Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.10.2020, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 06.10.2020, Qupperneq 14
DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR Í SÍMA 540 4900 Arctic Trucks Ísland ehf Kletthálsi 3 110 Reykjavík Sími: 540 4900 Netfang: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is Vönduð amerísk jeppadekk sem henta frábærlega fyrir íslenskar aðstæður. Stærðir 29 - 44”. KANNAÐU ÚRVALIÐ! VERSLUN.ARCTICTRUCKS.IS Umsjón blaðsins Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.isBílar Auglýsingar: Atli Bergmann atli@frettabladid.is | Sími 550 5657 Útgáfufélag: Torg ehf. | Kalkofnsvegur 2 | 101 Reykjavík | Sími 550 5000 Samkvæmt Facebook-síðunni Bensínlaus bættust 498 rafmagns- bílar við flota landsmanna í september. Stór hluti þessara bíla er frá Tesla eða 313 talsins en einn- ig kom stór sending 42 ID.3- bíla frá Volkswagen í mánuðinum. Alls voru 1.015 nýir bílar skráðir í september og eru því 49% inn- flutningsins 100% rafmagnsbílar. Til viðbótar við þessar tölur voru rúm 15% innfluttra bíla í september tengiltvinnbílar svo að rafdrifnir bílar í þeim mánuði eru alls 64,14% innflutningsins. Þann 1. október eru 5.539 raf bílar skráðir í landinu sem gerir 2,5% allra skráðra bíla í landinu. Rafbílar helmingur innflutningsins Alls voru 289 stykki af Tesla Model 3 afhent í septembermánuði. Það er aðeins tæplega hálft ár síðan Polestar frumsýndi tölvu- gerða útgáfu Precept-tilrauna- bílsins. Nú hefur framleiðandinn svo ákveðið að bíllinn fari í fram- leiðslu og mun hann keppa við bíla eins og Porsche Taycan, Lucid Air og Tesla Model S. Bíllinn er stór á velli enda 4,7 metrar að lengd með hjólhaf sem er hvorki meira né minna en 3,1 metri. Hann verður líka byggður á SPA2-undirvagninum sem er næsta kynslóð undirvagna fyrir stærri bíla Volvo. Precept verður flaggskip raf- bílamerkisins og verður notað mikið af endurvinnanlegum og náttúrulegum efnum í hann. Polestar hefur einnig gefið út að Precept verði framleiddur í nýrri verksmiðju í Kína sem verður með kolefnis jöfnun frá a-ö. Precept fær þó líklegast ekki að halda nafninu en þeir tveir bílar sem komið hafa frá Polestar hingað til heita einfaldlega 1 og 2. Um 2.000 framleiðslueintök Polestar 2 voru reyndar innkölluð á dögunum vegna galla í hugbúnaði sem leitt gat til þess að bíllinn hætti skyndi- lega akstri. Bíll 3 er væntanlegur innan skamms og verður það rafjepp- lingur en hvort Polestar Precept fái nafnið 4 er enn ekki staðfest. Búast má við að bíllinn verði kynntur seint á árinu 2022 og komi á markað snemma árs 2023. Polestar Precept fer í framleiðslu Polestar Precept er líklegur til að hafa allavega 500 km drægi. Polestar Precept verður byggður á SPA2-undirvagninum sem er næsta kynslóð undirvagna fyrir stærri rafdrifna bíla Volvo. Raf bílar og tengil- tvinnbílar voru alls 64,14% innflutnings í september. Með ört vaxandi samkeppni á rafbílamarkaði er viðbúið að ný bílamerki líti dagsins ljós á markaði í Evrópu og reyndar víðar. Eitt af þessum merkjum er Maxus sem er undir hatti SAIC- framleiðslurisans frá Kína. Suzuki hefur hafið innflutning á Maxus-merkinu og þá raf bílahluta þess, en fyrsti bíllinn til að mæta í Skeifuna er e-Deliver 3 sendibíll- inn sem er til umfjöllunar seinna í blaðinu. Hann er fyrsti Kínafram- leiddi sendibíllinn sem kemur á markað í Evrópu og fyrsta landið sem hafið hefur sölu á honum er Noregur, sem fékk fyrstu bílana í apríl á þessu ári. Næstur í röðinni er Euniq MPV sem er sjö manna fjölskyldubíll. Að sögn Sonju G. Ólafsdóttur, markaðsstjóra Suzuki, verður Euniq eini sjö manna rafmagns- bíllinn á Íslandi þegar hann kemur í desember. Bíllinn er byggður á G50 sem kynntur var fyrir Kína- markað í fyrra en hann er með 1,5 lítra bensínvél. Euniq var frum- sýndur á bílasýningunni í Sjanghæ í fyrra og er búinn 116 hestafla rafmótor. Jepplingur í kortunum Fleiri spennandi valkostir eru í boði hjá Maxus, sem er undir hatti SAIC sem einnig framleiðir MG- raf bílana. Er þar helst að telja Maxus Euniq 6 sem er rafdrifinn jepp- lingur byggður á nýju MERA-botn- plötunni og hefur verið kynntur í Kína. Sá bíll er með einum, 170 hestafla rafmótor sem skilar 310 newtonmetra togi, en það sem er meira um vert er að hann er sagður hafa allt að 600 km drægi sam- kvæmt NEDC-staðlinum. Það eru því spennandi tímar fram undan hjá Suzuki í Skeifunni undir merkjum Maxus, sem fengið hefur salinn við hliðina á Domino’s þar sem mótorhjólin voru áður. Maxus-rafbílamerkið í Skeifuna Maxus Euniq 6 er 170 hestafla jepplingur með allt að 600 km drægi. Maxus Euniq MPV verður eini sjö manna rafbíllinn þegar hann kemur á markað hér í desember. 2 BÍLAR 6 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.