Austri


Austri - 12.12.1996, Blaðsíða 8

Austri - 12.12.1996, Blaðsíða 8
8 AUSTRI Jólin 1996. Myndlist - reiðlist Myndlistar- og hestamaðurinn Pétur Behrens hefur verið búsett- ur á Höskuldsstöðum í Breiðdal í á 11. ár ásamt konu sinni Mari- ettu Maissen. Pétur er ættaður frá Norður-Þýskalandi, nálægt Ham- borg. Hann kom fyrst til íslands árið 1962, en það var áhugi á ís- lenska hestinum sem varð þess valdandi. Hann hafði kynnst þess- um skepnum hjá nágrönnum sín- um. „Það er svo hjá mörgu fólki að það vill sjá þetta land. Þessum hesti fylgja alltaf sögur, það er svo sér- stakt. Sögur og frásagnir af eyju með víðáttu og jökla, villta menn og konur. Þetta hefur alltaf verið svona og hefur geysilegt aðdráttarafl. Um leið og þeir fyrstu fóru og komu til baka með frásagnir af rosalegum ævintýmm sem enginn getur upplif- að í Mið-Evrópu, þá varð þetta mjög spennandi. Enda er þetta hestahald hér dálítið sérstakt. Svo kom ég og fór að vinna á bóndabæ. Þá var bara að ákveða hvort ég vildi búa í stórborg, en það fannst mér einum of afmörkuð leið“. Pétur hafði lokið myndlistamámi í Listaháskólanum í Berlín þegar hann kom hingað til lands, en var tvístígandi um hvert næsta skref skyldi vera. „Eg fékk tilboð um að vinna hjá stóru auglýsingafyrirtæki og gerði það um tíma, en flúði þaðan. Flúði bara upp í sveit á íslandi. Ég var þá í tamningum og slíku, en vann á vetuma hjá teiknistofum í Reykjavík. Það var ágætt að geta farið í það. Þá var hestamennskan, tamningar og slíkt, búið að hausti. Þetta er svolítið að breytast núna, en þá var þetta búið í ágústlok. Ég kynntist góðu fólki, presthjón- um, norður í Miðfirði og var eigin- lega með mína tamningastöð þar, þess utan sem ég réði mig til annara. Þá réðu hestamannafélögin oft tamningamenn til sín og höfðu þetta sem þjónustu við sína félagsmenn. Þá vildi enginn vera í þessu. Það þótti nú ekki neitt sniðugt ef einhver vildi bara hlaupa til hrossa. Vera með hrossapest og vilja ekki vinna, vilja bara ríða út. Menn áttu að gera eitthvað af viti og læra eitthvað. Enda var þetta heldur illa borgað miðað við erfiðið og stranga úti- vinnu.“ Pétur hefur ritað talsvert um hestamennsku og skrifaði meðal annars bók 1981 sem hét „Að temja: Hesti og manni bent.“ Þá hefur hann skrifað fjölda greina um þessi mál og þýtt mikinn þýskan doðrant sem nefnist „Hesturinn og reiðmennsk- an“ og kom út 1990. „Þýska bókin er eiginlega um hestinn, bæði ræktun, líkamsbygg- ingu o.fl. Það eru tveir höfundar að þessari bók, fólk sem er alveg á fullu í þessu þarna úti. Þau hafa sennilega fyrst komið á bak íslensk- um hesti fyrir 1960. Það var mikil vinna að þýða þessa bók. í sambandi við fagmálið, þá er nánast ekki hægt að þýða neitt beint. Það er fagmál á íslandi og fagmál í Þýskalandi. Sumt er hægt að segja í fáum orðum á þýsku, en þarf langt mál á íslensku og öfugt. Þetta var ægileg vinna. Bókina mína skrifaði ég að mestu þegar ég lá á spítala og lét spengja bakið. Þá var ég búinn að eyðileggja það á vitlausri beitingu og harðri vinnu, tamningum og þess háttar. Það gleymdist að segja mér sem unglingi, eins og fleirum, hvemig á að beita bakinu þegar maður puðar. Ég lærði það fyrst þegar ég var í endurhæfingu. En ég þurfti að liggja á bakinu í þrjá mánuði og eitthvað varð ég að gera. Það var svo skrýtið að ég gat enn- þá farið á hestbak, en var orðinn svo