Morgunblaðið - 13.03.2020, Page 26

Morgunblaðið - 13.03.2020, Page 26
KÖRFUBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Stjarnan fór langt með að tryggja sér deildarmeistaratitilinn annað ár- ið í röð í Dominos-deild karla í körfubolta er liðið vann 94:83- heimasigur á Haukum í gærkvöldi. Stjarnan getur orðið deildarmeistari í kvöld, takist Keflavík ekki að vinna Þór Þorlákshöfn. Annars dugir Stjörnunni sigur gegn föllnum Fjölnismönnum í lokaumferðinni í næstu viku. Búist við meiru af Haukum Urald King var stigahæstur hjá Stjörnunni með 22 stig og þau skor- aði hann á aðeins 19 mínútum. Þá lék Hlynur Bæringsson einnig vel og tók 14 fráköst og gaf sex stoð- sendingar. Haukar eiga ekki lengur möguleika á að vera með heimavall- arrétt í úrslitakeppninni. Hefur tímabilið þeirra verið hálfgerð von- brigði, því liðið hefur unnið ellefu leiki og tapað tíu. Búist var við meira frá Haukum eftir að Kári Jónsson snéri heim í haust, en hann er með 17,4 stig að meðaltali í deild- inni í vetur. Kári þarf helst að skora nálægt 30 stigum í leik í úr- slitakeppninni, ætli Haukar sér langt í henni. Sjóðheitir í úrslitakeppnina Íslandsmeistarar KR fara sjóð- heitir inn í úrslitakeppnina og virð- ast þeir enn og aftur vera að toppa á réttum tíma. KR hafði betur gegn Val á útivelli, 90:81, og hefur liðið unnið fjóra leiki í röð. Líkt og gegn Stjörnunni í síðustu umferð sáu sex leikmenn alfarið um stigaskor KR- inga. Fimm skoruðu meira en 15 stig og einn skoraði átta stig. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 22 stig og hefur hann ekki skorað eins mikið síðan í 2. umferð gegn Haukum. Er hann gott dæmi um vaxandi leik KR-inga að undanförnu. Tindastóll gulltryggði sér heima- leikjarétt í úrslitakeppninni með öruggum 99:76-sigri á ÍR á heima- velli. Eftir erfiða byrjun á árinu hef- ur Tindastóll nú unnið fimm af síð- ustu sex og virðist ætla koma af krafti í úrslitakeppnina. Það verður ekkert lið hrifið af því að fara í Skagafjörðinn þegar allt er undir. ÍR-ingum líður vel á heimavelli en þeim virðist ekki líða eins vel á landsbyggðinni. Breiðholtsliðið hef- ur fengið þrjá skelli á útivöllum utan Reykjavíkur; gegn Njarðvík, Kefla- vík og nú Tindastóli. ÍR verður ekki með heimavallarrétt í úrslitakeppn- inni og þarf því að læra að vinna erf- iða útileiki eftir ferðalög. Þá vann Njarðvík auðveldan 117:83-sigur á föllnum Fjöln- ismönnum á heimavelli. Þrátt fyrir sigurinn getur Njarðvík ekki lengur náð heimaleikjarétti, þar sem liðin fyrir ofan unnu sína leiki. Eftir leikina er ljóst að Stjarnan, Keflavík, Tindastóll og KR verða með heimaleikjarétt í úrslitakeppn- inni og mæta þau Njarðvík, Hauk- um, ÍR og Grindavík eða Þór Þor- lákshöfn. Þórsarar þurfa að vinna tvo síðustu leiki sína og treysta á að Grindavík tapaði síðustu tveimur til að ná áttunda sætinu. Þá verður Þór Akureyri að vinna Grindavík í kvöld, annars er liðið fallið. Með níu fingur á deildartitlinum  KR og Tindastóll með heimavallarrétt Morgunblaðið/Árni Sæberg Frákast Leikmenn Stjörnunnar og Hauka einbeittir í frákastabaráttu í gær. KÓRÓNUVEIRAN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur boðað til neyðarfundar næsta þriðjudag, 17. mars, þar sem væntanlega verða teknar ákvarðanir um framhaldið á knattspyrnumótum álfunnar, sem eru öll í uppnámi vegna kórónuveirunnar. Allar 55 aðildarþjóðir UEFA eru boðaðar til fundarins en fulltrúarnir þurfa ekki að fara langt því um fjar- fund verður að ræða til að komast hjá óþarfa ferðalögum. Til fundarins er einnig boðið fulltrúum samtaka fé- lagsliða, deildanna og samtaka at- vinnuknattspyrnumanna. Franska blaðið L’Equipe sagði í gær að samkvæmt sínum heimildum væri UEFA tilbúið að fresta loka- keppni EM karla um eitt ár og halda hana sumarið 2021 til þess að liðka fyrir um lok keppnistímabilsins 2019-20. UEFA