Fréttablaðið - 06.10.2020, Síða 4
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35” BREYTTUR 33” BREYTTUR ÓBREYTTUR
JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK – VERÐ FRÁ: 11.690.000 KR.
• 3.0 V6 250 HÖ. DÍSEL, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• 570 NM TOG
• HÁTT OG LÁGT DRIF
• RAFDRIFIN LÆSING Í AFTURDRIFI
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN
• HLÍFÐARPLÖTUR UNDIR VÉL, KÖSSUM OG SKIPTINGU
• BI-XENON LED FRAMLJÓS MEÐ ÞVOTTAKERFI
• RAFDRIFIN OPNUN Á AFTURHLERA
ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP® GRAND CHEROKEE BREYTTIR OG ÓBREYTTIR
• ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI
• BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ
• FJARLÆGÐASKYNJARAR AÐ FRAMAN OG AFTAN
• BLINDHORNSVÖRN
ALLAR BREYTINGAR UNNAR AF BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND
COVID -19 Hertar samkomutak-
markanir vegna kórónaveirufarald-
ursins tóku gildi hér á landi í gær og
miðast fjöldi þeirra einstaklinga
sem koma mega saman nú við tutt-
ugu fullorðna. Þá hefur neyðarstigi
almannavarna verið lýst yfir í sam-
ráði við sóttvarnalækni. Virkjun
neyðarstigs hefur ekki teljandi áhrif
á almenning umfram hættustig sem
varað hefur frá 25. maí. Stjórnvöld
og viðbragðsaðilar hafa undan-
farið unnið að miklu leyti líkt og
um neyðarstig væri að ræða.
Í gær voru 670 manns í einangrun
með virkt COVID-19 smit hér á
landi og fimmtán lágu á sjúkra-
húsi vegna sjúkdómsins, þar af þrír
í öndunarvél á gjörgæslu. Tæplega
4.300 manns voru í sóttkví, 2.391
í almennri sóttkví og 1.881 í skim-
unarsóttkví. Sólarhringinn á undan
greindust 59 einstaklingar með
COVID-19 og var rúmur helmingur
þeirra í sóttkví við greiningu.
Landspítali er nú á hættustigi
vegna faraldursins en á spítalanum
eru 677 sjúklingar í eftirliti COVID-
19 göngudeildar, 58 starfsmenn í
sóttkví og 40 starfsmenn í einangr-
un. Nýgengi innanlandssmits, það
er fjöldi smitaðra síðustu fjórtán
daga á hverja 100 þúsund íbúa, jókst
milli daga og mældist í gær 156,3.
Þær hertu samkomutakmark-
anir sem tóku gildi í gær fela í sér
lokun kráa, skemmtistaða og spila-
sala. Aðrir veitingastaðir, þar sem
áfengisveitingar eru heimilaðar,
mega ekki hafa opið lengur en til
ellefu á kvöldin alla daga vikunnar
og eiga að fylgja gildandi fjöldatak-
mörkun og nándarreglu. Líkams-
ræktarstöðvar eiga að vera lokaðar
almenningi en sundlaugar verða
áfram opnar með þrengri fjölda-
takmörkunum, einungis helmingi
leyfilegs fjölda samkvæmt starfs-
leyfi. Ekki er gert ráð fyrir áhorfend-
um á íþróttaviðburðum sem fara
fram innandyra og grímuskylda
hefur verið tekin upp í strætó.
Fjöldatakmarkanir eiga ekki
við um börn fædd 2005 eða síðar
og ekki verða gerðar breytingar
á starfsemi leik- og grunnskóla.
Eins metra reglan verður áfram í
gildi og grímuskylda þar sem ekki
er hægt að tryggja eins metra fjar-
lægð á milli fólks. Starfsfólk á leik-
skólum og grunnskólum skal gæta
eins metra nándarreglu þegar and-
litsgrímur eru ekki notaðar. Þá er
fólk hvatt til þess að huga að sótt-
vörnum. birnadrofn@frettabladid.is
Hertar samkomutakmarkanir
vegna kórónaveirufaraldurs
Frá og með deginum í gær tóku gildi hertar takmarkanir á samkomum hér á landi vegna kórónaveirufar-
aldursins. Mega nú einungis tuttugu manns koma saman og hefur neyðarstigi almannavarna verið lýst
yfir. Skemmtistaðir, krár og líkamsræktarstöðvar eru lokaðar og eins metra reglan er áfram enn í gildi.
