Fjölrit RALA - 15.01.1980, Blaðsíða 50
46
Æskilegt er að geta veitt sem skýrastar upplýsingar um, hvaóa
áhrif tiltekin frávik frá hagkvæmustu lausn hafi á breytilegan
kostnað. Gera þyrfti töluverða útreikninga til viðbótar þeim,
sem hér birtast, til að sjá, hvað áhrif breytingar á stuólum
hafa mikið að segja, og nota til þess fleiri bú.
Niðurstöður útreikninganna væru góð leiðbeining um, hvar leggja
beri aukna áherslu á úrvinnslu á rannsóknaniðurstöðum eða geró
nýrra rannsókna. Einkvim er mikilvægt, ef unnt væri aó velja
stuðla i gróffóðuröflunarlikanió með tilliti til upplýsinga um
legu og eiginleika túna á búinu.
Likan af þvi tagi, sem hér hefur verið lýst, ætti fyrst og fremst
aó geta komið að notum við að taka ákvarðanir um búskaparaðgerðir
hjá einstökum bændum, en niðurstöður útreikninga af þvi tagi,
sem gerðar voru á sýnidæminu, geta einnig komið að notum við
val á aðferðum til stjórnunar á landbúnaðarframleiðslunni.
Þegar tillögur um breytingar á búskap eru gerðar eftir niður-
stöðum útreikninga með likaninu, ber að hafa i huga, að öryggi
niðurstöðunnar minnkar eftir þvi sem hún felur i sér meiri
breytingu.
Á einstöku búi yrði likanið notað tvisvar á ári, á vorin, þegar
ákvörðun er tekin um gróffóðuröflun og áburðarkaup, og á haustin,
þegar ákvörðun er tekin um ásetning og kjarnfóðurkaup. Þessi
tviþætta notkun likansins gefur visbendingu um, hvernig vinna
beri að endurbótum á þvi.
Á vorin er fyrirsjáanlegt, hve miklar fyrningar munu verða til
næsta vetrar, og túnstærð er þekkt. Hins vegar rikir óvissa um,
hve vel muni spretta og hvernig hey muni nýtast. Verið er að
taka ákvörðun við aóstæður óvissu. Til þess að ákvörðunin verði
sem réttust, þarf að nota hendingarlikan (stókastiskt likan),
þar sem gefið er, hvaða likindadreifingu grasspretta sumarsins
og þeir þættir, sem ráða gæðum heyjanna, fylgi. Með þessu er
átt við, að grasspretta sumarsins er ekki þekkt að vorinu. Hins
vegar getur verið unnt að meta likurnar á þvi, að hún verði t.d.