Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Blaðsíða 38
Soltnu úlfarnir og fegurðin Fegrunarráð af ýmsu tagi hafa verið til frá örófi alda og beinast flest þeirra að konum. Sum þeirra halda enn gildi sínu í dag, önnur hins vegar ekki svo mjög. TÍMAVÉLIN F egurðin... fegurðin. Flestar konur grípa áfergjulega hvert fegurðarráð eins og soltnir úlfar. Hvort ráðin eru góð, hvort þau lækna ágalla viðkomandi er ómögulegt að fullyrða nema með til- raunum. En konurnar eru þolinmóðustu og fúsustu til- raunadýr í heiminum,“ svo sagði í Alþýðublaðinu í maí 1959. Krem, farði, mataræði, fatnaður, líkamsburður, mál og fas. Margt er það sem konur hafa talið sig þurfa að huga að til að vera aðlaðandi í gegnum tíðina. Konan hefur í aldanna rás þurft að glíma við kröfur samfélagsins um æsku og fegurð, en slíkar kröfur eru íþyngjandi og oft og tíðum mannskemmandi. Sem betur fer hefur þróun síðustu ára verið í þá átt að þær einu kröfur sem kona ætti virkilega að reyna að uppfylla eru að vera heilbrigð og hamingjusöm, þó svo því markmiði sé oft erfitt að ná geta flestir verið sammála um að það markmið sé já- kvætt. Engu að síður stendur okkur til boða heill hafsjór af ýmsum kremum, smyrslum og tólum sem eiga að gera líf okkar og útlit betra. Þannig var það líka í gamla daga þó úrvalið hafi þá verið heldur minna. Og þar sem vantaði upp á úrvalið redduðu kon- ur bara málunum með hinu og þessu sem þær áttu heima við. Ostrur og hrá eggjarauða „Fegurð sjáum við t.d. í hreinu hörundi, grönnum líkama, tindrandi augum og hraustu hári,“ sagði í Vik- unni í nóvember 1977. Þar fylgdu með góð ráð til að viðhafa snyrtilegt útlit. Svo sem með því að sofa á bakinu til að fyrirbyggja hrukku- myndun, og líka ostru át. „Lærðu að meta ostrur og annan hráan mat eins og „buff-tartar“ með hrárri eggjarauðu. Engum finnst neitt athugavert við að borða hrátt grænmeti.“ Það voru ekki öll fegrunar- ráð góð frá þessum tíma en mörg þeirra voru hins vegar alls ekki galin og eiga enn fullan rétt á sér í dag, þó ekki endilega hvað fegurð varðar Konur áttu að vera mjúkar og hreinar svo þær þurftu að liggja vel og vandlega í bleyti á milli stríða. MYND/ TIMARIT.IS Maður gat skellt sér á nefréttingatæki og svo smurt sig með Lido-kremi. MYNDIR/TIMARIT.IS Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is heldur hvað varðar heilsu og heilbrigði. Í Samtíðinni í nóv- ember 1963 sagði: „Það er ákaflega mikilvægt í sambandi við útlit þitt og vellíðan að læra að hvíla sig algerlega eða „slappa af“, eins og oft er sagt í daglegu tali.“ Í Samvinnunni í júní 1951 voru birt svonefnd fegurðar- boðorðin tíu. Meðal þeirra ráða var að forðast hægða- tregðu og æfa líkamsstöðu með því að setja bók á höfuð- ið. Sítrónusafi var vinsæll og notaður meðal annars til að lýsa hár og húð. Mjólk og súr- mjólk þóttu hentugar í maska enda er vitað í dag að sýran sem er að finna í bæði sítr- ónu og mjólkurvörum getur hjálpað húðinni að losna við dauðar húðfrumur. Gúmmíkefli og megrunarráð Megrunarráðin voru hins veg- ar oft frekar furðuleg miðað við þá þekkingu sem við búum að í dag, auk þess sem nú er það margsannað að megrun er skaðleg heilsunni. „Þar til gerðu gúmmikefli