Fréttablaðið - 06.10.2020, Síða 2
Veður
Breytileg og síðar suðlæg átt, 3-10
m/s með morgninum og víða
rigning, en rofar smám saman til
seinni partinn. Hiti 3 til 10 stig.
SJÁ SÍÐU 12
Busapeysur keyrðar heim að dyrum
Nýnemar í Borgarholtsskóla voru boðnir velkomnir í skólann með rauðri peysu með merki skólans þrátt fyrir að skólahald liggi niðri vegna heims-
faraldursins. Sérfræðingar hafa viðrað áhyggjur af nýnemum þar sem það getur verið erfitt að kynnast samnemendum. Þeir Kristófer Páll Sigurðs-
son og Sólon Björn Hannesson óku um borgina í gær vopnaðir grímum og færðu nýnemum peysur heim að dyrum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
COVID-19 „Engan munar um að gera
þetta á átta til níu daga fresti, en við
trúum því að þetta snarminnki lík-
urnar á smiti,“ segir Stefán Pálsson,
sagnfræðingur og formaður hús-
félagsins í Eskihlíð 10 og 10a þar
sem íbúarnir skipta með sér dag-
legum sóttvörnum á sameigninni.
„Fólki finnst sjálfsagt og eðlilegt
að taka höndum saman um svona
verkefni sem kallar í raun ekki á
neina teljandi vinnu en getur reynst
mjög áhrifaríkt,“ segir Stefán og
veltir fyrir sér hvort þessi mynd-
líking sé yfirleitt nothæf á tímum
kórónaveirunnar.
„Þetta er fjögurra hæða blokk og
lyftulaus svo allir arka um sömu
stigagangana. Þar voru augljós-
lega margir sameiginlegir snerti-
f letir,“ segir Stefán og bætir við
að skömmu eftir að fyrsta bylgja
faraldursins reis hafi fólkið í blokk-
inni farið að ræða saman.
„Þá voru margir komnir í þá
stöðu að vinna að heiman, aðrir í
sjálfskipaðri sóttkví vegna aldurs,
undirliggjandi sjúkdóma eða ann-
ars og einhver spurði hvort hús-
félagið gæti ekki keypt gerileyði
til að þau sem vildu gætu sprittað
í sameigninni.“
Stefán segir að þegar í stað hafi
verið ákveðið að ganga skrefinu
lengra. „Dögunum var skipt niður á
íbúðirnar þannig að hver fékk sinn
dag og þannig farið með sprautu og
af þurrkunarklút á hverjum degi á
handriðið á ganginum, ljósarofa,
lokin fyrir ruslarennunni, hurðar-
húna í sameign og dyrabjöllurnar
í anddyrinu. Alla þessa augljósu
snertif leti.“
Hann segir einnig að þessu hafi
að mestu verið hætt þegar allt datt
í dúnalogn í sumar. „En fyrir svona
mánuði eða þar um bil þá byrj-
uðum við aftur að prenta út daga-
talið og fylltum á brúsann,“ segir
húsfélagsformaðurinn.
„Ég skal játa að þetta er fyrir-
komulag sem mér sjálfum hefði
aldrei dottið í hug en um leið og
við byrjuðum hugsaði maður: Já,
auðvitað! Af hverju gera þetta ekki
allir?“ spyr Stefán sem þó er með-
vitaður um að þau í Eskihlíðinni
hafi ekki fundið upp sóttvarna-
hjólið.
„En við vitum af fólki sem hefur
heyrt af þessari tilhögun og tekið
upp í sínum húsum. Lykilatriðið er
að hafa alla með, ekki láta ábyrgð-
ina lenda á einum til tveimur sótt-
hræddum í stigaganginum á meðan
hinir vaða um allt með skítugar og
úthnerraðar krumlurnar.
