Harmonikublaðið - 01.05.2017, Side 10

Harmonikublaðið - 01.05.2017, Side 10
Borgarstjórinn á Vitatorgi Við í Vitatorgsbandinu fengum skemmtilega heimsókn fyrir stuttu. Vitatorgsbandið sem svo er kallað leikur í salnum á Vitatorgi, sem er ein margra félagsmiðstöðva eldri borgara í Reykjavík, á hverjum miðvikudegi frá klukkan eitt til þrjú. I bandinu eru þau Eiríkur Sigurðsson, Gísli Gíslason, Guðrún Guðjónsdóttir, Hjálmar Jóhannesson, Theodór Bragason og Valbjörn Guðjónsson, sem öll leika á harmonikur, en auk þeirra leikur Eirný Asgeirsdóttir á gítar að ógleymdum Þóri Magnússyni, sem sér um trommurnar, eins og hann hefur gert með harmonikuunnendum síðastliðin 40 ár. A Vitatorgið mættir reglulega slæðingur eldri borgara með ólæknandi dansþrá og i L ^ || Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson með Guðrúnu Guðjónsdóttur og nokkrum dansgesta taka sporið í mesta bróðerni. Á dögunum tók borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, sér frí frá hinu daglega amstri við stjórn borgarinnar og mætti á ball hjá okkur. Borgarstjórinn brá undir sig betri fætinum og tók fullan þátt í dansinum og skemmti sér hið besta. Þakkaði hann hljómsveitinni fyrir góða skemmtun og virtist alveg vita hvert hann á að fara þegar hann verður 67. Kveðja, Guðrún Guðjónsdóttir I léttum dansi á Vitatorgi Lengi er von á einum Þetta skemmtilega bréf barst ritstjóra á dögunum. Þar kemur fram að áhugahópur um harmonikuna hefur endurvakið harmonikufélagið á Höfin í Hornafirði. Stofnfundur Félags harmonikuunnenda í Hornafirði fór fram 22. apríl sl. Á fundinn mættu 16 stofnfélagar en nú þegar eru 32 búnir að skrá sig í félagið. Zophonías Torfason stjórnaði fundi og farið var yfir lög félagsins. Hrefna Magnúsdóttir var kjörin formaður og aðrir í stjórn eru Jóhanna Einarsdóttir ritari og Katrín Osk Jónsdóttir gjaldkeri, meðstjórnendur eru Oskar Þorleifsson og Sverrir Þórhallsson. Boðið var upp á kaffi og að sjálfsögðu heimabakað brauð, höfðu sumir að orði að það mætti halda að um fermingarveislu væri að ræða. Að lokum spiluðu þeir á harmonikur Haukur Helgi Þorvaldsson og Zophonías Torfason. Þeir ætla svo að spila á degi harmonikunnar 6. maí í miðbæ Hornafjarðar Haukur og Zophonías, kannske fleiri ef fást. Að lokum óskum við harmonikuunnendum um land allt gleðilegs sumars. Með harmonikukveðju, Hrefna Magnúsdóttir. Fyrsta stjórn Eélags harmonikuunnenda íHornafirði. Ev. Óskar Þorleifison, Sverrir Þorvaldsson, Jóhanna Einarsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir formaður, Katrín Ósk Jónsdóttir. 10

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.