slæmur að ég gat varla setið í bíl nema mjög stutt og ekki staðið al- mennilega. En ég gat ekki setið á einhverjum höstum truntum, það urðu að vera góðgengir hestar. Ég sá einu sinni mynd um þjálfun barna og unglinga sem voru með fötlun. Settir voru punktar á bert bak þannig að maður sá hvemig hrygg- súlan og mjaðmagrindin hreyfast í venjulegri göngu hjá heilbrigðu bami. Svo vom böm sem voru fötl- uð og þau vom í alls konar græjum, mjög dýrum og flóknum tækjum, sem gátu hermt eftir þessum hreyf- ingum. Það var allt gott með það og bömin prófuðu þetta, en þeim fannst óskaplega leiðinlegt að vera í þess- um vélum. Svo komu íslenskir hest- ar, sérstaklega vegna þess að þeir eru lágvaxnir. Hreyfingar baksins hjá fötluðu bömunum voru mynd- aðar aftur þegar þau vom á baki. Þá komu sömu hreyfingar í bakið eins og hjá manni sem gengur frjáls og sjálfur, sama hreyfingamynst- ur. Þetta er eitt- hvað sem bamið getur ekki gert, en kemur í gegnum hestinn. Þannig geta þau þjálfað vöðva sem þau gætu ekki á nokkum hátt gert nema í þessum vélum. Fyrir fjórum ámm kom hing- að kona frá Sviss. Maðurinn hennar er sjúkraþjálfari og hún er aðstoðar- maður hans. Þau vom að leita að tveimur hestum, sem var mjög spennandi, því hún leitaði að hrossum með ákveðnar hreyf- ingar. Þetta vom góð hross, engar þægar truntur, heldur góð reið- hross. Hún valdi tvo hesta og var með sérstaka fötlun í huga. Þau vom með svona hross úti, en starf- semin var að verða mjög umfangs- mikil hjá þeim og þau vantaði tvo hesta í viðbót. Álagið var orðið of mikið á þá sem voru fyrir. Annar hesturinn var ekki fyrir hvem sem er, heldur viljugur og dálítill karl, góður reiðhestur. Hann er í þessu og þau ríða út þess á milli. Hestunum er haldið vel við. Það er ekki eins og stundum er haldið að þetta séu göm- ul, þreytt og dauf hross. Þetta er mjög merkilegt hlutverk fyrir hest- inn og þetta er stundað um alla Mið- Evrópu." Henta íslenskir hestar betur en aðrir til þjálfunar fatlaðra, sökum lundarfarsins? „Já, já, það er engin spurning. Þarna þarf auðvitað að velja ná- kvæmlega. Hestar geta verið frekir og hvemig sem er, það em alls kon- ar útgáfur til. Ég þekki voðalega lít- ið til annara hestakynja, en það fólk sem ég þekki og temur önnur hross og þekkir mikið til þeirra, segir að íslenski hesturinn sé svo skynsamur og taki hlutum af yfirvegun. Þegar rétt er farið að, em þeir allir jákvæð- ir, ekkert rugl. Þetta kemur í og með af uppeldinu. Það versta sem menn gera, er að ala upp folöld í þrengslum og þar sem þau hafa eng- an félagsskap. Þau verða að vera í félagsskap við ung og eldri hross til að læra hestasiði. Hestar sem ekki hafa lært hestasiði eru eins og vit- laust uppalin einbimi. Þeir kunna kannski að opna hlið og geta brot- ist út, voða sniðugir, en haga sér að öðru leyti, bæði gagnvart öðrum hestum og mönnum, eins og bján- ar. T.d. eru hryssur, sem eru aldar svona upp, oft með afbrigðilega kynhegðun og em stundum lamdar sundur og saman þegar stóðhestur er í stóði. Þær em bara „ga ga“. Það sama á við um stóðhest sem elst upp við algjöra einangmn. Kosturinn hér er sá að hestar al- ast yfirleitt upp í stóði og læra alla goggunarröð, koma ekki nálægt eldri hryssum, læra að láta þetta eldra í friði og vera ekki með neina vitleysu. Þeir læra af reynslunni. Þaðan kemur það líka að átta sig á því að maðurinn ræður og að bera virðingu fyrir honum þó að það sé lítill maður.