Rit Búvísindadeildar - 20.11.1995, Side 19

Rit Búvísindadeildar - 20.11.1995, Side 19
100 Sláttuvél 3. mynd. Áhrif sláttuvéla(knosara) á sköddun heystráanna. Ekki varð beinurn mælingum á þurrefnistapi við komið að þessu sinni. Sennilegt er að nokkur hluti þeirra stráa sem féllu í 3. flokk hafi tapast við snúning og rakstur heysins. Meðaltölur um hrápróteinmagn heyins við hirðingu úr þessari tilraun benda til þess en á þeim var þó ekki tölfræðilega marktækur mismunur: Óknosað hey; PZ 170 g hráprótein í kg þe. Knosað hey; Krone 166 - Knosaðhey; Deutz-Fahr 163 - Lækkun próteinhlutfalls getur verið mælikvarði á molnun og blaðtap úr heyinu. Sé hins vegar aðeins um öndunartap að ræða hækkar próteinhlutfallið oftast nær, því þá gengur á auðleystari efni heysins, einkum sykrumar. 3.2 Athuganirnar A-B Þurrkunarathuganimar vom gerðar við hagstæð veðurskilyrði (sjá 2. töflu). Þær stóðu yfir í skamman tíma enda miðaðar við takmarkaða forþurrkun, svo sem vegna votheys- verkunar í tumum og rúllum. a. Knosun án heysnúnings. Reyna skyldi forþurrkun heys í sláttumúgum í því skyni að spara með öllu notkun heyþyrlu. Slegið var með PZ- og Krone-sláttþyrlum. Þöktu múgar beggja vélanna 57-59% þurrkvallarins. Einnig skyldi athuga hvort mismunandi meðferð heysins við slátt hefði áhrif á þéttleika heys, væri það bundið í rúllubagga. Bundið var með MF-rúllubindivél af gerðinni 822 (fastkjama rúllubindivél) og sýnir 8. tafla helstu niðurstöður athugunarinnar: 14

x

Rit Búvísindadeildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.