Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Qupperneq 44
S egja má að þættirnir The Queen‘s Gambit hafi heldur betur slegið
í gegn en þeir verma sem
stendur fyrsta sæti vinsælda-
listans á íslenska Netflix-inu.
Þættirnir fjalla um hina ungu
Beth Harmon, sem stefnir á
að verða krýnd heimsins besti
skákmaður, en á sama tíma
glímir hún við andleg veikindi
og misnotar vímugjafa. Þætt-
irnir þykja afar vandaðir og
fyrirtaks skemmtun, en þeir
hafa þó einnig vakið athygli
fyrir tvo leikara sem þar
bregður fyrir.
Litli Sam
Thomas Brodie-Sangster vann
hug og hjörtu fólks er hann lék
hinn unga Sam í jólamyndinni
Love Actually. Í myndinni
hafði Sam nýlega misst móður
sína en það var þó annað sem
hélt fyrir honum vöku á nótt-
unni og það var ást hans á
skólasystur sinni sem hann sá
ekki sólina fyrir. Afréð hann
því að læra á trommur til að
ná að ganga í augun á henni.
Útkoman var hin krúttlegasta
og nýtur myndin enn mikilla
vinsælda um hátíðirnar.
En Sangster leikur ein-
mitt í The Queen‘s Gambit og
ráku margir upp stór augu að
þekkja þar hinn unga Sam úr
Love Actually sem fullorðinn
mann, en hann er 30 ára í dag.
Þó hann sé orðinn sautján
árum eldri er hann enn auð-
þekkjanlegur og þykir enn
búa yfir sama æskuljómanum
og hann gerði forðum. Telja
margir að hann hafi nánast
ekkert elst og líti því enn út
fyrir að vera 13 ára drengur
og því hafi verið undarlegt að
velja hann í þetta „fullorðins“-
hlutverk.
Sangster hefur þó ekki setið
auðum höndum á milli Love
Actually og Queen‘s Gambit
og hefur meðal annars farið
með hlutverk í þáttunum vin-
sælu Game of Thrones sem
og með hlutverk í kvikmynd-
unum Nanny McPhee og Maze
Runner-myndunum.
Vondi fósturbróðirinn
Sangster er þó ekki eina
barnastjarnan sem bregður
fyrir í The Queen‘s Gambit
en þar má líka líta leikarann
Harry Melling. Melling varð
þekktur fyrir hlutverk sitt í
kvikmyndunum um galdra-
strákinn Harry Potter. Þar fór
Melling með hlutverk Dudley
Dursley, hins óviðkunnan-
lega og ofdekraða fóstur-
bróður Harry Potters, sem
þótti ekkert betra en að gera
uppáhaldsgaldrastráknum
okkar lífið leitt. Melling naut
því lítilla vinsælda utan kvik-
myndanna, þar sem margir
áttu erfitt með að skilja hann
frá persónu Dursleys. Tíminn
vann þó með honum og eftir
því sem hann hefur elst, þeim
mun minna svipar honum til
Dursleys. Það voru því líklega
færri sem þekktu Melling en
Sangster, þegar þeim brá fyrir
í The Queen‘s Gambit.
Myndin um strák
Aðrir nýlegir þættir sem njóta
mikilla vinsælda eru þættirnir
The Great. En það eru gaman-
þættir sem byggja lauslega á
ævi Katarínu miklu, keisara-
ynju Rússlands. Þar leikur
leikarinn Nicholas Hoult stórt
hlutverk.
Hoult er, líkt og Sangster og
Melling, fyrrverandi, bresk
barnastjarna, en hann heillaði
okkur upp úr skónum í ljúfsáru
kvikmyndinni About a Boy,
þar sem hann fór með hlut-
verk hins unga Marcus, sem
vingast við hinn fullorðna Ned
sem leikinn er af Hugh Grant.
The Great er þó langt í frá
fyrsta verkefni Hoult frá því
að hann lék í About a Boy.
Hann hefur meðal annars
leikið í Mad Max: Fury Road,
Clash of the Titans, X-Men:
First Class og uppvakninga-
rómantíkinni Warm Bodies. n
Ekki lengur börn
Barnastjörnum skýtur reglulega upp á himininn
enda eiga börnin auðvelt með að vinna hjörtu
okkar. Nú birtast okkur þrjár breskar barnastjörnur
sem fullorðnir menn í nýjum, vinsælum þáttum.
Hlutverk Melling í Harry Potter-
myndunum var ekki til þess fallið
að skapa honum vinsældir. En
kannski þýðir það að hann hafi
verið sannfærandi í hlutverkinu.
Litli Sam er kominn á fertugsaldurinn. Hvað tíminn flýgur!
Ekki lengur litli sæti drengurinn,
heldur fjallmyndarlegur ungur
maður sem er greinilega að fara
að láta að sér kveða í framtíðinni.
32 FÓKUS
HARRY MELLING NICHOLAS HOULT
THOMAS BRODIE-SANGSTER
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
20. NÓVEMBER 2020 DV