Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Blaðsíða 11
ir bókina vera góða samtíma- sögu. „Ég er 33 ára en það hef- ur gífurlega mikið breyst frá því að ég var á þessum aldri. Ég þekki alveg þennan heim, bæði í gegnum starf mitt og af því maður þekkir fólk sem hefur verið þarna. Maður verður mjög meðvitaður um það þegar börnin manns eld- ast að það þarf að fylgjast með þeim. Það er svo auðvelt að fara yfir þessa línu.“ Sólmundur tekur í sama streng. „Það er þessi klisja að vera til staðar. Að börnin þín geti treyst þér og talað við þig. Það er það sem maður getur gert.“ Skúringar og aðhaldsbuxur Viktoría og Sóli eru að upp- leggi mjög ólík og hlutu ólíkt uppeldi. Sóli er alinn upp af einstæðri móður að hluta til úti á landi en Viktoría í Selja- hverfinu. „Ég var einhvern tímann að monta mig af því að hafa aldr- ei beðið foreldra mína um pen- inga á menntaskólaárunum. Þá var ég búinn að gleyma því að Parið rak aug- un í listaverkið á veggnum á hárréttu augnabliki og keypti það. MYND/ERNIR Ég hef einu sinni efast um að ég hafi ekki valið mér rétta konu. Það var þegar ég fór með Viktoríu fyrst í parket- verslun og þetta var eins og að vera með ungling í búð. en það skilar sér því miður alls ekki í að ég sé sérstak- lega góð húsmóðir,“ segir hún hlæjandi en Viktoría hefur orð á sér fyrir að vera afar klaufsk þegar kemur að elda- mennsku. ,,Við vorum bara að vinna okkur inn peninga til að geta keypt okkur franskar og nammi og eitthvað svona. Mér fannst svo merkilegt að vera í vinnu og var mjög stolt þegar ég fékk fyrstu vinnuna í snyrtivöruverslun í Firðinum í Hafnarfirði hjá mömmu vin- konu minnar þegar ég var 13 ára og seldi eldri konum að- haldsbuxur í hrönnum. Svo fór ég að vinna í dömudeild- inni í Hagkaup og vann líka í nokkrum fatabúðum með námi. Eftir á séð finnst mér eiginlega að ég hafi unnið of mikið og hefði kannski átt að njóta þess betur að vera í námi enda er það dýrmætur tími sem líður hratt en ég hef alltaf verið svolítið að flýta mér í lífinu,“ segir Viktoría sem lærði mannfræði og hag- nýta menningarmiðlun. Þvoði hár fyrir strípum Sóli lærði viðskiptafræði og segist þó hafa verið í sveit sem barn svo hann hafi nú ekki set- ið með hendur í skauti fram á háskólaárin. Fjölskylda Sóla er ættuð frá Hveragerði og býr bróðir hans þar og pabbi hans ekki langt frá. „Ég byrjaði í sveit tíu ára gamall og var í sveit næstu fimm sumur. Þá kom maður nú heim með smá hýru eftir sumarið. Fyrsta sumarið voru það sex þúsund en síðasta sumarið þénaði ég hundrað þúsund. Mamma var alveg hissa því hún kom með ávís- anaheftið að sækja mig eftir fyrsta sumarið, alveg viss um að hún þyrfti að borga fyrir pössunina.“ Viktoría hlær og Sólmundi er mikið niðri fyrir þar sem hann fer yfir glæstan feril sinn í unglingastörfum. „Ég var aldrei að vinna með skóla en í fríum vann ég. Þvoði hár á hárgreiðslustofu í jólavertíð- inni og fékk strípur í staðinn. Ég var alltaf vel liðinn og það var stemming þar sem ég var. Ég var mjög vel liðinn sem einstaklingur en ekkert endi- lega sem starfskraftur. Ég hef oft fengið að hanga lengur í vinnu fyrir að vera hress og skemmtilegur og hef bara einu sinni verið rekinn. Ég hef líka almennt valið eitthvað annað umfram heiðarlega vinnu. Ég hætti til dæmis í vinnu sem dyravörður í Regnboganum til að einbeita mér að menntaskólaleikriti.“ Barnalánið Sólmundur lofaði barnaher- bergi handa drengjunum fyrir jólin og að sauma saman sundurgrafinn garðinn fyrir næsta vor en húsmóðirin hefur sjálf lofað kraftaverki. Hún er gengin tæpar fjórtán vikur með annað barn þeirra Sóla. Sóli á fyrir drengina Matthías og Baldvin Tómas og Viktoría á dótturina Birtu. Saman eiga þau svo hana Hólmfríði Rósu allan menntaskólann var ég að vinna við „skúringar“. Málið var þó það að mamma skúraði en ég hirti peninginn. Ég fór stundum með og tæmdi ruslið og þurrkaði af en hún gerði það yfirleitt aftur því ég gerði það svo illa. Ég get því ekki barið mér á brjóst fyrir að hafa ekki beðið um neina peninga í menntaskóla en tek þó skýrt fram að eftir það hef ég staðið algerlega á eigin fótum.“ Svona fyrir utan þvottinn? „Já, einmitt. Ég er algjört dekurrassgat.“ Viktoría fékk ólíkt upp- eldi. Hún er ekki skilnaðar- barn eins og Sóli en foreldrar hennar fögnuðu á dögunum 40 ára brúðkaupsafmæli. Hún er yngst í systkinaröðinni og á þrjá eldri bræður. „Það var alltaf mikið fjör og ég á einstaklega góða for- eldra. Okkur skorti ekki neitt en maður fékk ekkert bara allt sem maður vildi. Það var bara ekki þannig þá eins og þetta er víða í dag. Við vinkonurnar byrjuðum því ungar að passa börn og sáum um heilu heim- ilin uppi í Seljahverfi frá því að við vorum tíu, ellefu ára. Við vinkonurnar vorum oft að passa frá níu til sex um helgar FRÉTTIR 11DV 20. NÓVEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.