Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 16

Morgunblaðið - 06.04.2020, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. APRÍL 2020 hitataekni.is Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is Baðviftur Ein sú hljóðlátasta 17 – 25 dB(A) Bjóðum upp á fjölbreyttan búnað svo sem loftræsingar, hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi sem og stjórnbúnað og stýringar. Anddyris- hitablásarar Bjóðum upp á mikið úrval loftræsikerfa fyrir heimili og fyrirtæki B aráttan við vágestinn Covid-19 er upp á líf og dauða. Við skynjum al- vöruna, allt er breytt. Fyrstu fregnir fjar- lægar en ógnin færðist nær og varð áþreifanlegri. Á bak við þessar tölur sem við heyrum eru ástvinir í sorg. Syrgjandi fólk sem kveður sína nán- ustu. Kveðjustundir við aðstæður sem fyrir fáum vikum hefðu þótt fjarstæðukenndar. Nú erum við ekki lengur lítil eyja langt í burtu frá veirunni skæðu. Fyrstu andlátin af völdum veirunnar hér á landi staðreynd sem ekki verður umflúin. Dagar ótta og sigra. Dagar von- brigða og vona. Það eru ýmsar lík- ingarnar notaðar til að reyna að lýsa ástandi samfélagsins og raunar alls heimsins þessa dagana. Við erum stödd í miðri ánni. Við þurfum öll að leggjast á árarnar. Öldurót. Við þurfum að komast í gegnum skaflinn. Kröftugar lýsingar og sé fyrir mér sameiginlegt átak, við mætum með skóflurnar, mokum og ýtum. En þannig er ekki raunveruleikinn. Mörg finna fyrir doða. Depurð læð- ist að. Kvíði læsir klóm. Það er von að mörgum fallist hendur. Finna ekki skóflu, eiga hana ekki til eða eru of máttfarin til að moka. En svo eru það þau sem láta ekki skófluna duga heldur grípa til stórtækra vinnuvéla og eru eins og jarð- ýtur í þessum nýja veruleika. Það eru engin ný sannindi að við erum mörg og margvísleg. Undar- legt ástand skerpir á andstæðum. Við þurfum að sýna því skilning og kærleika. Viður- kennum vanmátt, fögnum dugnaði og frumkvæði. Þökkum fyrir að við erum ólík, þarfir okkar mis- munandi og viðbrögð alls konar. Það er svo margt breytt. Þetta gerist svo hratt. Ég hef heyrt þó nokkra tala um undrun á eig- in viðbrögðum enda um að ræða ástand án fordæma. Við erum hvött til að bíða, standa af okkur storminn. Það er ekki val allra að bíða heldur er biðin hjá mörgum það eina í stöðunni. Lamandi tilfinn- ing sem býður ekki upp á neitt ann- að en aðgerðaleysi. Það er einfald- lega þannig að það er mikilvægt að stór hluti þjóðarinnar haldi sig heima. Já, og haldi að sér höndum. Stórir hópar eru skikkaðir til að halda sig heima. Einangrun er það eina sem er í boði fyrir smituð. Þúsundir í sóttkví, ým- ist að tilmælum sóttvarnalæknis eða sjálfskipaðri. Miklu fleiri í heimsóknabanni. Fólk á stofnunum sem hefur ekkert val. Gríðarlegt vinnuálag er önnur birtingarmynd ástandsins. Aðgerða- leysi er aldeilis ekki í boði fyrir starfsfólk heilbrigðisþjónustu og almannavarna. Ábyrgð stjórnvalda er gríðarleg og þau sem eru við stjórnvölinn þurfa dag- lega að taka stórar og afdrifaríkar ákvarðanir. Blessunarlega hefur ríkisstjórnin tekið þá ákvörðun að fylgja ráð- um okkar færustu sér- fræðinga; þríeykisins okkar farsæla Ölmu, Reynis og Þórólfs auk fjölda fólks sem mikið mæðir á hvern einasta dag meðan faraldurinn gengur yfir. Við sem ekki erum í framlínunni getum hins vegar beðið. Beðið fyrir þeim, verkefnum daganna og öllum sem þau sinna. Jesús spurði ekki: Getið þið að- eins beðið? Hann sagði einfaldlega: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða (Matt. 7.7). Það er ekkert hik í þessum orðum. Á óvissutímum er eitthvað hress- andi við þessa hvatningu Jesú. Við eigum að biðja, leita og knýja á! Við getum beðið um lækningu, skyn- semi, þolinmæði og þrautseigju. Þegar við finnum vanmátt í að- stæðum sem eru framandi og flókn- ar þurfum við að leita nýrra leiða. Við þurfum að knýja á hjá leiðtog- um heimsins og hvetja til samstöðu sem aldrei fyrr. Bænir eru margs konar. Við get- um kvartað við Guð yfir erfiðleikum, beðið um huggun og styrk. Við get- um þakkað og lofað það sem vel hef- ur tekist. Við getum beðið um miskunn. Bænir í gegnum aldir og árþúsund hafa fylgt mannkyninu í gegnum marga skaflana, hamfarir, en líka hátíðir og hversdagsleika. Í vanmætti getur hugsunin orðið áleitin að ekkert sé hægt að gera. Þá er gott að staldra við. Jú, við getum beðið. Beðið aðeins. Beðið án afláts. Við vitum að vandinn leysist ekki á örskotsstund, við stöndum frammi fyrir erfiðum tímum. Um leið og við grátum og syrgjum er mikilvægt að geta tjáð þakklæti og traust. Bænin hefur reynst mikil- vægt verkfæri bæði í góðæri og hall- æri til þess að tengja okkur við Guð. Við megum kvarta og kveina, þurf- um að geta gert það. Við getum þakkað fyrir það fallega og góða sem við finnum í samstöðu og samhygð. Eftir því sem ástandið þyngist og þrengir meira að reynir enn frekar á þá þætti. Biðjum að kærleikur og virðing verði leiðarljósið. Við skulum biðja Guð að miskunna sig yfir okkur hvert og eitt og heimsbyggðina alla. Þjóðkirkjan fetar sig áfram eins og samfélagið allt í breyttum að- stæðum, í breyttum heimi. Kirkju- starfið snýst að stórum hluta um samfélag, það að koma saman. Hittast, deila gleði og sorg. Syngja, lesa, tala. Biðja saman. Nú er kallað eftir nýrri nálgun og margar frum- legar hugmyndir hafa komið fram og sumum þeirra hrint í framkvæmd. Fjölmiðlar, samfélagsmiðlar og gamli góði síminn eru tæki sem hafa komið sér vel. Við skulum bíða og vona. Við skul- um halda áfram að biðja. Bíðum von- góð eftir vorinu. Biðjum fyrir lækn- ingu og huggun í hrelldum heimi. Finnum okkar leið. Getum við aðeins beðið? Kirkjan til fólksins Geturðu aðeins beðið? Hugvekja Sigrún Margrétar Óskarsdóttir Höfundur er fangaprestur. Viðurkennum vanmátt, fögn- um dugnaði og frumkvæði. Þökkum fyrir að við erum ólík, þarfir okkar mismunandi og viðbrögð alls konar. Sigrún Margrétar Óskarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.