þarf þó að taka mið af heimsmeistaramóti félagsliða sem FIFA hyggst halda sumarið 2021 og þá fer einnig fram lokakeppni EM kvenna. Lokakeppni EM karla 2020 á að fara fram í tólf borgum víðs veg- ar um Evrópu, hefjast með leik Ítalíu og Tyrklands í Róm 12. júní, og ljúka með úrslitaleik á Wembley 12. júlí. Sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildar UEFA eru enn í gangi en ljóst er að ekki verður hægt að ljúka þeim á til- settum tíma og litlar líkur eru á að fyrirhugaðir úrslitaleikir geti farið fram í maímánuði. Eins eru enn margar umferðir eft- ir af flestum vetrardeildum Evrópu. Englendingar eru að reyna að halda í 30. umferð sinnar úrvalsdeildar um komandi helgi en þá verða enn eftir átta umferðir þar. Þjóðverjar stefna að því að spila 26. umferðina af 34 um helgina. Spánverjar hafa frestað næstu tveimur umferðum og þar eru enn eftir ellefu umferðir af 38. Ítalir hafa lokið tæplega 26 umferðum af 38 en þar hefur öllum fótbolta verið frestað fram yfir 3. apríl. Með frestun á EM um eitt ár ætti að verða svigrúm til að ljúka Evr- ópumótunum, sem og deildum hinna ýmsu landa í sumar, svo framarlega sem framgangur kórónuveirunnar leyfir það. Umspilsleikirnir í uppnámi Umspilsleikirnir fyrir EM í lok mars eru í uppnámi. Átta umspils- leikir eiga að fara fram fimmtudag- inn 26. mars, þar á meðal viðureign Íslands og Rúmeníu á Laugardals- vellinum. Fimm dögum síðar, þriðju- daginn 31. mars, á umspilinu að ljúka með fjórum úrslitaleikjum um sæti á EM. Ef EM verður frestað verður að teljast afar líklegt að umspilinu verði líka frestað. Nú þegar eru mörg vandamál komin upp, m.a. vegna leikmanna sem eru fastir á Ítalíu. Serbar eru með sex landsliðsmenn í sóttkví þar, Bosníumenn með þrjá og Íslendingar með Birki Bjarnason. Þegar liggur fyrir að í Noregi og Slóvakíu yrði leikið án áhorfenda og líkurnar á að sama yrði gert hér á Laugardalsvellinum fara vaxandi dag frá degi. Bosnía hefur farið fram á frestun á leik sínum við Norður- Írland.  Holskefla af frestunum vegna kórónuveirunnar bættist við í gær. Danir, Spánverjar og Hollendingar hafa frestað sinni deildakeppni næstu tvær vikurnar hið minnsta og Norðmenn ætla ekki að hefja sína deildakeppni fyrr en í maí. Í hand- boltanum hafa Norðmenn blásið til leiksloka á sínu tímabili, Evrópu- mótum félagsliða í körfubolta hefur verið frestað, sömuleiðis NBA- deildinni í körfubolta, og fréttir af fjölmörgum fleiri frestunum er að finna á mbl.is/sport. Morgunblaðið/Eggert Hitapylsan Verður allt umstangið á Laugardalsvellinum í vetur til einskis vegna kórónuveirunnar? Þar á Ísland að leika við Rúmeníu 26. mars. Evrópukeppninni 2020 frestað?  Neyðarfundur á þriðjudag  Minnkandi líkur á að Ísland mæti Rúmeníu 26. mars 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2020 Lengjubikar karla A-deild, 2. riðill: KA – Magni............................................... 2:0 Sveinn Margeir Hauksson 35., Brynjar Ingi Bjarnason 76.  Víkingur R. 12, Keflavík 9, Fylkir 7, KA 7, Fram 0, Magni 0. Evrópudeild UEFA 16-liða úrslit, fyrri leikir: Ist. Basaksehir – FC København ........... 1:0  Ragnar Sigurðsson lék ekki með FC Kø- benhavn vegna meiðsla. Eintracht Frankfurt – Basel ................... 0:3 LASK Linz – Manchester Utd................ 0:5 Olympiacos – Wolves ............................... 1:1 Rangers – Leverkusen ............................ 1:3 Wolfsburg – Shakhtar Donetsk .............. 1:2 Inter Mílanó – Getafe ....................... frestað Sevilla – Roma ................................... frestað Meistaradeild N/M-Ameríku 8-liða úrslit, fyrri leikur: New York City – Tigres.......................... 0:1  Guðmundur Þórarinsson var ekki í leik- mannahópi New York City. SheBelieves-bikarinn Leikið í Bandaríkjunum: Spánn – England...................................... 