Austri


Austri - 12.12.1996, Síða 16

Austri - 12.12.1996, Síða 16
16 AUSTRI Jólin 1996 Stefán Guðmundsson frá Dratthalastöðum Með rekuna eina að vopni Stefán Guðmundsson, fyrrverandi bóndi á Dratthalastöðum, nú búsettur á Egilsstöð- um, var einn af þeim sem kynntist vegagerð eins og hún fór fram á fyrstu áratugum þessarar aldar, þegar nánast allt var unnið með handafli. Blaðamaður Austra sótti hann heim og fékk hann til að rifja upp minningar frá löngu liðnum dögum. „Vegavinnan byrjaði oftast seint að vorinu og stóð fram á sumarið, eftir því hve miklu fjármagni var veitt í hana hverju sinni. Á þess- um árum var mikið sóst eftir því af mönnum á öllum aldri að komast í þessa vinnu. Tölu- vert var um að bændur væru í vegavinnu. Þeir fóru þá gjaman heim að kvöldi, ef stutt var að fara og komu aftur að morgni. Vegavinnan varð til þess að margur ungur maður komst í skóla eða gat eignast eitthvað, en í þá daga var ekki um aðra vinnu að ræða í sveitum, utan við búskapinn." Stefán segir að vinnan í vegagerðinni hafi verið ákaflega erfið og allt unnið með hand- verkfærum. „Við unnum tíu tíma á dag alla daga vikunn- ar nema sunnudaga og byrjaði vinna klukkan sjö að morgni. Verkum var þannig skipt, að nokkrir voru við að moka möl á upp á hesta- kerrur eða stinga sniddu og kasta henni með kvísl, oft langa leið upp í veginn. Einn eða tveir hlóðu kantana og voru hafðir í því verki lag- virkir menn. Vandaverk þótti að hlaða kanta, viss flái átti að vera á könt- unum og þeir áttu að vera sléttir og líta vel út. Möl var flutt á hesta- kerrum. Var eiim maður með hestana, sá um að koma þeim í haga á kvöldin og að hafa þá til taks að morgni þegar vinna hófst. Oftast voru það unglingar sem fóru með hestana í vinnunni, en fullorðinn maður var á veginum til að hella úr kerrunum og jafna út mölinni og var það kall- að að vera á tippnum. Hestastrákamir voru aft- ur á móti á stundum nefndir kúskar. „ Þetta vor var vinnuflokkurinn töluvert stór. Sveinn Gíslason, bóndi á Ánastöðum, var flokksstjóri og Helga dóttir hans ráðskona. Tjöldin sem við bjuggum í voru úr segli og láku þegar mikið rigndi. í þeim voru rúmbálk- ar, en ekkert gólf og var í hverju tjaldi olíuvél sem við hituðum á kaffi á morgnana, áður en við fórum í vinnuna. Hjá þeim sem bjuggu fjarri heimilum sínum var morgunverðurinn heldur fábreyttur, oft var notast við kex og magarín, sem var leiðigjamt til lengdar. Ann- an mat eldaði ráðskonan í sérstöku eldhús- tjaldi. Hún skammtaði á diskana, síðan fór hver maður með sinn skammt í sitt tjald og borðaði þar. I vegagerðinni var hver dagur öðmm lík- ur. Ég man þó sérstaklega eftir því, að einn daginn komu upp mannsbein þegar við vor- um að moka upp í veginn. Við nánari athugun reyndust beinin vera úr konu og fundust nokkrir munir í gröfinni og var þama um kuml að ræða. Veturinn 1940 til 1941 var Stefán í Eiða- skóla. Þegar skólanum lauk fékk hann vinnu við að gera við skógargirðingu og vann við það fram í júní, eða þar til vegavinnan byrjaði seint júní. Að þessu sinni slógu vegagerðar- Stefán var aðeins 16 ára gamall þegar hann fór fyrst í vegavinnu. Þá vom vegagerðarmenn með tjöld sín neðan við túnið í Hleinargarði. Vorið eftir fékk hann aft- ur vinnu, Þá vom búðir vegagerðarmanna neð- an við Hlégarð, eða við beitarhús frá Ketils- stöðum sem hétu Litlu-Ketilsstaðir og stóðu þar sem Hlégárður er nú. VegagerBarmenn stinga sniddu. Sveinn GuBmundsson frá Hrafnabjörgum tók myndina íkringum 1970. Ekki er vitaS meB vissu hverjir eru þarna aö verki og vceru ábendingar um þaB vel þegnar. Öskum öllum Austfirðingum gleðilegra jóla og þökkum ánægjuleg viðskipti. Stólpi menn tjöldum á Myllumel við Bóndastaðalæk. „Þetta sumar var Ari Bjömsson frá Mýnesi flokksstjóri og Anna Einarsdóttir ráðskona. Þrír sveitungar mínir höfðu einnig ráðið sig hjá Ara. Voru það þeir Óskar Halldórsson, Magnús Ámason og Halldór Ágústsson. Við ------------------------- vorum sjö eða átta fastamenn í flokknum, fyrir utan bílstjóra, en nú var sú breyting orðin á að farið var að keyra mölinni á bflum í veginn. Bílstjórar voru þeir Sigurður Sveinsson á Reyðarfirði og Charles Magnússon frá Eskifirði. Ekki vom bflamir stórir, miðað við það sem nú er, en þó fannst okkur allerfitt að moka á þá möl í tíu tíma á dag. Nokkm eftir að vinna hófst lá við allsherjarverkfalli, því ekki samdist um kaup- ið. Á síðustu stundu var samið og var kaupið hækkað úr níu krónum á dag í fimmtán og við gert okkur grein fyrir hve löng