Rit Búvísindadeildar - 20.11.1995, Síða 39

Rit Búvísindadeildar - 20.11.1995, Síða 39
og heyþurrkunarlilrauna á Hvanneyri benda tii þess að í hagfelldri heyskapartíð rýrni meltanleiki kvöldslegins heys minna við forþurrkun heys á velli en meltanleiki heys sem slegið er að morgni (Bjarni Guðmundsson og Ásdís Helga Bjarnadóttir 1995). Með hliðsjón af niðurstöðum þessarar athugunar gæti því verið rétt að leggja áherslu á kvöldslátt, a.m.k. ef sólfar hefur ríkt og horfur eru á þurrki að morgni. Athugunin bendir til að þannig megi vænta 2-3% meira fóðurs en ef slegið er að morgni. Rétt væri að rannsaka þctta atriði nánar og kanna þá hvort bendingar um grastegundamun f þessu efni séu á rökum reistar. Nokkur mismunur kom fram á eiginleikum þeirra grasa, sem athuguð voru, með hliðsjón af hæfni þeirra til votheysgerðar. Vallarfoxgrasið hafði hóflegt próteinmagn, fremur hátt þurrefnishlutfall og reyndist einkum auðugt af glúkósa, sem er aðalhráefni mjólkursýrugerjunar. Hlutfall sykra og vatnsmagns í því var hátt, en allt þetta eykur líkur á því að verka megi gott votliey úr grasinu. í flestu fylgdi beringspunturinn þétt á eftir vallarfoxgrasinu, en hlutfall glúkósa í honum var þó lágt og sveiflukennt (2. tafla). Gæti það skýrt fremur slæma reynslu af votverkun hans í rúlluböggum (Bændaskólinn á Hvanneyri 1990). Grófleiki beringpuntsins kann líka að valda vanda við þjöppun hans í votheysgeymslu, nema gripið sé til söxunar heysins. í meltanleika þurrefnis slóð beringspunturinn töluvert að baki hinum grösunum tveimur. Vallarsveifgrasið tók beringspunti og vallarfoxgrasi fram að metnu fóðurgildi, en með hliðsjón af votheysgerð var efnamagn þess óhagstæðara en hinna grasanna, einkum vegna þess hve sykrumagnið var takmarkað í hlutfalli við vatns- og hrápróteinmagn þess. Með notkun hjálparefna fyrir gerjunina og hæfilegri forþurrkun ætti þó að mega ráða bót á þessum annmörkum. Vallarsveifgrasið (Fylking) er hins vegar afai blaðríkt og á því að vera auðvelt að þjappa því saman til súrsunar og geymslu. 5. ÞAKKIR Grassýni til þessarar athugunar voru tekin úr tilraunuin á Hvanneyri sem Rfkharö Bynjólfsson hefur skipulagt og annast. Allar efnagreiningar annaðist starfsfólk rannsókna- stofu Hvanneyrarskóla undir stjórn Bjöms Þorsteinssonar deildarstjóra sem einnig veitti þarfar ábendingar um úrvinnslu efnis. Þeim öllum er þökkuð aðstoðin. 6. HEIMILDIR Bjami Guðmundsson 1970. Törking av höy og muligheter for denne meUxlen under islandske væiforhold. Lisensiat-avhandling, NLH, 130 bls. Bjami Guðmundsson og Ásdís Hclga Bjamadóttir 1995. Forþurrkun heys á velli - þurrkunarhraði og efnabreytingar. Sjd bls. 18-27 í þessu riti. Bjöm Jóhannesson og Kristfn Kristjánsdóttir 1954. Efnasamsetning grass á ýmsum aldursstigum og hæfni þess lil vothcysgerðar. Ril Landbúnaðardeildar, Atv.d. Háskólans, B-fl. nr. 6, bls. 20-37. Butler, G.W. og R.W. Bailcy 1973 (eds.). Chemistry and Biochemistry ofHerbage. Vol. 1-11, 34

x

Rit Búvísindadeildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.