Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 10

Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.innlifun.is BAKSVIÐ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það er á tímum sem þessum sem kirkjan stendur vaktina og sannar hlutverk sitt í samfélaginu. Þegar á reynir er þetta kjölfestan í sam- félaginu,“ segir Pétur Georg Mark- an, samskiptastjóri Biskupsstofu. Vísar hann í máli sínu til hlutverks guðsþjónustu á tímum kórónu- veirunnar. Segir hann að undanförnum vik- um svipi að mörgu leyti til tímabils- ins í kringum bankahrunið ár- ið 2008. Ein- staklingar hafa undanfarnar vik- ur sótt í auknum mæli í þjónustu kirkjunnar. „Fólk leitar í það sem skiptir máli á svona tímum. Það skiptir ein- staklinga máli að vera í sambandi við andlegu veruna í sér og rækta hana. Þannig byggjum við upp sálarlífið sem gerir okkur kleift að taka á erfiðum tímum. Við fundum þetta sterkt í kringum hrunárin og núna er eftirspurnin sams konar,“ segir Pétur og bætir við að kirkjan sé að sanna hlutverk sitt enn eina ferðina. „Þetta segir okkur að þegar hismið blæs burt er kjarninn það sem fólk sækir í,“ segir Pétur. Margar uppákomur á döfinni Sökum kórónuveirunnar verður guðsþjónusta með breyttu sniði um páskana. Víða verður boðið upp á netstreymi, en að auki verður þétt dagskrá. Áfram verða kirkjuklukk- urnar látnar hringja í hádeginu, heimahelgistund fer fram á sunnu- dögum ásamt því sem nýr þáttur verður sýndur á RÚV á föstudaginn langa svo eitthvað sé nefnt. „Al- mennt fara bænastundirnar fram heima hjá hverjum og einum. Það er grunnlínan. Við höfum látið hringja kirkjuklukkum landsins í hádeginu til að bera upp von og birtu. Þær segja okkur að þetta ástand er tíma- bundið og við munum sigrast á því. Í kjölfarið fer fram sameiginleg bænastund,“ segir Pétur og bætir við að víða verði boðið upp á net- streymi frá bænahaldi. Meðal þess sem mun standa almenningi til boða er messa í Dómkirkjunni, en að auki verður helgistund á sunnudögum áfram á sínum stað. „Helgistundinni hefur verið streymt á mbl.is og Vísi. Stundin er þrenns konar; bænir, hugleiðingar og tónlist. Fólk getur á þennan máta verið með í gegnum streymið og fengið knappara form en messan er. Með þessu er hægt að upplifa þetta og virkja andann,“ segir Pétur. Að hans sögn verða ein- staka kirkjur þar að auki áfram með netstreymi yfir hátíðarnar. Fólk ætti þar af leiðandi að hafa greiðan aðgang að slíku efni. Spurður hvort ásókn í sálfræði- og félagsþjónustu á vegum Biskups- stofu hafi aukist nú á tímum kór- ónuveirunnar kveður Pétur já við. Þjónustan sé jafnframt aðgengileg öllum að kostnaðarlausu. „Fólk nýt- ir sér þessa þjónustu umtalsvert meira en venjulega. Við finnum greinilega að fólk leitar í kirkjuna,“ segir Pétur, sem kveðst vona að all- ir sem á þurfi að halda leiti til kirkj- unnar. Vilja færa kirkjuna til fólksins Til að auka aðgengi sem mest hefur kirkjan sett af stað verkefni sem ber yfirskriftina „Kirkjan til fólksins“. Undir verkefnið falla allar uppákomur á vegum kirkjunnar. „Þetta er allt verkefni sem ber heitið „Kirkjan til fólksins“. Við vilj- um draga kirkjuna til fólksins.“ Spurður hvort til greina komi að bæta við fleiri starfsmönnum segir Pétur svo vera. „Það er alltaf hægt að panta tíma til að nálgast félags- og sálfræðinga. Við höfum fram til þessa verið vel mönnuð, en hver dagur kemur með nýjar áskoranir og ef það þarf að bæta í þá gerum við það til að þjónusta fólkið,“ segir Pétur. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Neskirkja Guðsþjónusta verður með breyttu sniði um páskana sökum smithættu af völdum kórónuveiru. Fólk leitar í kjölfestu  Kirkjan sannar hlutverk sitt í samfélaginu á tímum kór- ónuveiru  Guðsþjónusta með breyttu sniði um páskana Guðsþjónusta » Sálfræðiþjónusta kirkjunnar stendur öllum til boða að kostnaðarlausu. » Hægt er að nálgast þjónustu kirkjunnar á kirkjan.is. » Passíusálmarnir verða lesnir frá Skálholti í heild sinni um páskana. Streymt verður frá upplestrinum á kirkjan.is. » Kirkjan birtir eina hugvekju á dag í Morgunblaðinu. Pétur Georg Markan Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við sjáum 30% til 40% aukningu milli ára hjá okkur,“ segir Haraldur A. Bjarnason, framkvæmastjóri Auðkennis, um fjölda þeirra sem nýta sér rafræn skilríki. Segir hann jafnframt að rekja megi aukningu til fjölgunar notenda auk ástands- ins sem skapast hefur sökum kórónuveirunnar. Alls