Rit Búvísindadeildar - 20.11.1995, Qupperneq 23

Rit Búvísindadeildar - 20.11.1995, Qupperneq 23
Forþurrkun heys á velli - þurrkunarhraði og efnabreytingar Bjarni Guðmundsson og Ásdís Helga Bjarnadóttir YFIRLIT í tveimur tilraunum sumarið 1992 voru rannsökuð áhrif tíma sláttar og fyrsta snúnings heys á þurrkunarhraða þess, svo og breytingar á meltanleika heysins, sykrumagni þess og bujferhcefni með hliðsjón afvotheysgerð í rúlluböggum. Borinn var saman sláttur árdegis (kl. 10-11) og að kvöldi (kl. 21-22). Snúningstímim var 0, 3, 6 og 12 klst eftir slátt. Niðurstöðumar má draga saman þannig: • Meginhluti þurrkunar heysins varð á tímabilinu kl. 9 til kl. 21, þegar eimhungur loftsins var mest. Þurrkuninni mátti lýsa með jöfnunni y = a + bx, þar sem y er þurrefni heysins (%) ogx eimhungurssumma (kPa-klst) á virkum þurrkunartíma (kl. 9-21). Hallastuðlar (b) kvöldslœgju reyndust hœrri en hallastuðlar morgunslœgju. Þá reyndust hallastuðlarnir þeim mun hærri sem skemmra leið frá slcetti til fyrsta snúnings heysins; • Bufferhœfni grassins við slátt mœldist lítil: 18-33 m.E/100 g þe. Hún var 9% minni í kvöldslægju en morgunslægju. Bufferhœjhi morgunslægju féll við þurrkun upp að 40-45% þe. en steig síðan. Bufferhœfni kvöldslegna heysins tók hins vegar að aukast strax eftir slátt. Við algengt hirðingarstig ( - 45% þe.) reyndist bufferhœfni kvöldslegna heysins vera liðlega helmingi meiri (> 45 mE/100 g þe.) en heys sem slegið var að morgni; • Sáralitlar breytingar urðu á sykrumagni heysins við forþurrkun að 45% þe. og meltanleiki þurrefnis lækkaði aðeins um 2%, væri heyinu snúið strax að slætti loknum. Niðurstöður tilraunanna, sem gerðar voru viðfremur hagstæð veðurskityrði, benda lil þess að með því að sláað kvöldi megi nýta virkan þurrktíma heysins betur ogfá öllu auðmeltara og sykruríkara hey en með því aðsláað morgni. 18

x

Rit Búvísindadeildar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.