Fréttablaðið - 19.11.2020, Síða 30
1 9 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Skotarnir gripu tækifærið á Íslandi
Tímabili Valskvenna lauk með særindum í gær þegar Valur féll úr leik gegn skoska liðinu Glasgow City í Meistaradeild Evrópu eftir vítaspyrnu-
keppni. Þetta var síðasti knattspyrnuleikur ársins á Íslandi og gáfu Valskonur ekkert eftir fram á 120. mínútu í leit að sigurmarki sem aldrei kom.
Ísland mun því ekki eiga lið í pottinum þegar dregið verður í útsláttarkeppninni en á þó fulltrúa eftir í keppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
GOLF Guðmundur Ágúst Kristjáns-
son hefur í dag leik á lokamóti árs-
ins á Áskorendamótaröð Evrópu.
Mótið fer fram með breyttu sniði í
ár, með færri þátttakendum, og um
leið eru færri sæti í boði á Evrópu-
mótaröðinni fyrir þá stigahæstu
í lok tímabilsins. Guðmundur á
enn tölfræðilegan möguleika á að
tryggja sér fullan þátttökurétt á
Evrópumótaröðinni fyrstur Íslend-
inga í karlaflokki, en þarf til þess að
vinna mótið og treysta á hagstæð
úrslit hjá öðrum kylfingum.
Guðmundur er með 16.803 stig
í 46. sæti stigalistans. Fyrir sigur
á lokamótinu fást 62.000 stig, sem
myndu f leyta honum upp í fjórða
sæti. Hann þyrfti þó að treysta á
að stigasöfnun kylfinga sem eru í
baráttunni um eitt af fimm efstu
sætunum yrði lítil sem engin.
Með góðum árangri getur Guð-
mundur bætt best a árang u r
Íslendings á einu tímabili á Áskor-
endamótaröðinni. Það met er í
eigu Birgis Leifs Hafþórssonar sem
endaði í 37. sæti á sínum tíma. – kpt
Tekur þátt í
lokamóti ársins
FÓTBOLTI Drengjalandslið Íslands
sk ipað leik mönnum fæddum
1998 eða síðar fá að vita á næstu
dögum hvort þeir fá þátttöku aðild
í lokakeppni EM U21 næsta sumar.
Íslenska liðið á einn leik inni gegn
Armeníu en evrópska knattspyrnu-
sambandið, UEFA, af lýsti öllum
leikjum Armena vegna ástandsins
þar í landi. Með sigri Ítala á Svíum
í gær varð ljóst að Ísland myndi
enda í öðru sæti riðilsins með því að
strákunum yrði dæmdur sigur gegn
Armeníu. Það á þó enn eftir að stað-
festa hvaða aðferðir verða notaðar
til að útkljá úrslit leiksins.
Það yrði í annað sinn sem Ísland
sendir lið til leiks á EM U21, tíu
árum eftir gullkynslóðin sem
myndar kjarna A-landsliðsins í dag,
keppti í Danmörku. – kpt
Ítalskur sigur
sendi drengina
líklega á EM
FÓTBOLTI Staðan er fljót að breytast
í fótbolta og er Joachim Löw á afar
hálum ís þessa dagana sem þjálfari
þýska karlalandsliðsins. Þýska-
land olli miklum vonbrigðum á
HM í Rússlandi árið 2018 og féll úr
efstu deild Þjóðadeildarinnar sama
ár, þó að líkt og Íslendingum hafi
þeim verið bjargað með stækkun
A-deildarinnar. Á þriðjudaginn
fékk Þýskaland tækifæri að komast
áfram í úrslit Þjóðadeildarinnar í
fyrsta sinn, en þar fór allt í vaskinn.
Þjóðverjum dugði jafntefli á Spáni
en fengu rassskellingu á stærð við
þá sem Þýskaland veitti Brössum
á HM árið 2014. Var tapið gegn
Spánverjum stærsta tap Þjóðverja
í tæp 90 ár og stærsta tap Þjóðverja
í keppnisleik frá upphafi.