“ Hvemig stóð á því að þið hjónin fluttust hingað í Breiðdalinn? „Ríkarður Valtingojer, sem var fluttur til Stöðvarfjarðar, heimsótti okkur í Mosfellssveit, þar sem við bjuggum þá og sagði okkur frá því hvað hann var að gera. Og hann sagði okkur frá Höskuldsstöðum. Þannig að þetta er allt Rikka að kenna. En við voram áður farin að hugsa okkur til hreyfings. Þegar að fólk, hvort sem það em útlendingar eða ekki, ákveður að flytja út í sveit verður að hafa eitt- hvað takmark, hvort sem það er hrossarækt eða hótelrekstur. Það verður að vera eitthvað sem maður telur að sé betra að gera í sveit á fs- landi en annars staðar. Annað geng- ur ekki. Finnst þér það eiga vel saman að vera listamaður og hestabóndi? ,Já. Maður er að vísu svolítið tví- klofinn vegna þess að sólahringur- inn er nú bara eins og hann er, ekki alveg nógu langur. Sovétmenn þóttust nú hafa fund- ið allt upp, alla hluti. T.d. taldi ein- hver vísindamaður sig hafa fundið upp úr sem náði 36 tímum á sólar- hring. En ég hef t.d. ekki haldið sýn- ingu í nokkur ár, alltaf langað til þess, en svo var alltaf eitthvað sem var svo aðkallandi í sambandi við búskapinn. En nú á að reyna næsta vor. Maður ætti nú samt helst að vera í hvom tveggja alltaf. Svo emm við líka í því að þýða hestablaðið Eiðfaxa. Það kemur út á þýsku og ensku og við emm með þýsku útgáfuna. Það er reyndar bara fjómm sinnum á ári, en það er alltaf talsverð töm. Ég hef málað töluvert af hestum, en er mjög lítið í því í bili. Nú er ég að mála gamalt verkstæði, fer til Sigursteins á Breiðdalsvík. Þetta er tvískipt, annars vegar þessi „módem“ hluti þar sem verið er að gera við bíla og hins vegar smiðja, gömul jámsmiðja. Þar er ég búinn að mála einar sex myndir og ætla að halda áfram. Þetta er ágæt hvíld frá öllum fjöllum og slíku. Þessar myndir verða ömgglega með á sýn- ingunni. Ég hélt síðast sýningu 1990, þá í Reykjavík. Ég hef líka sýnt héma. Ég vildi sýna mínum nýju sveimng- um og grönnum hvað við vomm að fást við. En það er meira en að segja það að halda sýningu. Það liggur mikil vinna í kringum það og maður getur ekki gert ráð fyrir að fá þenn- an vinnutíma borgaðan. Eitthvað er alltaf keypt, en dálítið misræmi er milli þess sem þarf að leggja fram og þess sem kemur inn. Á þessum litlu stöðum verður það alltaf þannig. Þegar maður sýnir, þá fer maður suður.“ Finnst þér þú ekki tapa neinu sem listamaður við að setjast að hér? Ég vil nú ekki trúa því. Aftur á móti vildi ég oftar sjá sýningar fyrir sunnan. Eitthvað kemur að utan og maður missir alltaf af einhverju. Ég reyni að vera með sem mest af bók- um og tímaritum, en það væri betra að vera nær þessu. Alltaf þegar ég hef tækifæri til þess að fara út þá rúntar maður milli safna og gallería alveg eins og mað- ur getur. Það er alveg nauðsynlegt. Það er nú bara eitt sem má segja að séu hreint og beint svik hjá ís- lenska sjónvarpinu. Þeir voru í fyrravetur með listamann sem var í leiðinni gagnrýnandi og hann fór með einhverjum frá sjónvarpinu inn á sýningar. Þetta var svo sem ágætt, en í raun og vem þyrfti ekkert annað en að sýna fimm mínútur og biðja kvikmyndatökumanninn að vera Pétur og stolt búsins, stóöhesturinn Hrannar. Austram. sbb íslenski hesturinn dró Pétur hingaö til íslands.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.