eru nú nær 240 þúsund einstaklingar með rafræn skilríki hér á landi. Þá benda tölur Auð- kennis til þess að um 90% einstak- linga á aldursbilinu 25 ára til 74 ára nýti sér þjónustu fyrirtækisins. Að sögn Haraldar hefur núver- andi ástand orðið til þess að ein- staklingar reyni eftir fremsta megni að nýta sér stafræna þjón- ustu. 400% aukning hjá Aha.is „Þetta er auðvitað mjög mikið notað og sífellt fleiri sem nýta sér þjónustuna. Kórónuveiran og þró- unin síðustu ár hefur orðið til þess að stafræn þjónusta eru miklu meira notuð,“ segir Haraldur, en rafræn skilríki geta nýst þegar þjónusta er sótt á netinu. Slíkt hef- ur af augljósum ástæðum notið aukinna vinsælda undanfarnar vik- ur, en til að mynda jukust pantanir hjá heimsendingarþjónustu Aha.is um 400% þegar kórónuveiran fór að gera vart við sig. Mikill vöxtur síðustu ár Að sögn Haraldar er aukin netverslun af hinu góða í árferði sem þessu. „Fólk getur nýtt skil- ríkin og þarf þar af leiðandi ekki að mæta á staðinn. Við hvetjum fólk jafnframt til að nýta skilríkin eins og mögulegt er,“ segir Haraldur. Nú eru liðin tuttugu ár frá því að Auðkenni var sett á laggirnar. Óhætt er að segja að fyrirtækið hafi verið í stöðugum vexti frá þeim tíma. Fyrst með svokallaða auðkennis- lykla fyrir debetkort og nú síðustu ár með rafræn skilríki fyrir farsíma. „Skilríki í síma hafa staðið til boða frá árinu 2013 en þar áður fylgdi þetta debetkortum. Við erum búnir að vera mjög lengi í þessu þannig að þetta hefur verið verkefni til lengri tíma,“ segir Haraldur. Fólk haldi sig heima Nú síðustu vikur og mánuði hefur borið á því að einstaklingar hafi þurft að láta endurnýja rafræn skilríki hjá sér. Segir Haraldur að það sé sökum þess að gildistími raf- rænna skilríkja sé fimm ár. „Þetta gildir í fimm ár þannig að þeir sem ekki hafa skipt um síma- númer síðustu ár geta farið inn á mitt auðkenni á netinu og endur- nýjað,“ segir Haraldur og bætir við að hann hvetji fólk eindregið til að tryggja að skilríkin séu í gildi. Að öðrum kosti þurfi fólk að mæta í persónu til að endurnýja. „Ef þú rennur út þarftu að fara í gegnum ferlið upp á nýtt. Það þarf helst að mæta í bankaútibú en þó erum við einnig búin að setja upp aðstöðu í Kringlunni. Við viljum ekki að það safnist saman hópur og af þeim sök- um hvetjum við fólk til að panta tíma hjá viðskiptabankanum sínum og ganga frá þessu þar,“ segir Har- aldur. Þá ítrekar hann að best sé fyrir fólk að ganga frá þessu á netinu. Þannig sé það jafnframt öruggt ef til sóttkvíar eða einangrunar kemur. Stóraukin notkun á rafræn- um skilríkjum  30-40% aukning hjá Auðkenni á milli ára Eldur kom upp í klæðningu tanks við malbikunarstöðina Höfða á ell- efta tímanum í gærmorgun. Bik er geymt við 120 gráða hita í tönk- unum svo það haldist fljótandi en óljóst er hvað varð til þess að eldur kom upp í klæðningunni. Slökkvistarfi lauk fimm tímum seinna eða á fjórða tímanum í gær. Mikill viðbúnaður var hjá slökkviliðinu vegna eldsins og var allt tiltækt slökkvilið, sem var í gær á níu stöðum á höfuðborgarsvæð- inu, kallað út. Í verkefnið voru not- aðir fimm dælubílar og tveir körfu- bílar. Rifu slökkviliðsmenn nokkuð af klæðningu utan af tanknum til þess að komast að eldinum og slökkva glóðir. Annasamt var hjá slökkvilið- inu í gær og þurfti að kalla út auka- mannskap til að sinna öðrum verk- efnum á meðan ráðið var niður- lögum eldsins. Upptök elds við malbikunarstöð óljós Fólki sem breytt hefur venjum sín- um til að forðast kórónuveirusmit hefur fjölgað á milli þriggja kann- ana Þjóðarpúls Gallup sem gerðar voru 13.-16. mars, 20.-26. mars og svo 27.mars til 2. apríl. Í fyrstu könnuninni af þessum þremur sögðust 47,9% hafa breytt venjum sínum frekar mikið eða mjög mik- ið. Það höfðu 75,8% gert í annarri könnuninni og 86,1% í þeirri þriðju. Fólk treystir almannavörnum og heilbrigðisyfirvöldum mjög vel til að takast á við kórónuveirusmitið. Þannig treysti meira en helmingur svarenda (51%) þessum aðilum full- komlega, 34% treystu þeim mjög vel og 11% frekar vel. Þá treystir fólk almennt umfjöll- un fjölmiðla um kórónuveirufarald- urinn. Traustið hefur heldur vaxið eftir því sem á hefur liðið. Þannig treystu 76,3% umfjölluninni full- komlega, mjög vel eða frekar vel. Í könnuninni 27. mars til 2. apríl var úrtakið 1.496 og svaraði 821 eða 55,2%. gudni@mbl.is Fjölmiðlaumfjöll- unin nýtur trausts

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.