leið þetta var eða þá hitt, að við hittum ekki á bestu leið- ina Alla vega fannst okkur leiðin sporadrjúp og vomm famir að lýjast þegar við loks kom- um að Kirkjubæ. Þegar komið var yfir Lagar- fljót átti ég stutt eftir heim í Dratthalastaði. Þar hvfldum við okkur um stund, síðan var lagt á Stefán Guömundsson frá DratthalastöBum. hélst það út sumarið. Ekki man ég hve lang- ur vegarspotti var lagður þetta sumarið, en oftast voru á þessum árum, meðan notast var við handaflið eitt, lagðir einn til tveir km á ári. Þetta sumarið komst vegurinn lang- leiðina að Selfljóti við Bóndastaðahöfða, en bflfær brú kom þó ekki þar fyrr en nokkm síðar. Hengibrú hafði þá verið á Selfljótinu í nokkur ár, hafði sú brú verið notuð við laxa- stigann í Lagarfossi sem gerður var árið 1931. Þegar vegagerð lauk í Hjaltastaðaþinghá flutti flokkurinn tjöldin upp á Jökuldal. Þar var tjaldað í landi Hauksstaða á móti Gilj- um. „Við keyptum mjólk á Giljum og drógum hana á streng yfir Jökulsá. Við vomm þama um tíma og unnum við að laga veginn og taka af beygjur, en krækt hafði verið fyrir gilin sem víða vom farartálmar þegar veg- urinn var lagður upphaflega. Ræsin hlóðum við úr grjóti og torfi, því þá þekktust ekki steypt rör. Síðan var fyllt upp í skomingana og úr varð beinni og betri vegur. Þegar vinnu lauk á Jökuldalnum fluttum við okkur austur yfir á, út í Heiðarenda og tjölduðum þar við eina beygjuna. Þama vorum við í nokkurn tíma við að keyra möl í veginn, laga ræsi og gera aðrar lagfæringar. Heldur þótti okkur votviðrasamt þennan tíma, tíðar rigningar og þokur. Einnig olli það okkur vanda hve blautt var þar sem tjöldin stóðu. Þegar rigndi láku þau og þá var oft ærinn vandi að þurrka plögg og önnur föt. En Stefán minnist líka góðviðrisdaga og einn er honum sérstaklega minnisstæður. „Einn sunnudag vorum við Óskar tveir í tjöldunum í indælis veðri. Okkur datt í hug að ganga að gamni okkar upp á Heiðarendann og litast um. Það varð okkur ógleymanleg ferð. Utsýnið var stórkostlegt, við okkur blasti Hér- aðið baðað í sólskini með glitrandi vötnum. Og fleira var gert sér til gamans. Seinni part sumarsins var haldin samkoma á Kóreksstöð- um. Þá vom ekki bflamir við hendina ef menn þurftu að bregða sér af bæ. Ekki létum við það á okkur fá, félagamir og ákváðum að fara gangandi út og austur yfir Tunguna og yfir Lagarfljótið á Kirkjubæjarferju. Ekki höfðum hestana og unga fólkið fór á samkomuna og skemmti sér vel“ Þegar verkefninu í Heiðarendanum lauk, flutti vinnuflokkurinn sig að Ærlæk, þar sem hann sameinaðist öðmm vinnuflokki. Þar var unnið í viku eða hálfan mánuð og síðan haldið á Reyðarfjörð. „Þá var farið að líða á haustið og komið að kveðjustund, því tjaldfélagar mínir og sveit- ungar þeir Magnús Ámason og Óskar Hall- dórsson vom á leið suður í kennaraskólann. Á Reyðarfirði tjölduðum við skammt frá kaup- túninu og unnum við að byggja upp veginn inn með fjarðarbotninum. Tíð var ágæt fram eftir hausti, en síðan fór að rigna og verða haustlegt. Eina nóttina gekk í ofsaveður, hvasst með mikilli rigningu. Vöknuðum við um miðja nótt við að tjöldin vom að fjúka ofan af okkur. Við reyndum að bjarga því sem bjargað varð og felldum tjöldin niður á dótið, en flúðum sjálfir inn í bragga þar skammt frá og bjuggum um okkur þar það sem eftir var nætur. Þessa nótt féll aurskriða á veginn mitt á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar svo ófært varð þar á milli. Vegagerðarmönnum var falið það verkefni að moka aumum af veginum og var það lítið tilhlökkunarefni, þar sem einu til- tæku áhöldin vom rekur. Þó fór svo að ég kom aldrei að því verki, því sama dag kom Þórar- inn skólastjóri á Eiðum niður á Reyðarfjörð og bað mig um að vinna við slátmn og matargerð fyrir skólann og tók ég því boði fegins hendi. Læt ég til gamans fylgja hér með umfang slátmnar fyrir skólaheimilið á Eiðum haustið 1941. Slátrað var 90 dilkum frá Halli á Rangá og einnig nokkmm stórgripum. Búið var til slátur og saltað kjöt. Einnig var farið með kjöt til Rafns í Gröf til reykingar, en hangikjötið átti að hafa í í sunnudagsmatinn á komandi vetri. Við vomm 6 sem unnum við þetta verk og var það annasamur tími. Þrátt fyrir að vegavinnan væri erfið og vosbúð fylgdi henni á köflum, á ég mjög góð- ar minningar frá þessum sumrum. Ég á það líka henni að þakka að ég átti þess kost að vera við nám á Eiðum í tvo vetur, sem reynst hefur mér ómetanlegt á lífsleiðinni. AÞ

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.