Morgunblaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.04.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020 Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00 Mikið úrval af KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM fyrir allar gerðir bíla Tilkynnt hefur verið hvaða sex bækur keppa um al- þjóðlegu Booker-verðlaunin, hin virtu verðlaun sem veitt eru fyrir framúrskarandi skáldverk sem þýtt er á ensku og gefið út á Bretlandseyjum. Fimm konur eru til- nefndar og einn karl. Þekktasti höfundurinn er hinn þýski Daniel Kehl- mann en saga hans, Tyll, hefur selst í yfir 600.000 ein- tökum í heimalandinu. Japanski höfundurinn Yoko Ogawa er tilnefnd fyrir The Memory Police; hin hol- lenska Marieke Lucas Rijneveld fyrir The Discomfort of Evening, sem var metsölubók í heimalandi hennar; hin mexíkóska Fernanda Melchor er tilnefnd fyrir Hurri- cane Season sem fjallar um stúlku sem er sögð norn og myrt; Shokoofeh Azar sem fædd er í Íran er tilnefnd fyrir The Enlightenment of the Green- gage Tree; og Gabriela Cabezón Cámara frá Argentínu er tilnefnd fyrir The Adventures of China Iron. Tilkynntur verður 19. maí hver hreppir verðlanin og skiptist verðlaunaféð, 50 þúsund pund, milli höfundar og þýð- anda. Stuttlisti alþjóðlega „Bookersins“ kynntur Marieke Lucas Rijneveld Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari bendir lesendum meðal annars á áhugavert streymi frá leiðsögn um sýningar, splunkunýja bók að lesa og sjónvarpsþætti sem ekki má missa af. „Á þessum tímum kemur sér vel að vera í áskrift hjá bókaforlaginu Angústúru – ég fékk nýjustu bók- ina frá þeim, Litla land eftir Gaël Faye, senda heim núna í vik- unni. Hún fjallar um uppvöxt Gaël í Búrúndí á tím- um þjóðarmorðs- ins í nágranna- ríkinu Rúanda. Ég er reyndar ekki búin með bókina ennþá, en hún lofar mjög góðu. Ég hef tekið eftir því að fólk er duglegt að nota göngustíga borgar- innar, enda er nauðsynlegt að hreyfa sig daglega. Þá er um að gera að vera með áhugaverðan hlaðvarpsþátt að hlusta á; fyrir fólk sem hefur áhuga á myndlist get ég mælt með Hyperallergic Podcast. Í nýjustu þáttunum hefur Hrag Vartanian verið að fjalla um áhrif COVID-19 á listheiminn. Þó að söfnin séu lokuð er hægt að skoða margar sýningar í söfnunum á ýmsum netviðburðum, t.d. net- leiðsögn sem Oddný Halla Magnús- dóttir og Einar Falur Ingólfsson voru með á dögunum á sýningunni Afrit í Gerðarsafni. Upplýsingar um viðburðina eru inni á heimasíðu safnsins (gerdarsafn.is). Ég er reyndar sjálf að sýna verk á tveimur sýningum sem eru uppi núna, m.a. þessari í Gerðarsafni, en einnig í Hafnarborg á sýningunni Þögult vor. Hafnarborg verður ein- mitt með netleiðsögn um þá sýn- ingu í næstu viku og hægt verður að fylgjast með því á bæði face- booksíðu safnsins og á Youtube. Hvað er svo betra á þessum erf- iðu tímum en að taka hlutunum með húmor? Þar mæli ég eindregið með Daily Show hjá Trevor Noah, þar sem hann kemur með innslög úr íbúðinni sinni í New York, þau má sjá víða á samfélagsmiðlum. Mikið er talað um netflixáhorf þessa dagana, en mig langar að minna fólk á dagskrá RÚV, eins og t.d sænsk-íslensku þættina Ísalög. Þar tekur Stykkishólmur sig mjög vel út sem grænlenskt þorp; eitt sem stendur upp úr í þeim þáttum fyrir mig er hvað það er rosalega gaman að heyra grænlensku talaða. Þá má líka finna Vasulka-áhrifin á RÚV, mjög áhugaverð heimildar- mynd um ævintýralegt lífshlaup Steinu og Woodys Vasulka, sem voru frumkvöðlar í vídeólist. Að lokum, ef menn geta ekki haldið sig frá Netflix þá eru þætt- irnir Ozark að byrja aftur núna um helgina. Laura Linney og Jason Bateman fara á kostum í þessum spennandi og vönduðu þáttum, þar sem fjölskyldulíf og glæpir bland- ast á undraverðan og oftast auð- vitað afar óþægilegan hátt.“ Mælt með í samkomubanni Úr Ozark Spennandi og vandaðir þættir „þar sem fjölskyldulíf og glæpir blandast á undraverðan og oftast auðvitað afar óþægilegan hátt“. Litla land og Vasulka-áhrifin AFP Vasulka-hjónin Katrín mælir með einstakri kvikmyndinni um þau. Húmor Hinn snjalli Trevor Noah talar til áhorfenda úr íbúð sinni. Katrín Elvarsdóttir Starfsmenn menningarstofnana úti um löndin keppast nú við að finna nýjar leiðir og lausnir á því hvernig hægt sé að miðla því efni sem þeir hafa yfir að ráða. Á það jafnt við um söfn sem tónlistarhús en starfsfólk menningarhúsa reynir að fylla upp í það tómarúm sem hefur myndast þegar gestir geta ekki komið að sjá verk eða upplifa flutning. Í fréttum víða að má sjá að streymi af ýmsu tagi á netinu hefur á tímum sam- komubanns átt miklum vinsældum að fagna, og í raun meiri en þeir sem að slíku standa bjuggust við þegar lagt var upp í fyrstu. Hér á landi sýna tölur til að mynda að hátt á sjö- unda þúsund manna hefur fylgst með vefleiðsögn um sýningar, eins og um Afrit í Gerðarsafni, og segir safnafólk leiðsögn um sýningar aldrei hafa verið jafn vel sótta. Samkomubann er þungt högg fyr- ir listamenn sem hafa margir misst tekjumöguleika sína, hvort sem byggt er á sölu verka eða flutningi á tónleikum. Stofnanir hafa víða reynt að ráða listamenn til að koma fram í útsendingum en algengara er þó að listamenn reyni að gleðja fólk og gefa list sína á þessum furðutímum. Dæmi um það er margra klukku- stunda útsending Deutsche Grammophon um síðustu helgi þar sem margir píanóleikarar léku, þar á meðal Víkingur Heiðar Ólafsson, og hafa hundruð þúsunda fylgst með. AFP Nýjar leiðir Sýningarstjórinn Ulf Eriksson sagði á dögunum í beinu streymi á netinu frá sýningu í Moderna Museet í Stokkhólmi á verkum bandaríska listamansins Roberts Rauschenbergs. Hann svaraði jafnframt spurningum. Nýjar leiðir til miðlunar  Streymi frá sýningum og af tónlistarflutningi vinsælt AFP Í beinni Þýski stjörnupíanistinn Igor Levit lék á fimmtudag í Bellevue- forsetahöllinni í Berlín og var píanóleik hans streymt beint á netinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.