Morgunblaðið - 13.03.2020, Side 32
Af jörðu er heiti sýningar sem Rósa
Sigrún Jónsdóttir myndlistarkona
opnar í Galleríi Úthverfu á Ísafirði í
dag, föstudag, kl. 17. Hún hefur
sýnt verk sín víða á undanförnum
árum og vinnur nú í nýjum mynd-
verkum með mismunandi litaduft
úr vestfirskum fjöllum og jurtir sem
hún heklar og málar, svo plöntur,
rýmið og jarðlögin verða eitt.
Af jörðu Rósu Sigrúnar
í Galleríi Úthverfu
FÖSTUDAGUR 13. MARS 73. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Verður Evrópukeppni karla í fót-
bolta sem fram á að fara í sumar
frestað um eitt ár? Verður umspils-
leik Íslands og Rúmeníu sem fram á
að fara á Laugardalsvellinum 26.
mars líka frestað? Þetta skýrist
væntanlega á neyðarfundi sem
UEFA hefur boðað með öllum aðild-
arþjóðum sínum á þriðjudaginn
kemur. »26
Verður bæði EM og
umspilinu frestað?
ÍÞRÓTTIR MENNING
Myndlistarkonan
Steinunn Gunn-
laugsdóttir opn-
ar einkasýn-
inguna
Glópagull –
Þjóðsaga í sýn-
ingarrýminu
Midpunkti í
Hamraborg í
Kópavogi í dag kl. 17. Steinunn er
mörgum kunn fyrir gjörninga og
höggmyndir, til að mynda Litlu
hafpulsuna sem stóð í Reykja-
víkurtjörn veturinn 2018. Verk
Steinunnar eru iðulega gáska-
blandin og gagnrýnin á sam-
félagið. Hún vinnur í ýmsa miðla,
gerir skúlptúra, myndbönd, hljóð-
verk, teikningar, gjörninga og inn-
setningar.
Glópagull og þjóðsaga
Steinunnar í Midpunkt
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Aðalbjörg Guðmundsdóttir verður
100 ára á sunnudag og er bjartsýn á
framhaldið sem fyrr. „Kórónuveiran
er dálítið erfið fyrir okkur Íslend-
inga og aðra en við verðum að hrista
hana af okkur,“ segir hún.
Dagarnir eru í frekar föstum
skorðum hjá Aðalbjörgu, sem býr í
séríbúð í húsi hjónanna Elínar
Rögnvaldsdóttur, dóttur sinnar, og
Björgvins Guðmundssonar, flutti
þangað með eiginmanninum Rögn-
valdi Jóhanni Sæmundssyni 2006, en
hann lést 2016. Þau eiga þrjú börn,
Sæmund, Elínu og Margréti, átta
barnabörn, 20 barnabarnabörn og
von er á fyrsta langalangömmu-
barninu. „Við mæðgurnar fáum okk-
ur kaffi öðrum megin við klukkan tíu
og svo les ég mikið. Núna er ég að
lesa bókina Hornauga eftir Ásdísi
Höllu Bragadóttur,“ segir hún.
Foreldrar Aðalbjargar voru Guð-
mundur Stefánsson og Margrét Sig-
geirsdóttir. Hún fæddist á Harðbak
á Melrakkasléttu og ólst þar upp,
var þriðja í röðinni af sex systrum,
en auk þess áttu þær yngri fóstur-
bróður. „Okkur fannst lífið ganga
vel,“ segir hún. „Það var tvíbýli,
margir krakkar, og við gátum dans-
að þegar okkur langaði en gamall
maður, Sigurður Jónsson, spilaði á
harmoniku auk þess sem hann skar
út hluti fyrir okkur, kommóðu handa
mér og skatthol handa systur
minni.“
Ekkert skorti í sveitinni, að sögn
Aðalbjargar. „Fólkið í nágrenninu
sagði að ekki væri erfitt fyrir Slétt-
unga að lifa, því ef þeir legðust á
grúfu á vatnsbakkann synti silung-
urinn upp í þá og ef þeir legðust á
bakið verpti fuglinn ofan í þá.
Hlunnindin voru svo mikil.“
Þegar Aðalbjörg var 17 ára fór
hún í Kennaraskólann í Reykjavík,
sótti sér síðar viðbótarmenntun og
kenndi víða í rúmlega 40 ár. „Ung
kennslukona úr Núpasveit kom til
þess að vera prófdómari hjá okkur,
mér leist vel á hana og uppástóð að
ég ætlaði að verða kennari. Mér
fannst það alltaf skemmtilegt starf.“
Mætir reglulega á fundi
Félagsmálin hafa alla tíð verið Að-
albjörgu hugleikin. Hún var meðal
annars formaður Ungmennafélags-
ins Austra á Raufarhöfn, gæslumað-
ur barnastúkunnar Norðurljóssins, í
stjórn Þingeyingafélagsins í Reykja-
vík og svo mætti lengi telja. Hún er
heiðursfélagi Soroptimistaklúbbs
Reykjavíkur og sækir fundi reglu-
lega, síðast í liðinni viku. „Margrét,
dóttir mín, spurði mig þá hvort ég
ætlaði ekki að segja eitthvað svo ég
gerði það, en það var nú ekki merki-
legt.“
Aðalbjörg hefur farið á æskuslóð-
irnar á hverju sumri undanfarin 60
ár, sinnt æðarvarpinu og tekið þátt í
dúnhreinsuninni. „Ég fer bara norð-
ur og leggst á vatnsbakkann,“ segir
hún og hlær dátt. Bætir við að engin
breyting verði á í sumar. „Þetta er
skemmtilegt og svo þarf að vinna
þessa vinnu, en Margrét, dóttir mín,
er annars mest í þessu.“
Heilsan hefur alltaf verið góð. „Ég
þakka það hvað ég var mikið úti sem
krakki, að eltast við kindur og hesta.
Maður verður hraustur af því.“
Um helgina ákvað fjölskyldan að
loka á heimsóknir til Aðalbjargar
vegna veirunnar. „Ég er í eins konar
sóttkví og við söfnum fólki ekki sam-
an vegna veirunnar en höldum bara
upp á afmælið næsta ár.“
Ljósmynd/Hrólfur Einarsson
Á Harðbak Aðalbjörg Guðmundsdóttir sinnir æðarvarpinu og tekur þátt í dúnhreinsuninni á hverju sumri.
Sæld við vatnsbakkann
Aðalbjörg Guðmundsdóttir 100 ára og áhyggjulaus
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,-
L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
GOLF model 2945
L 216 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
KIPLING model 3088
L 214 cm Áklæði ct. 70 Verð 345.000,-
L 180cm Áklæði ct. 70 Verð 325.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-