Fréttablaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 11
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Frá 19.120 kr. JÓLATILBOÐ
Fullt verð frá: 23.900 kr.
A F S L ÁT T U R
20%
L Ú X U S B A Ð S L O P P A R
T I LV A L I N J Ó L A G J Ö F
Í síðustu kjarasamningum var samið um styttingu vinnuvik-unnar bæði á almenna og opin-
bera vinnumarkaðnum. Leiðirnar
sem samið var um eru með ýmsum
hætti og víða eru flókin úrlausnar-
efni sem atvinnurekendur og starfs-
menn þurfa að leysa til að koma
styttingu vinnuvikunnar í fram-
kvæmd.
Á opinbera markaðnum var
víðast hvar samið um styttingu
sem kemur til framkvæmda um
næstu áramót. Gert er ráð fyrir að
starfsmenn og stjórnendur komi
sér saman um útfærslu bæði á stytt-
ingunni og því hvernig starfsmenn
nýta hana, sem einnig getur verið
með ýmsum hætti. Ætla má að opin-
beri markaðurinn sé víða kominn
vel á veg með að útfæra þennan þátt
kjarasamninga.
Á almenna markaðnum tók stytt-
ing vinnuvikunnar gildi um síðustu
áramót hjá þeim sem vinna sam-
kvæmt samningi VR og SA.
Hjá verkafólki innan ASÍ þurfa
starfsmenn á hverjum vinnu-
stað að kjósa um það í atkvæða-
greiðslu hvort hefja eigi viðræður
við atvinnurekanda um styttingu
vinnuvikunnar samhliða niður-
fellingu kaffitíma á dagvinnutím-
bili. Að atkvæðagreiðslu lokinni er
hægt að hefja viðræður um stytt-
ingu vinnutíma og er það gert á
grundvelli 5. kafla kjarasamninga
um svokallaðan fyrirtækjaþátt.
Hjá iðnaðarmönnum er svo enn
önnur útfærsla þar sem tekinn var
upp virkur vinnutími í apríl síðast-
liðinn og er hann nú 37 klukku-
stundir á viku, en greiðsla vegna
neysluhléa var færð inn í mánaðar-
kaup. Jafnframt geta iðnaðarmenn
kosið um það á hverjum vinnu-
stað hvort hefja skuli viðræður
við atvinnurekanda um styttingu
vinnuvikunnar með sama hætti og
hjá verkafólki. Hjá háskólamennt-
uðum starfsmönnum á almennum
markaði hefur ekki verið samið
um vinnutímastyttingu en engu að
síður getur verið ástæða til að skoða
stöðu þess hóps einnig með það í
huga hvort vinnutímastytting eigi
við og þá hvernig hún geti komið til
framkvæmda.
Það eru eðlilega þó nokkrar vænt-
ingar hjá starfsmönnum tengdar
styttingu vinnuvikunnar og ekki
víst að atvinnurekendur geti í öllum
tilfellum komið að fullu til móts
við þær. Nefna má að á mörgum
vinnustöðum hefur þegar komist á
vinnufyrirkomulag þar sem starfs-
menn skila í raun minni vinnu en
áskilin er í kjarasamningum. Það er
því ekki víst að starfsmenn hafi alls
staðar rétt til að stytta vinnuvikuna
ef horft er til þess sem samið var um
í kjarasamningum. Full stytting
miðar við að stytta fulla vinnuviku,
oftast 40 stundir á viku.
Markmiðið með vinnutíma-
styttingu er meðal annars að bæta
nýtingu vinnutíma og vinnustaða-
menningu með það fyrir augum
að stuðla að bættum lífskjörum og
samræmingu vinnu og einkalífs. Til
að svo megi verða er mikilvægt að
vanda undirbúning að breytingum
og taka mið af aðstæðum á hverjum
vinnustað því hér hæfir ekki ein
lausn fyrir alla.
Það er ekki auðvelt verkefni sem
bíður stjórnenda og umhverfið
getur verið flókið. Mikilvægt er að
gæta að því að um leið og markmið-
um kjarasamninga verði náð þá leiði
breytingar ekki til aukins kostnaðar
og óhagræðis. Það eru tækifæri í
styttingu vinnuvikunnar bæði fyrir
launþega og fyrir atvinnurekendur.
Minni vinna, meira frí –
eða hvert er markmiðið með
styttingu vinnuvikunnar?
Greinin er skrifuð til foreldra og forráðamanna barna í leik- og grunnskólum, í
þeim tilgangi að vekja athygli á
hversu mikilvægt gott og heilnæmt
inniloft er okkur öllum, ekki síst
börnum. Þeir sem hafa haft með
höndum byggingu, rekstur, eftir-
lit og viðhald loftræstibúnaðar í
leik- og grunnskólum, hafa greini-
lega ekki staðið rétt að málum eins
og mörg dæmi sanna. Reglulega
er fjallað um einhvern skóla sem
býr við mikinn raka og óheilnæmt
inniloft og einhver dæmi eru um að
skólabygging sé jafnvel metin ónot-
hæf. Höfum í huga að öll börn eru
skyldug samkvæmt lögum til að
stunda grunnskólanám sem gerir
ábyrgð okkar á vellíðan og heil-
brigði þeirra enn meiri. Hvað sást
okkur yfir og hvað er til ráða, sem
er jú aðalatriðið? Reynsla mín sem
fagaðila í þessum málum í marga
áratugi kennir mér að við getum
ekki tryggt ákvæði reglugerðar
um gæði innilofts nema með því
að mæla stöðugt ástand loftsins í
hverju kennslurými.