Fram kom á fundi almannavarna í gær að um 670 manns séu með virkt smit í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Fjöldatakmarkanir:
n 20 manna almenn fjöldatak-
mörkun.
n 30 manna hópar í framhalds-
og háskólum.
n 50 manna hámark í útförum.
n 50 manna hámark í keppnis-
íþróttum með snertingu.
n 100 manna hámark í til-
teknum verslunum.
n 100 manna hólf og grímu-
skylda í leikhúsum.
n 100 manna rými fyrir áhorf-
endur á íþróttaleikjum utan-
dyra.
Undantekningar:
n Störf Alþingis eru undanskilin
fjöldatakmörkunum.
n Dómstólar þegar þeir fara
með dómsvald sitt.
n Viðbragðsaðilar, s.s. lögregla,
slökkvilið, björgunarsveitir
og heilbrigðisstarfsfólk er
undanþegið fjöldatakmörk-
unum við störf sín.
n Strætisvagnar eru undan-
skildir reglunni um 20 manna
hámarksfjölda en grímu-
skylda er í gildi.
n Börn fædd 2005 eða síðar.
REYKJAVÍK Meirihluti borgarstjórn-
ar mun í dag leggja fram tillögu þess
efnis að velferðarsviði Reykjavíkur
verði falið að ganga til viðræðna
við heilbrigðisráðuneytið um sam-
eiginlegan rekstur á neyslurými í
borginni.
„Þetta er fyrst og fremst skaða-
minnkandi aðgerð þar sem boðið er
upp á hreinan stað þar sem þú getur
fengið ráðgjöf, nálar og í rauninni
það sem þú þarf til þess að skaðinn
af því að nota fíkniefni í æð sé sem
allra minnstur,“ segir Heiða Björg
Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og for-
maður velferðarráðs.
Frumvarp um neyslurými var
samþykkt á Alþingi í maí og felur í
sér að Embætti landlæknis geti veitt
sveitarfélögum heimild til að stofna
og reka neyslurými. Heiða Björg
segir að með tillögunni, sem lögð
verður fram á fundi borgarstjórnar
í dag klukkan 14, sé meirihlutinn að
taka fyrsta skrefið í því að neyslu-
rými verði að veruleika hér á landi.
„Við höfum náð sátt um þetta
í meirihlutanum en það verður
áhugavert að sjá hvernig minni-
hlutinn bregst við. Eitthvert sveitar-
félag þarf að taka af skarið og okkur
finnst bara eðlilegt að það séum
við,“ segir Heiða.
Verði tillagan samþykkt verður í
framhaldinu óskað eftir viðræðum
við ráðuneytið. – bdj
Borgin og ríkið sjái sameiginlega um rekstur neyslurýmis
Nýr meðferðarkjarni verður um 70
þúsund fermetrar að stærð.
LANDSPÍTALINN „Fjárlagafrumvarpið
boðar aukinn kraft í Hringbrautar-
verkefnið og er ég ekki í vafa um að
Alþingi mun styðja verkefnið áfram
af fullum þunga,“ segir Gunnar Svav-
arsson, framkvæmdastjóri NLSH
ohf., Nýs Landspítala, í tilkynningu
þegar kynnt var að Eykt hefði orðið
fyrir valinu í útboði á uppsteypu
meðferðarkjarna NLSH.
Tilboð Eyktar er 8,68 milljarðar
króna, um 82 prósent af kostnaðará-
ætlun sem er 10,5 milljarðar króna
án virðisaukaskatts. Nýr meðferðar-
kjarni verður um 70.000 fermetrar
að stærð. Áætlanir gera ráð fyrir að
uppsteypan hefjist í nóvember. – bb
Eykt hreppti
milljarða króna
uppsteypuverk
UMHVERFISMÁL Kanna þarf betur
áhrif af fyrirhuguðu knattspyrnu-
húsi Hauka í Hafnarfirði að mati
heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæðis.
Óskað var umsagnar nefndarinn-
ar vegna umhverfisskýrslu sem gera
varð vegna deiliskipulagsbreyt-
inga við Ásvelli. „Heilbrigðisnefnd
telur að umhverfisskýrsla vegna
breytinga á deiliskipulagi Ásvalla
svari ekki þeim áleitnu spurning-
um sem vakna um áhrif háreists
knattspyrnuhúss á vatnabúskap
Ástjarnar eða lífríki hennar,“ svar-
ar nefndin og minnir á að Ástjörn
sé friðlýst svæði á ábyrgð Hafnar-
fjarðarbæjar og sé hluti fólkvangs
Ásfjalls og Ástjarnar. „Undirbyggja
þarf vandlega allar ákvarðanir og
framkvæmdir sem hugsanlega geta
valdið þar röskun.“ – gar
Óttast neikvæð
áhrif á Ástjörn
Heiða Björg
Hilmarsdóttir,
borgarfulltrúi og
formaður vel-
ferðarráðs
6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð