Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.10.2020, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 06.10.2020, Qupperneq 36
Mercedes-Benz ætlar sér stóra hluti í framleiðslu á rafknúnum vörubílum á næstu árum. Framleiðsla mun hefjast á eActros- vöruflutningabílnum árið 2021 en eActros verður með vel yfir 200 km drægi og er hann er hugsaður í vörudreifingu og þjónustu innan borgarmarka. Þá mun Mercedes- Benz stefna að því að framleiðsla hefjist árið 2024 á eActros Long- Haul sem verður langdrægari vöruflutningabíll sem knúinn er alfarið áfram af rafmagni með drægi nálægt 500 km. Mercedes-Benz hefur einnig kynnt hugmyndabíl sem nefndur hefur verið Mercedes-Benz GenH2. Um er að ræða vörubíl með 40 tonna heildarþyngd og allt að 25 tonna burðargetu. GenH2- vörubíllinn gengur fyrir vetni og á að geta ekið allt að þúsund km á einni áfyllingu. Vetnisknúnir bílar eru í raun raf bílar þar sem vetnið er eldsneytið fyrir raf- hlöðuna (fuel-cell) sem síðan knýr rafmótorana. Vetnið er geymt í f ljótandi formi við -253°C á tanki sem er inni í öðrum tanki með lofttæmt rými milli tanka. Sam- kvæmt upplýsingum frá Daimler, eiganda Mercedes-Benz, er stefnt að því að reynsluakstur og próf- anir viðskiptavina geti hafist á GenH2-vörubílnum árið 2023 og að fjöldaframleiðsla mun hefjast á síðari hluta áratugarins. 12 BÍLAR 6 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R Mercedes-Benz kynnir áætlun um rafvæðingu vörubifreiða Mercedes-Benz hefur þegar komið fram með minni rafknúna atvinnubíla sem ganga fyrir hreinni raforku. Mercedes eCitaoro G-rafstrætis- vagninn hefur verið heimsfrum- sýndur og státar meðal annars af 220 km drægi. Það mun þykja gott fyrir strætisvagn og er það fastformsraf hlaða eða Solid State, sem gerir það meðal annars kleift. Reyndar verður vagninn búinn tvenns konar rahlöðum, annars vegar hefðbundinni 396 kWst lithium-raf hlöðu eða 441 kWst fastformsraf hlöðu. Einn af kostum fastforms- raf hlaða á að vera hraðari hleðslutími en að sögn tækni- manna Mercedes er það ekki tilfellið með eCitaoro, heldur er verið að horfa til meiri drægis með raf hlöðunni og að hún henti betur þar sem hlaðið er yfir nótt. Ef hlaðið er reglulega yfir daginn á stoppustöðvum mun lithium-raf- hlaðan henta betur. Vagninn er búinn einum raf- mótor á hvorum öxli og skila þeir 125 kW hvor, og er togið 485 newtonmetar fyrir hvorn um sig. Búast má við vetnisknúinni útgáfu árið 2022 sem mun auka drægi vagnsins til muna. Mercedes eCitaoro með nýrri rafhlöðu Að óbreyttu mun virðisauka- skattsívilnun fyrir tengiltvinnbíla lækka úr 960.000 krónum niður í 600.000 krónur um næstu áramót, segir í fréttatilkynningu frá Bíl- greinasambandinu. Þetta helgast af lögum sem voru samþykkt í lok árs í fyrra og kveða á um lækkun ívilnana í þrepum á næstu árum. Að mati Bílgreinasambandsins er augljóst að þetta muni leiða til beinna verðhækkana á þessum tegundum bíla. Bílgreinasambandið telur ýmis rök vera til staðar um að fresta beri þrepalækkunum og að ívilnun vegna tengiltvinnbíla verði haldið óbreyttri í eitt ár til viðbótar. Hefur sú tillaga verið lögð fyrir bæði efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis og umhverf- isráðherra. Ívilnanir vegna tengiltvinnbíla Rafhlöðurnar eru á þaki vagnsins. HLEÐSLU- STÖÐVAR Eigum úrval hleðslustöðva fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki. Hagstætt verð, gæði og falleg hönnun. Ískraft - sérfræðingar í hleðslustöðvum. Smiðjuvegur 5 / 200 Kópavogur www.iskraft.is / Sími 535 1200 EO hleðslustöðvarnar eru frábær lausn fyrir rafbílaeigendur. Þessar hleðslustöðvar sameina gæði og hagstætt verð í fallegri hönnun sem vakið hefur verðskuldaða athygli í Evrópu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.