Á boðstólum hafa lengi verið
til fjölmargar tegundir mæla sem
mæla stöðugt gæði innilofts mjög
nákvæmlega, jafnframt með því að
vista og geyma allt að 30.000 mæla-
gildi. (til dæmis með 15 mín. milli-
bil í fjóra mánuði). Mælarnir eru
fyrirferðarlitlir og mjög auðveldir
í notkun. Verð einstakra mæla
er á bilinu 20-30.000 kr., eða sem
nemur 1.000 til 1.500 kr. á hvern
nemanda. Mælana er hægt að setja
á skrif borð eða festa á vegg, og þeir
birta á skjá gæði inniloftsins með
skýrum hætti og geyma í minni
mælagildi eins og nefnt var hér að
framan. Rekstrarkostnaður þess-
ara mæla er nær enginn.
Samkvæmt upplýsingum sem ég
hef aflað mér er almennt mjög tak-
markað eftirlit með gæðum inni-
lofts í leik- og grunnskólum. Helst er
brugðist við þegar einhver kvartar
um þungt loft eða vonda lykt.
Kvartanir og mat á loftgæðum eru
þannig oftast byggð á tilfinningu
eða þefskyni þess sem kvartar, eða
þegar best lætur eru mæld augna-
bliksgildi sem segja okkur ekkert
um almennt ástand. Samkvæmt
byggingarreglugerð (nr. 112/2012)
skal í skólum og frístundaheimilum
loftræsta með loftræstibúnaði og
inniloftið endurnýjað með fersku
útilofti. Magn loftsins (l/s) skal
miðað við stærð hvers skólarýmis
og fjölda nemenda. Til að tryggja
að svo sé, er auk þess tekið fram í
sömu reglugerð, að leyfilegt magn
af koltvísýringi (CO2) í innilofti sé
ekki meira að jafnaði en 0,08% og
fari ekki til skamms tíma yfir 0,1%.
(1.000 ppm.).
Til að svara spurningunni hversu
mikið bættari við yrðum með inni-
loftsmælum í hverju kennslurými
samanborið við núverandi ástand,
vil ég benda á eftirtalin atriði:
Mælarnir tryggja að ábyrgðar-
og rekstraraðilum skólanna berast
reglulega upplýsingar um ástand
inniloftsins í hverju kennslurými
sem auðveldar þeim að svara spurn-
ingum um hvort hönnun loftræsti-
búnaðar, frágangur og viðhald sé
með réttum hætti. Mælarnir auð-
velda fagaðilum hlutverk sitt það er
að hanna, framkvæma og viðhalda
loftræstibúnaði þannig að ákvæð-
um laga og reglugerða um loftgæði
í skólum sé fullnægt. Mælarnir auð-
velda kennurum og umsjónarfólki
skólanna eftirlit með loftgæðum
í hverju kennslurými þannig að
auðveldara verði að bregðast við
eðlilegum kvörtunum foreldra eða
annarra ættingja barnanna sem eru
í þeirra umsjá.
Eðlilegt er að spyrja, hvaða eigin-
leika innilofts í kennslustofum
skal almennt mæla og hvers vegna?
Mitt mat er að það sé nóg að mæla
eftirtalin þrjú gildi í öllum kennslu-
rýmum, 1. Innihita, 2. Raka og 3.
Koltvísýring. Þá ætti einnig að mæla
svifryk og eim í innilofti (gildi 4.) í
að minnsta kosti einu kennslurými,
en slíkir mælar eru eitthvað dýrari.
Hér á eftir eru upplýsingar um
viðmið einstakra gilda til frekari
glöggvunar.
1. Hitastig. Almenn viðmiðun er
22-23°C innihiti hjá kyrrsetu-
fólki. Fyrir hverja eina °C í frá-
viki verða um 30% ósáttir (P.O
Fanger).
2. Raki. Almenn þægindamörk
fólks eru 35-55% hlutfallslegur
raki (%HR). Höfum í huga að smit-
virkni vírusa er margfalt lengri í
innilofti við 23% HR en 43% HR.
(Science News 14.2.2013).
3. Koltvísýringur (CO2). Hlut-
fall CO2 í útilofti er tæplega
Um gæði innilofts í leik- og grunnskólum
Kristín Þóra
Harðardóttir
lögfræðingur í
forsætisráðu-
neytinu og ráð-
gjafi hjá Gott
og gilt
Svavar Tryggvi
Óskarsson
eldri borgari
og fyrrverandi
ráðgjafi, meðal
annars um gæði
innilofts
0,04%, en eins og fram kemur
hér að framan gera opinberar
reglur kröfur um að CO2 í inni-
lofti kennslurýma fari ekki yfir
0,08% að jafnaði og ekki hærra
en 0,1% til skamms tíma. Sem
dæmi hefur mælst 0,4% CO2 í
kennslustofu, ÁD 2002. Höfum í
huga að 0,1% CO2 skapar slen og
höfga hjá fólki og fari CO2 í 0,5%
eru það tímabundin hættumörk
heilsu (ASHRAE).
4. Svifryk og eimur. Svifryk er
aðallega afurð bæjarumferðar
og mannvirkjaframkvæmda í
nærumhverfi skóla. Svifryk er
að mestu uppspænt malbik og
mengaðar saltagnir. Eimur (lykt)
sem til kemur vegna rokgjarnra
efnasambanda (til dæmis vírus-
ar). Svifryk sest helst í öndunar-
veg en fínar svifagnir geta borist
langa vegu með lofti, borist í
lungu og blóðrás viðkomandi
einstaklinga
Ég hvet Heimili og skóla, lands-
samtök foreldra, til að fylgja þessu
máli eftir.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0