Fréttablaðið - 06.10.2020, Side 18
6 BÍLAR 6 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R
Maxus-merkið var kynnt til
sögunnar fyrir Evrópumarkað
í Noregi í júní síðastliðnum
en fyrsti bíllinn til að koma á
markað var Maxus e-Deliver
3. Í fyrstu sendingu komu 328
bílar til Noregs en alls höfðu yfir
1.000 pantanir komið í þennan
rafdrifna sendibíl. Fyrsti bíllinn
er mættur í Skeifuna og við próf-
uðum hann á dögunum.
Maxus e-Deliver 3 er fáanlegur
í langri og stuttri útgáfu og var
það sú stutta sem við höfðum til
prófunar.
Bíllinn er búinn 35 kWst raf-
hlöðu með drægi upp á 235 km
en einnig er hægt að fá hann með
stærri 52 kWst rafhlöðu sem hefur
340 km drægi samkvæmt WLTP-
staðlinum. Báðar útgáfurnar eru
122 hestöfl sem gera hann snarpan
í bæjarakstri en aflið er minna á
ferðinni. Hámarkshraðinn er ekki
nema 120 km á klst. sem kemur
sér vel í landi með aðeins 90 km
hámarkshraða. Bíllinn er lipur í
snúningum enda leggja raf bílar
almennt betur á stýri en aðrir
bílar.
Vel búinn búnaði
Um ágætlega búinn bíl er að ræða
í e-Deiliver 3 og má þar meðal
annars nefna upplýsingaskjá með
bakkmyndavél, aðgerðastýri,
blá tannarbúnað fyrir farsíma og
regnskynjara.
Það er eitthvað skrýtið með kín-
verska bíla og útihitamæla sem er
ekki til staðar í þessum bíl, en ein-
mitt prófunardaginn var smávægis
hálka um morguninn. Sætin eru
stór og þægileg og eru með arm-
hvílum og þar að auki upphituð.
Að vísu er bíllinn aðeins tveggja
manna fyrir vikið. Gott pláss er í
margs konar hólfum, bæði milli
sæta og í mælaborði, en ekkert
þeirra er lokað.
Útsýni aftur með bílnum er ansi
takmarkað og koma þar nokkrir
hlutir til. Enginn baksýnisspegill
er í bílnum enda hvorki rúða yfir
í f lutningsrými né á afturhurðum
bílsins. Hliðarrúður eru litlar og
nær bitinn fyrir aftan þær það
langt fram að það verður talsvert
blint svæði til hliðanna. Stórir
hliðarspeglar gera lítið til að bæta
ástandið.
Verðið samkeppnishæft
Flutningsrými bílsins er aðgengi-
legt þar sem það er góð opnun á
afturhurðum en hliðarhurð mætti
vera stærri.
Festingar eru í gólfi aftast en
vantar fremst í f lutningsrýmið. Í
minni útgáfunni tekur hann tvær
pallettur, og getur sú aftari verið
bæði þversum eða langsum. Lengri
útgáfan getur tekið þrjár pallettur
þversum. Helsti samkeppnisaðili
e-Deliver 3 á markaði hér-
lendis er Nissan E-NV200 en hann
kostar ívið meira eða frá 5.390.000
krónum.
Nýr keppinautur rafsendibíla
Maxus e-
Deliver 3 er
annar rafdrifni
sendibíllinn
sem í boði er
hérlendis í
þessum flokki.
MYNDIR/NJÁLL
GUNNLAUGSSON
Plássið er gott í framsætum sem eru með armhvílum og upplýsingaskjár
með bakkmyndavél og blátannarbúnaði er staðalbúnaður.
4.800 lítra flutningsrýmið tekur tvær pallettur og 1.000 kíló.
KOSTIR OG GALLAR
Maxus
e-Deliver 3
KOSTIR GALLAR
n Verð
n Ágætis búnaður
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
Grunnverð: 5.280.000 kr.
Hestöfl: 122
Tog/Nm: 255
Hámarkshraði/km: 120
Eyðsla/kWst: 13,84
Drægi/km: 235
Rafhlaða/kWst: 35
Flutningsrými/l: 4.800
Flutningsgeta/kg: 1.000
L/B/H/mm: 4.555/1.780/1.900 n Útsýni aftur
n Enginn útihita-
mælir