1:0 Alexia Putellas 83. Bandaríkin – Japan ................................. 3:1 Megan Rapinoe 7., Christian Press 26., Lindsay Horan 83. – Mana Iwabuchi 58.  Lokastaðan: Bandaríkin 9, Spánn 6, England 3, Japan 0.  Olísdeild karla Selfoss – Haukar .................................. 25:35 FH – KA................................................ 32:22 Staðan: Valur 20 14 2 4 558:485 30 FH 20 13 2 5 601:535 28 Afturelding 20 12 3 5 545:529 27 Haukar 20 12 3 5 547:524 27 Selfoss 20 12 1 7 618:609 25 ÍR 20 11 2 7 600:559 24 ÍBV 20 11 2 7 587:540 24 Stjarnan 20 6 5 9 531:541 17 Fram 20 7 2 11 479:505 16 KA 20 5 1 14 524:582 11 HK 20 3 0 17 504:592 6 Fjölnir 20 2 1 17 505:598 5 Grill 66 deild kvenna ÍR – Valur U ......................................... 27:29 Staðan: Fram U 19 19 0 0 649:425 38 FH 19 15 1 3 537:413 31 Selfoss 19 14 2 3 460:406 30 Grótta 19 12 1 6 490:447 25 Valur U 20 10 1 9 539:530 21 ÍR 20 10 1 9 520:513 21 ÍBV U 19 9 1 9 466:466 19 Stjarnan U 19 7 1 11 455:504 15 Fjölnir 19 6 2 11 458:511 14 HK U 19 4 2 13 464:555 10 Fylkir 19 3 0 16 384:483 6 Víkingur 19 0 0 19 417:586 0 Svíþjóð Alingsås – IFK Ystad .......................... 33:29  Aron Dagur Pálsson skoraði eitt mark fyrir Alingsås.   Dominos-deild karla Valur – KR ............................................ 81:90 Stjarnan – Haukar ............................... 94:83 Njarðvík – Fjölnir .............................. 117:81 Tindastóll – ÍR...................................... 99:76 Staðan: Stjarnan 21 17 4 1915:1743 34 Keflavík 20 15 5 1802:1612 30 Tindastóll 21 14 7 1829:1727 28 KR 21 14 7 1807:1742 28 Njarðvík 21 13 8 1832:1653 26 Haukar 21 11 10 1834:1799 22 ÍR 21 11 10 1782:1883 22 Grindavik 20 8 12 1698:1750 16 Þór Þ. 20 7 13 1615:1669 14 Valur 21 7 14 1698:1812 14 Þór Ak. 20 5 15 1719:1911 10 Fjölnir 21 2 19 1752:1982 4 1. deild karla Höttur – Skallagrímur ......................... 85:66 Breiðablik – Snæfell........................... 114:69 Staðan: Höttur 22 20 2 1912:1614 40 Hamar 22 19 3 2172:1930 38 Breiðablik 22 18 4 2213:1826 36 Vestri 21 14 7 1875:1699 28 Álftanes 22 11 11 1871:1942 22 Selfoss 21 8 13 1628:1706 16 Skallagrimur 23 3 20 1871:2179 6 Sindri 19 2 17 1538:1766 4 Snæfell 22 2 20 1731:2149 4 NBA-deildin Philadelphia – Detroit...................... 124:106 Atlanta – New York.................. (frl) 131:136 Miami – Charlotte .............................. 98.109 Dallas – Denver .................................. 113:97  Tveimur leikjum var frestað vegna kór- ónuveirunnar og nú hefur deildinni í heild verið frestað um ótiltekinn tíma.   Betsy Hassett, landsleikjahæsta konan í úrvalsdeild kvenna í fót- bolta, skipti um félag í gær og er komin til Stjörnunnar eftir tvö og hálft ár í röðum KR-inga. Hassett, sem kom til KR á miðju sumri 2017, hefur leikið 120 landsleiki fyrir Nýja-Sjáland, síðast gegn Noregi í þessari viku, en hún hefur leikið með þjóð sinni á þremur heims- meistaramótum og einum Ólympíu- leikum. Hassett, sem er 29 ára miðjumaður, hefur leikið 38 leiki með KR í efstu deild og skorað 3 mörk. Ein þrautreynd til Stjörnunnar Morgunblaðið/Hari Stjarnan Betsy Hassett flytur úr Vesturbænum í Garðabæinn. Ólympíueldurinn 2020 var tendr- aður á hefðbundinn hátt í Ólympíu í Grikklandi í gær, 134 dögum áður en hann verður notaður til að kveikja í ólympíukyndlinum í Tókýó 24. júlí þegar ÓL 2020 eiga að hefjast. Anna Korakaki, grískur ólympíumeistari í skotfimi frá 2016, hljóp fyrsta spölinn og varð fyrsta konan í sögunni til að vera fyrsti kyndilberinn. Hlaupið verður með eldinn um Grikkland til 19. mars en þá verður flogið með hann frá Aþenu til Tókýó og hlaupið með hann um allt Japan fram að 24. júlí. Eldurinn lagður af stað til Tókýó AFP Fyrst Anna Korakaki hleypur af stað með ólympíueldinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.