er rennt um líkamann, einkum þar, sem fita hefur safnazt á hann. Renna skal keflinu ekki sjaldnar en hundrað sinnum yfir þá staði, sem á að grenna.,“ sagði í Samtíðinni í desember 1953. Konum var ráðlagt að reyna að nudda burt fituna, skrúbba hana eða hreinlega forðast nánast allan mat. Þessum ráðum var beint til ungra stúlkna í Æskunni árið 1965: „Þær ungar stúlkur sem vilja halda línunum, eins og það er kallað, ættu að forð- ast allan mat, sem skapar fitu. Mest fitandi tegundir matar eru þessar: Svínakjöt, feitt kjöt, heilagfiski, feitur fiskur, lax og síld. Steikt kjöt og fiskur er meira fitandi en soðið. Mjólkursúpur, sætar súpur, mjólkurgrautur með mjólk út á, mjólk súr og ósúr, rjómi, smjör. Allar sósur eru fitandi, bæði feitar og sætar. Mayonnese, rjómabúðingar, eggja- og mjólkurbúðingar, brauð og kökur.“ Hörkumeðferðin Árið 1940 sagði í Morgun- blaðinu frá amerískri fegr- unaraðferð sem kallaðist „Hörkumeðferð“, sagði svo um hana: „Fínustu dömurn- ar standa á höfði þrátt fyrir alls konar lokkaskrýfingu, 26 FÓKUS 20. NÓVEMBER 2020 DV því það kvað hreinsa svo vel húðina og slétta hrukkur. Á snyrtistofum láta þær lemja sig allar að utan með hárpísk- um þar til tárin koma fram í augun til þess að koma blóð- inu á hreyfingu.“ Í þessari aðferð fólst að skrúbba húðina á líkamanum vel og vandlega með nagla- bursta og að toga hressilega í hárið á sér. Eins átti að bursta hár sitt svo hressilega að „það standi út í allar áttir eins og á broddgelti.“ Ekkert undanskilið Enginn hluti líkama kvenna virtist undanskilinn útlits- kröfunum. Mikið var lagt upp úr snyrtilegum höndum og fótum og áttu konur að vera mjúkar og sléttar. Í Vikunni í febrúar 1952 sagði: „Það er undravert að sjá hve margar konur hafa ljóta olnboga. Ef húðin er gróf og hörð er al- veg hættulaust að nota vikur (pimpstein) til þess að ná því mesta“. Litið til baka í den En líkt og við lítum til baka einmitt nú, var það einn- ig gert hér forðum þar sem menn furðuðu sig á fegrunar- ráðum fortíðarinnar. Í Vísi árið 1941 var litið til baka: „Sjötíu ára kona segir að í bernsku hafi sér verið skipað að bera bækur á höfð- inu í margar klukkustundir á hverjum degi. Það átti að gefa henni fallegra göngulag. Hún átti líka að hlaupa upp og ofan stiga oft á dag. Það átti að koma blóðinu á hreyf- ingu og var talið hollt. Sólböð mátti ekki tala um, það var hneyksli og ekki nokkurri siðlegri stúlku sæmandi.“ Þar er einnig vísað í frásögn 87 ára konu um fegrunar aðferðir æsku sinn- ar. „Þá sóttum við vatn í bolla að nóttu til þegar tungl var í fyllingu. Þetta vatn urðum við að sækja í einhvern brunn, sem var í námunda við kirkju. Við sólarupprás urðum við að drekka vatnið, en þá urðum við að vera stödd í kirkju- garði, því annars kom það ekki að neinum notum. Eftir nokkra mánuði kom undra- verður árangur í ljós“. Níræð kona kom með enn furðulegri aðferð. Hún hafi átt að búa til meðal gegn hrukkum og var það meðal annars búið til úr seyði af hvítum baunum, soð- inni hænu og hundafeiti.“ Líklega var það besta ráðið sem fram kom í Sjómanna- blaðinu í janúar 1982: „Besta fegrunarlyf konu er nærsýnn maður“. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.