Fjölrit RALA - 10.04.1992, Blaðsíða 63
55
Korpa 1991
Gregori Litur í meðallagi, harðar og seigar, lítið sætar, sérkennilegar á bragðið með
stingandi eftirbragði. Eftir suðu eru þær mjúkar með góða áferð, í meðallagi
sætar, bragðsterkar og mjög góðar. Henta vel til suðu.
Mocum Frekar dökkar á lit, mjög stökkar og meyrar, lítið sætar og bragðmildar.
Vottur af vatnsbragði. Eftir suðu eru þær mjög fallega appelsínugular á
litinn, mjúkar með góða áferð, sætar en frekar rammar og með aukabragði.
Clarion Dökkar á lit, harðar, í meðallagi sætar en vondar á bragðið með aukabragði
(sápubragði). Eftir suðuna eru þær fallega appelsínugular, harðar eins og
þær séu ekki fullsoðnar, lítið sætar, bragðlausar og vondar. Það var
samdóma álit að þetta væru bragðverstu gulræturnar, bæði hráar og soðnar.
Amsterd. Finc. Ljósar á lit, meyrar og mjúkar, frekar lítið sætar, með smávegis stingandi
eftirbragð. Eftir suðu eru þær fallegar á litinn, mjúkar en bragðdaufar,
eingöngu sykurbragð.
Að dómi smökkunarhópsins eru Nobles og Nantes Forto bragðbestar hráar og Nantes
Nanthya litlu síðri. Af hráu gulrótunum þóttu Clarion verstar. Soðnar þóttu Nantes Topscore
bestar og Panter og Gregori einnig mjög góðar. Clarion þóttu líka verstar soðnar.