Fréttablaðið - 06.10.2020, Page 9

Fréttablaðið - 06.10.2020, Page 9
Okkur er umhugað um velferð viðskiptavina okkar og starfsfólks. Vegna COVID-19 faraldursins höfum við lokað á beinan aðgang að útibúum okkar nema að heimsókn sé bókuð fyrir fram og þá einungis fyrir brýn erindi sem ekki er hægt að leysa með öðrum hætti. Við erum að sjálfsögðu áfram til staðar fyrir viðskiptavini okkar og allar upplýsingar um þjónustuna okkar er að finna á arionbanki.is. Þar er einnig hægt að panta þjónustu í síma eða afgreiðslu í útibúi ef brýnt er. Þá hvetjum við viðskiptavini okkar til að nýta eftirfarandi þjónustuleiðir: Öll helsta bankaþjónusta er í boði í Arion appinu og netbankanum. Síminn í þjónustuverinu er 444 7000, hægt er að senda okkur póst á arionbanki@arionbanki.is eða hafa samband í gegnum netspjallið okkar. Einnig minnum við á hraðbankana sem eru staðsettir víða um land og verða áfram aðgengilegir. Allar upplýsingar um þjónustuna okkar er að finna á arionbanki.is. Við munum kappkosta að svara öllum erindum hratt og örugglega til að þetta raski þjónustu okkar sem minnst. Þá vonum við að með sameiginlegu átaki okkar allra megi lágmarka þann tíma sem tekur að komast í gegnum þessa áskorun. Við tökumst á við þetta saman! Fjarþjónusta í ljósi aðstæðna – sinnum bankaviðskiptum heima í stofu arionbanki.is Í miðvikudagsblaði Fréttablaðs-ins ritar Aðalheiður Ámunda-dóttir leiðara blaðsins – skoðun blaðsins. Þar fjallar hún um ágrein- ing á milli núverandi forystu verka- lýðshreyfingarinnar og fráfarandi forseta ASÍ, Gylfa Arnbjörnssonar. Aðalheiður lýsir sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar á þennan veg: „Lengst af hefur íslensk verkalýðs- hreyfing liðið fyrir þrásetu rogg- inna karla á valdastóli.“ Hún lætur vera að nefna nokkurn þessara „roggnu karla“ með nafni en segir þá sitja „áratugum saman á formanns- stóli félaga sinna og sitji þar jafnvel enn“. Enga undantekningu gerir leiðarahöfundur þar enda telur hún að margir „roggnir karlar“ sitji enn á formannsstóli í mörgum félaganna. Gæti vel nefnt suma, sem þessi orð Aðalheiðar hljóta að eiga við – en læt það vera. Hennar en ekki mitt að skýra ummælin. Hrúturinn Gylfi Um ummæli Gylfa Arnbjörns- sonar, fyrrverandi forseta ASÍ, um ágreining í tjáningu skoðana, segir leiðarahöfundurinn: „Með útspili sínu hefur hann ekki aðeins fallið í gryfju hrútsins, sem telur endalausa eftirspurn eftir sinni laf hræddu speki, heldur einnig af hjúpað sig sem úlf í sauðargæru.“ Leiðara sinn kallar svo Aðalheiður „Hrútinn“ og liggur ljóst fyrir við hvern hún á. … með grænsápu Nú veit ég afskaplega lítið, nánast ekki neitt, um sálarlíf hrúta. Hef ekki lagt mig eftir því í neitt álíka ríkum mæli og Aðalheiður hefur sjáanlega gert. Jafn lítið veit ég um sálarlíf rollunnar. Get því hreint ómögulega svarað henni með til- vísun í sálarlíf rollunnar, viðbrögð rollunnar né speki. Er því alger- lega fyrirmunað að geta sett saman greiningu á speki Aðalheiðar undir heitinu „Rollan“. Kemur heldur ekki til hugar að láta slíkt sjást. Mér þykir hins vegar löngu kominn tími til þess að fólki verði kennd almenn kurteisi í garð viðmælenda. Leiðarahöfundar tileinki sér ekki vinnubrögð kommentakerfanna með illmælgi, níði og lastmælgi um náungann. Amma mín sagði stundum, að því fólki, sem þann- ig munnsöfnuð notaði, þyrfti að þvo um munninn með grænsápu. Nú mæla leiðarahöfundar ekki af munni fram heldur skrifa ummæli sín á rittölvu með puttunum. Þykir ekki aðstandendum Fréttablaðsins rétt orðið að Aðalheiður Ámunda- dóttir þvoi sér rækilega um putt- ana? Með grænsápu – myndi hún amma mín sagt hafa. Um roggna karla og hrædda hrúta Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi ritstjóri Borgarstjórn mun í dag ræða ferðamálastef nu Reyk ja-víkur til næstu fimm ára. Það er kannski ekki mikið um ferða- menn í borginni í dag en þegar fólk fer aftur á stjá, þarf Reykjavík að vera tilbúin. Við vitum hversu mikilvæg ferðaþjónustan er fyrir borgina. Hún hefur skilað miklum tekjum til fyrirtækja, einstaklinga og hins opinbera. Hún hefur ýtt undir margvíslega grósku og gætt borgina lífi. Við sjáum það best í dag þegar ferðamennina vantar. Auðvitað hefur sú mikla gróska sem hefur verið í ferðaþjónustu á undanförnum árum reynt á innviði borgarinnar og þolinmæði borgar- búa, ekki síst miðsvæðis. Mikil fjölgun ferðamanna hefur líka kall- að á kostnaðarsamar fjárfestingar og aukin útgjöld. Við þurfum að taka tillit til þess í næstu skrefum, að endurkoma ferðamannanna verði í sem mestri sátt við íbúa. Því er eitt leiðarstefið í ferðamála- stefnunni að eiga í reglulegu sam- tali við íbúa og hagsmunaaðila og að markaðssetning muni líka snúa að borgarbúum, svo þeir fari ekki á mis við allt það skemmtilega sem hér er hægt að gera og við kynnum fyrir erlendum gestum okkar. Ferðamálastefnan á að vera leiðarljós okkar í því hvernig borgin þróast sem áfangastaður ferðamanna. Reykjavík á að mæta þörfum bæði ferðaþjónustu og íbúa og hún á að vera borg sem laðar að sér fólk og auðgar líf íbúa, jafnt sem innlendra og erlendra gesta. Langflestir gestir Íslands koma til Reykjavíkur. En Reykjavík hefur ekki endilega verið áfangastaður þessara gesta, heldur nýta þeir þjónustuna sem borgin hefur upp á að bjóða, á leið sinni til annarra staða á Íslandi. Reykjavíkurborg er því að vinna, samhliða ferða- málastefnunni, að áfangastaða- stofu fyrir allt höfuðborgarsvæðið í samstarfi við Ferðamálastofu og nágrannasveitarfélög. Þegar ferðaþjónustan byrjar aftur ætlar borgin vera tilbúin með atvinnugreininni í markaðs- setningu og sýna lifandi og fram- sækna mannlífsborg sem gaman er að heimsækja og þar sem gott er að búa. Við verðum tilbúin Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Við- reisnar og formaður borgarráðs S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 6 . O K T Ó B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.