Fjölrit RALA - 10.09.1978, Blaðsíða 58
b4.
punktarnir þéttastir á svæði, sem tilheyrir rakri mýri. Þótti því
fróðlegt að athuga hvað væri svona sérstakt við reiti M5-M9, J12, F8
og Ml. Gróðurgreining þessara reita fylgir hér með. Oddamælingar úr
hverjum reit eru 64 eða 640 oddar og út frá þeim er % hverrar tegundar
reiknuð. (Tafla 5 bls. 61-66) Athugun sem þessi verður mun auðveldari
þegar búið er að ganga frá gögnum í tölvuvinnslu og hægt að fá útprent-
anir fyrir hverja tegund af öllu svæðinu.
Skoðum fyrst reit M8. Þar er 19 sinnum skráð beit. Mýrastör er
33.91 % af heild, síðan kemur gulstör með 21.72 %. Þegar reiturinn
var skoðaður var gulstörin alltaf snöggt bitin og má því fullyrða að
féð var að sækjast eftir henni í þessum reit. Næst mest er bitið f
reit Mh, 11 skráningar. Þar hefur gulstcr n mestan þéttleika, hún er
38.28 % ar oddamælingum. Gulstörin er mikið bitin x þessum reit og
ama má segja um hana á öðrum stöðum. Tíu skráningar eru í J12. Af
eítirsóttum jurtum er helst að nefna sauðvingul með 7.97 %, hálmgresi
4.84 % og túnvingul með 2.66 %. Mýrastör og klófífa hafa mestan þétt-
leika en voru ekkert bitnar. M9 hefur 8 skráningar, þar er mýrastör
49.38 %, hálmgresi 6.88 %, túnvingull 4.84 % og gulstör 2.50 %.
M5 hefur 7 skráningar. Skriðlíngresi er 2.03 % og gulsrör er 2.50 %.
I þessum reit er það fyrst og fremst gulstörin, sem féð sækist eftir.
Hún ti’ á bletti næst reit M6 og hefur þar nærri 100 % þekju. í reit
F8 eru b skráningar og það eftirsóknarverðasta um gróðurfar, að þar er
4.84 % túnvingull, sauðvingull 2.97 % og tjarnastör 1.25 %. Tjarnastör
virðist vera vinsæl beitarplanta og er yfirleitt bitin, undantekning er
að finna heila plöntu í mýrinni. M1 hefur einnig 6 skráningar. í reitn
um er mýrarstarar-mýrelftingarsamfélag með helstu beitarplöntum túnvingl
3.28 %, tjarnarstör 4.38 % og skriðlíngresi 2.19 %.
Kort það sem birtist í Hestvist 1976 bls. 82 fellur engan veginn
saman við kortið frá sumrinu '77. 1976 var skráð einu sinni á sólar-
hring og enginn greinarmunur gerðxir á hvort féð lá, rásaði eða beit.
Kort það gefur því verulega takmarkaðar upplýsingar.
Fjöldi punkta eða skráninga sumarið 77 var aðeins 370, sem ekki
er mikið. Ekki er hægt að athuga beit í Hestvistarmýrinni nema í júní
og ágúst vegna þess að rekið er á fjall í byrjun júli og féð fer ekki
að koma aftur í mýrina fyrr en í ágúst. Athugun sú sem hér hefur verið
greint frá var framkvæmd 18., 20., 22., 24., 25. og 28. júni og 6. júlí
en þá var smalað.