Fréttablaðið - 19.11.2020, Síða 14
Rauðisandur er eitt helsta djásnið í krúnu Vestfjarða og vinsæll viðkomu-staður ferðamanna. Hann er 12 kíló-metra langur og teygir sig frá Sjöundá að Brekkuhlíð austan Látrabjargs. Að mjóu undirlendi sveitarinnar liggja
brött fjöll sem víða eru hömrum girt. Þarna var áður
lífleg byggð og búið á fjölda bæja en í dag er aðeins
heilsársbyggð á Lambavatni, Stökkum og Melanesi.
Sandurinn er nefndur í Landnámu og telja sumir að
heitið sé dregið af Ármóða hinum rauða Þorbjarnar-
syni sem nam þar land og heiti því Rauðasandur.
Heimamenn kjósa þó frekar heitið Rauðisandur og
er nafnið skýrt með rauðgulum lit fjörusandsins
sem rekja má til fínmulinnar hörpu- og kúskeljar. Á
sunnanverðum Vestfjörðum og Snæfellsnesi bregður
skeljasandsbreiðum víða fyrir en engin þeirra kemst
nálægt Rauðasandi að stærð og mikilfengleika – og er
hann því sannkallaður sandrisi. Auk þess er umhverfi
Rauðasands af dýrari gerðinni en skammt frá honum
eru Stálfjall og Skor, sem bjóða upp á spennandi
gönguleiðir fyrir vaska göngugarpa. Styttri göngu-
leið liggur út á sandinn frá bílastæði við Melanes,
en gangan að ströndinni tekur aðeins hálftíma og er
ógleymanlegt að fylgjast með hvítfyssandi öldunum
skolast inn á rauðgulan skeljasandinn. Þarna er til-
valið að skokka berfættur eftir strandlengjunni og
skella sér síðan í sjósund.
Einnig er skemmtilegt að ganga út eftir Mela-
nesrifi og fylgjast með sjávarstraumum inn og út
Bæjarósinn. Innan hans er risastórt sjávarlón, Bæjar-
vaðall, sem á flóði líkist stöðuvatni sem að stórum
hluta rís úr kafi á fjöru. Þó að ekki sé mikill gróður á
rifinu státar það og Bæjarvaðallinn af afar fjölbreyttu
fuglalífi og einu stærsta landselalátri á Íslandi.
Útsýni vestur að Látrabjargi og Keflavík er einstakt
en einnig sést vel í Snæfellsjökul þar sem hann ber
við Skorarfjall í austri. Suður af því er Skor en þaðan
lagði stórmennið Eggert Ólafsson nýgiftur og föru-
neyti í sína hinstu för vorið 1768 en þau drukknuðu
í óveðri á Breiðafirði. Á leiðinni til baka af Mela-
nesrifi er tilvalið að taka nokkurra kílómetra sveig
í austur að Sjöundá og ganga um grasi grónar rústir
þessa sögufræga tvíbýlis. Þarna voru ein frægustu
morð Íslandssögunnar framin 1802 sem Gunnar
Gunnarsson gerði skil í sögulegri skáldsögu
sinni Svartfugli. Í tengslum við heimsókn á
Rauðasand er því tilvalið að lesa þessa frægu
skáldsögu, en hún lýsir ekki aðeins morð-
unum heldur dregur einnig upp mynd
af lífi fátæks alþýðufólks sem dró fram
lífið í þessari stórkostlegu náttúru, í
skugga óréttlætis og mikillar stétta-
skiptingar.
Rauði
sandrisinn
Horft eftir Melanesrifi að Sjöundá og Skorarfjalli. Bærinn Melanes með tjaldstæði til vinstri og Snæfellsjökull
handan Breiðafjarðar til hægri.
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Rauðisandur er
einstök náttúr-
perla sem gaman
er að heimsækja
í öllum veðrum
og á öllum árs-
tímum. Hér er
horft til vesturs
að Látrabjargi í
kvöldsól. MYNDIR/
ÓMB
Hlaup eða ganga eftir Melanesrifi er uppbyggjandi fyrir bæði líkama og sál.
1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð