öðr- um viðvikum. Þótt veikindi hafi leikið hann grátt var ávallt stutt í húmorinn. Á þessum tímamótum vil ég fyrir hönd Tannlæknafélags Ís- lands þakka okkar ágæta kollega Leonhard Inga Haraldssyni sam- fylgdina, votta eiginkonu hans og fjórum börnum þeirra ásamt öðr- um aðstandendum samúð. Bless- uð sé minning hans. Svend Richter. Það kom í minn hlut að rita nokkur minningarorð um Leon- hard Inga Haraldsson, einn bekkjarfélaga okkar úr 6. bekk B frá MR 1964, og er mér að því mikill heiður. Ung sungum við saman „Gau- deamus igitur“ í bland við Bítla- lögin á heyvagninum á dimm- isjón, með Sturlu Þórðarson undir stýri. Lífið blasti heillandi við okkur á þeim sólbjarta sum- ardegi. Við Lenni, eins og hann var alltaf kallaður af vinum sínum, ól- umst upp á Barónsstígnum, hann á nr. 23 og ég á nr. 24. Við vorum saman í skóla frá því við vorum í tíu ára bekk og allar götur síðan hefur vinátta okkar vaxið með hverju árinu sem leið og aldrei borið skugga þar á. Lenni krækti sér í lífsförunaut á menntaskóla- árunum sem átti eftir að reynast honum betri en enginn. Þessi föngulega snót var Amalía Halla Skúladóttir sem ólst upp í gamla pósthúsinu við Brúnaveg og þar réð ríkjum Hallur Hallsson tann- læknir. Ég held að það hafi verið samantekin ráð hans og Höllu að strákurinn legði fyrir sig tann- læknanám. Lenni stundaði tann- lækningar meðan honum entist heilsa til en hann varð vegna heilsubrests að leggja borinn á hilluna einungis 53 ára gamall. Var oft glatt á hjalla þegar ég sat í tannlæknastólnum hjá Lenna og var erfitt að sitja þegjandi meðan hann reytti af sér brandarana. Þau Lenni og Halla eignuðust fjögur mannvænleg börn í „þrem- ur atrennum“ eins og Lenni orð- aði það eitt sinn. Ekki fór á milli mála að fjölskyldan var honum afar kær. Ekki er hægt að segja að lífið hafi alltaf farið mjúkum höndum um minn góða vin en heilsan var oft ekki upp á marga fiska. Má með sanni segja að Lenni hafi barist og lifað undir merkj- um gleðinnar og stefnan hafi ver- ið að kætast meðan kostur var. Ætíð glaðsinna, spaugsamur og alltaf manna skemmtilegastur. Síðustu æviárin voru honum ekki auðveld, bundinn við hjóla- stól lengst af og upp á aðstoð ann- arra kominn. Vissi ég að honum féll þungt að búa á hjúkrunar- heimili, ófær um að geta verið heima hjá Höllu sinni. Halla sá við því og var meira og minna hjá honum og stytti honum stundir. Sagði hann við mig, ekki fyrir löngu, að hvað sem öðru liði væri vel um hann hugsað og væri hann verkjalaus væri engin þörf að kvarta. Hann væri mest hissa á því hvað hún Halla nennti að hanga yfir sér, hundleiðinlegum karlinum. Við töluðum oft saman í síma og alltaf var það segin saga að hann spurði fyrst hvernig gangur lífsins væri á mínum bæ. Umhyggjan um farsæld vina sinna var honum í blóð borin. Síðustu árin var okkur ljóst hvert stefndi, en hvað sem því leið var húmorinn tryggur fylgisveinn hans þegar við spjölluðum saman. Lenni hélt upp á 75 ára afmælið sitt í Sóltúni þar sem hann naut umönnunar allt til loka. Í veislu- sal Sóltúns var píanó og Lenni bað mig að spila fyrir sig þó ekki væri nema eitt lag. Lagið sem ég spilaði var það sem mér kom fyrst í hug: „Gamli góði vinur‘‘ eftir Magnús Eiríksson. Verður lagið og textinn, sem segir allt sem segja þarf, hinsta kveðja til míns góða vinar. F.h. B-bekkjar MR 1944, Sveinn Sigurkarlsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020 „Kallaðu á okkur fljótt aftur,“ sagði Erla Kristín, glöð og hress, eftir síðasta hitting okkar í haust í Gerðubergi. Okkur var því illa brugðið er við fréttum ótíma- bært fráfall hennar. Þótt liðið væri á annan áratug síðan við hættum að vinna saman Erla Kristín Svavarsdóttir ✝ Erla KristínSvavarsdóttir fæddist 2. sept- ember 1957. Hún andaðist 21. febr- úar 2020. Útför Erlu Krist- ínar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. rofnuðu tengslin aldrei. Við unnum allar í Þjóðarbók- hlöðunni og þar hófst vinátta okkar sem hélst æ síðan. Erla var hámennt- aður tölvufræðingur og hornsteinn í tölvumálum safns- ins. Mikið var leitað til hennar og hafði hún alltaf svör á reiðum höndum. Á fumlausan hátt vann hún í völundarhúsi tölvumála, svaraði spurningum og leysti hvers manns vanda. Við áttum margar góðar stundir saman, bæði á glæsilegu heimili hennar í Lyngrima og eins í sumarbústað fjölskyldunn- ar. Hún var höfðingi heim að sækja. Heimili Erlu var sérstak- lega fallegt og hlýlegt og bar smekkvísi húsmóðurinnar fagurt vitni. Erla var frábær og traustur starfsfélagi en fyrst og fremst minnumst við manneskjunnar. Orð duga ekki til að lýsa Erlu. Hún var einfaldlega einstök kona, gæfumaður sem skilur eftir sig góðar minningar. Hún hafði góða nærveru, var hógvær og kurteis, yfirveguð og lét fátt raska ró sinni. Ekki margmál en lét verkin tala. Við minnumst látinnar heiður- skonu með miklum söknuði og þökkum óbilandi tryggð í gegn- um árin. Hún var sannur vinur sem skilur eftir spor í hjörtum okkar. Fjölskyldu Erlu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Svanfríður S. Óskarsdóttir og Borghildur Stephensen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.