Það taka allir þátt en ég geri
mér líka grein fyrir því að það er
örugglega auðveldara fyrir okkur
en marga aðra að taka svona upp
vegna þess að samkenndin í húsinu
er mikil.“ toti@frettabladid.is
Standa sameinuð og
sóttvarin í Eskihlíð
Húsfélagið í Eskihlíð 10 kaupir hreinsiefnin og íbúarnir skiptast á um að sótt-
hreinsa snertifleti í sameign daglega. Formaðurinn segir auðvelt að sameinast
um verkefnið sem kalli ekki á mikla vinnu en geti reynst mjög áhrifaríkt.
Lykilatriðið er að
hafa alla með, ekki
láta ábyrgðina lenda á
einum til tveimur sótt-
hræddum í stigaganginum á
meðan hinir vaða um allt
með skítugar og úthnerr-
aðar krumlurnar.
Stefán Pálsson
„Af hverju gera þetta ekki allir?“ spyr Stefán Pálsson sem fer fyrir húsfélag-
inu sem splæsir í sprittið fyrir sameignina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
TAX FREE*
af förðunarvörum, ilmvötnum
og völdum húðvörum
* 19,35% verðlækkun
Gildir 4. september - 15. október 2020
í verslunum og í netverslun Lyfju
Lyfja.is
GEIRFINNSMÁL „Þegar við Íslending-
ar hugsum um traust til dómstóla er
þetta án efa fyrsta málið sem kemur
upp í huga allra Íslendinga,“ sagði
Páll Rúnar M. Kristjánsson, lög-
maður Tryggva Rúnars Leifssonar,
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þar
sem aðalmeðferð í bótamálum hans
og Kristjáns Viðars Júlíussonar gegn
íslenska ríkinu fór fram.
Páll Rúnar sagði yfirstandandi
málaferli, um bætur til þeirra sem
ranglega voru dæmdir, mikilvægan
hlekk í sögu Guðmundar- og Geir-
finnsmála.
„Traust til dómstóla byggir ekki á
því að dómstólar geri aldrei mistök
heldur byggir það á því að þegar
dómstólar gera mistök horfist þeir
í augu við mistök sín, læri af þeim og
leiðrétti þann skaða sem mistökin
hafa valdið,“ sagði Páll Rúnar.
Málflutningurinn var um margt
litaður af því að mál Guðjóns Skarp-
héðinssonar hefur þegar verið flutt
og dæmt en ríkið var sýknað af hans
kröfu um frekari bætur með vísan
til meðal annars fyrningar og eigin
sakar.
Niðurstöðu í málunum er að
vænta innan nokkurra vikna. – aá
Dómstólar læri
af mistökunum
Aðstandendur Tryggva Rúnars
glöddust þegar sýknudómur var
kveðinn upp í Hæstarétti árið 2018.
ATVINNA „Við ákváðum að leggja
okkar að mörkum við þessar vondu
aðstæður í samfélaginu og f lýtum
verkefnum,“ segir Bjarni Bjarna-
son, forstjóri Orkuveitunnar, en ný
fjárhagsspá OR var samþykkt fyrir
helgi og kynnt í gær. Orkuveitan
ætlar að eyða um sex milljörðum í
svokölluð viðspyrnuverkefni sem
þurfa mikinn mannafla og eru verk-
efni sem skapa atvinnu víðs vegar. Á
þessu ári eru tveir milljarðar settir í
þessi verkefni og fjórir á því næsta.
Fyrirtækið hyggst verja 108
milljörðum í viðhald og nýjar fjár-
festingar en stærsti hlutinn fer í
veitukerfi eða 69 milljarðar.
Um 200 störf eiga að verða til
vegna viðspyrnufjárfestingaverk-
efnisins en stærstu einstöku fjár-
festingaverkefnin eru meðal annars
endurnýjun á aðveituæð hitaveitu
Akraness og Borgarness, innleiðing
stafrænna mæla, endurnýjun stofn-
lagna vatnsveitu og bygging skólp-
dælustöðvar í Naustavogi. – bb
Sex milljarðar í
ný störf hjá OR
Kristján Viðar sat 682
daga í einangrun. Tryggvi
Rúnar sat í einangrun í 627
daga. Þeir voru dæmdir
sekir en sýknaðir 2018.
6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð