Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Blaðsíða 44
S egja má að þættirnir The Queen‘s Gambit hafi heldur betur slegið í gegn en þeir verma sem stendur fyrsta sæti vinsælda- listans á íslenska Netflix-inu. Þættirnir fjalla um hina ungu Beth Harmon, sem stefnir á að verða krýnd heimsins besti skákmaður, en á sama tíma glímir hún við andleg veikindi og misnotar vímugjafa. Þætt- irnir þykja afar vandaðir og fyrirtaks skemmtun, en þeir hafa þó einnig vakið athygli fyrir tvo leikara sem þar bregður fyrir. Litli Sam Thomas Brodie-Sangster vann hug og hjörtu fólks er hann lék hinn unga Sam í jólamyndinni Love Actually. Í myndinni hafði Sam nýlega misst móður sína en það var þó annað sem hélt fyrir honum vöku á nótt- unni og það var ást hans á skólasystur sinni sem hann sá ekki sólina fyrir. Afréð hann því að læra á trommur til að ná að ganga í augun á henni. Útkoman var hin krúttlegasta og nýtur myndin enn mikilla vinsælda um hátíðirnar. En Sangster leikur ein- mitt í The Queen‘s Gambit og ráku margir upp stór augu að þekkja þar hinn unga Sam úr Love Actually sem fullorðinn mann, en hann er 30 ára í dag. Þó hann sé orðinn sautján árum eldri er hann enn auð- þekkjanlegur og þykir enn búa yfir sama æskuljómanum og hann gerði forðum. Telja margir að hann hafi nánast ekkert elst og líti því enn út fyrir að vera 13 ára drengur og því hafi verið undarlegt að velja hann í þetta „fullorðins“- hlutverk. Sangster hefur þó ekki setið auðum höndum á milli Love Actually og Queen‘s Gambit og hefur meðal annars farið með hlutverk í þáttunum vin- sælu Game of Thrones sem og með hlutverk í kvikmynd- unum Nanny McPhee og Maze Runner-myndunum. Vondi fósturbróðirinn Sangster er þó ekki eina barnastjarnan sem bregður fyrir í The Queen‘s Gambit en þar má líka líta leikarann Harry Melling. Melling varð þekktur fyrir hlutverk sitt í kvikmyndunum um galdra- strákinn Harry Potter. Þar fór Melling með hlutverk Dudley Dursley, hins óviðkunnan- lega og ofdekraða fóstur- bróður Harry Potters, sem þótti ekkert betra en að gera uppáhaldsgaldrastráknum okkar lífið leitt. Melling naut því lítilla vinsælda utan kvik- myndanna, þar sem margir áttu erfitt með að skilja hann frá persónu Dursleys. Tíminn vann þó með honum og eftir því sem hann hefur elst, þeim mun minna svipar honum til Dursleys. Það voru því líklega færri sem þekktu Melling en Sangster, þegar þeim brá fyrir í The Queen‘s Gambit. Myndin um strák Aðrir nýlegir þættir sem njóta mikilla vinsælda eru þættirnir The Great. En það eru gaman- þættir sem byggja lauslega á ævi Katarínu miklu, keisara- ynju Rússlands. Þar leikur leikarinn Nicholas Hoult stórt hlutverk. Hoult er, líkt og Sangster og Melling, fyrrverandi, bresk barnastjarna, en hann heillaði okkur upp úr skónum í ljúfsáru kvikmyndinni About a Boy, þar sem hann fór með hlut- verk hins unga Marcus, sem vingast við hinn fullorðna Ned sem leikinn er af Hugh Grant. The Great er þó langt í frá fyrsta verkefni Hoult frá því að hann lék í About a Boy. Hann hefur meðal annars leikið í Mad Max: Fury Road, Clash of the Titans, X-Men: First Class og uppvakninga- rómantíkinni Warm Bodies. n Ekki lengur börn Barnastjörnum skýtur reglulega upp á himininn enda eiga börnin auðvelt með að vinna hjörtu okkar. Nú birtast okkur þrjár breskar barnastjörnur sem fullorðnir menn í nýjum, vinsælum þáttum. Hlutverk Melling í Harry Potter- myndunum var ekki til þess fallið að skapa honum vinsældir. En kannski þýðir það að hann hafi verið sannfærandi í hlutverkinu. Litli Sam er kominn á fertugsaldurinn. Hvað tíminn flýgur! Ekki lengur litli sæti drengurinn, heldur fjallmyndarlegur ungur maður sem er greinilega að fara að láta að sér kveða í framtíðinni. 32 FÓKUS HARRY MELLING NICHOLAS HOULT THOMAS BRODIE-SANGSTER Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is 20. NÓVEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.