Olivier Bierhoff, yfirmaður lands-
liðsmála hjá þýska knattspyrnu-
sambandinu, ítrekaði stuðning við
Löw í samtali við ARD eftir leik-
inn og sagði að Löw fengi að stýra
liðinu á Evrópumótinu. Slíkar
stuðningsyfirlýsingar líta yfirleitt
vel út á blaði, en eru stundum hálf-
gerður dauðakoss þegar þjálfara er
sagt upp stuttu síðar og var krísu-
fundur haldinn í höfuðstöðvum
þýska knattspyrnusambandsins
í gær. Á Evrópumótinu næsta
sumar er Þýskaland í geysisterkum
riðli með ríkjandi heimsmeisturum
Frakka, Evrópu- og Þjóðadeildar-
meisturum Portúgals og Ungverja-
landi, sem komst á mótið á kostnað
Íslands.
Fyrir HM í Rússlandi hafði Löw
aldrei mistekist að koma Þýskalandi
í undanúrslit að minnsta kosti á
stórmótum og virtist framtíðin björt
sumarið 2017. Ungt lið Þýskalands,
sem mátti titla sem varalið, sigraði
í Álfukeppninni sama ár og U21 árs
lið Þýskalands varð Evrópumeistari
í sínum aldursflokki. Það tók fljót-
lega að halla undan fæti og ef farið
er aftur til nóvembermánaðar 2017,
rúm þrjú ár aftur í tímann, hefur
Þýskaland aðeins unnið 14 leiki af
32. Ef sömu formúlu er beitt á árin
þrjú þar áður, unnust 27 leikir af 36.
Þjálfarinn sem varð að þjóðarhetju
þegar Þýskaland vann heimsmeist-
aratitilinn, er nú hægt og bítandi að
breytast í skúrk, sem nær ekki fram
því besta úr þýska liðinu.
Löw hefur nú fjóra æfingaleiki til
að fá liðið til að stilla saman streng-
ina fyrir Evrópumótið næsta sumar.
Ef spilamennska liðsins verður sú
sama og liðið hefur sýnt undanfarin
þrjú ár verður gleðin ekki langlíf í
München þar sem Þýskaland leikur
alla sína leiki í riðlakeppninni.
Gæðin í leikmannahópnum og
kröfurnar í Þýskalandi gera ráð
fyrir atlögu að Evrópumeistaratitl-
inum og allt annað þykir vonbrigði.
kristinnpall@frettabladid.is
Hetjan hægt og bítandi að
breytast í skúrk í Þýskalandi
Pressan eykst á Joachim Löw sem engin svör virðist eiga við slakri spilamennsku Þýskalands. Eftir að
hafa stýrt liðinu til sigurs á HM í Brasilíu árið 2014 og bundið enda á 24 ára bið Þjóðverja eftir heims-
meistaratitli hefur gengi liðsins hrunið undanfarin ár. Tapið gegn Spánverjum var það stærsta í 90 ár.
Löw fylgist áhyggjufullur með af hliðarlínunni á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þýskaland er í fjórtánda
sæti á heimslista FIFA á eftir
þjóðum eins og Kólumbíu,
Mexíkó og Danmörku.
Guðmundur keppir í lokamóti
ársins á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI David Coote, dómarinn
sem gerði allt vitlaust í rauða hluta
Liverpool-borgar fyrr í vetur, var í
gær færður úr stöðu myndbands-
dómara í leik Liverpool, yfir á leik
Manchester United. Hann mun því
ekki koma við sögu þegar Leicester
heimsækir Liverpool um helgina.
Coote var í hlutverki mynd-
bandsdómara í nágrannaslag Ever-
ton og Liverpool í haust. Þar taldi
hann glórulausa tæklingu Jordan
Pickford á Virgil van Dijk ekki vera
til þess hæfa að dómari leiksins
myndi skoða atvikið betur. Þá flaut-
aði hann mark af Liverpool á loka-
sekúndum leiksins, þar sem Sadio
Mane var dæmdur rangstæður. – kpt
Coote færður af
leik Liverpool