Harmonikublaðið - 01.05.2017, Side 22

Harmonikublaðið - 01.05.2017, Side 22
Hvert var upphaf harmonikumótanna? Við Þorsteinn létum ekki staðar numið. Nú var komið blað til að miðla upplýsingum og maður búinn að kynnast því erlendis hvað harmonikumótin sameinuðu fólk innan harmonikumenningargeirans. Reyndar áttu Islendingar á þessum tíma ekki úr miklu að velja að sækja mót og alls ekki nikkumót. Forleikurinn að móti úti í náttúrunni sem við nefndum „I útilegu með harmoniku“ fór fram að okkar frumkvæði í Galtalækjarskógi 24.-26. júlí 1987, en þá mætti um 25 manna vinahópur úr FHUR. A þessum stað hófum við svo formlegt mót 1988, er auglýst var í blaðinu Harmonikan að væri öllum harmonikuunnendum opið. I Galtalækjarskógi vorum við í 5 ár, eða til 1992 og sífellt jókst aðsóknin, fólk farið að koma víða af landinu og mótsgestir orðnir 300. Við komum á ýmsum keppnum, markaði, veittum verðlaun, fórum í gönguferðir og leiki með börnunum, sungum og spiluðum með gleðina að vopni. Þá var að finna nýjan stað 1993. Fyrir valinu varð fallegt svæði í Þrastaskógi við Sogið, þar sem var stór flöt í skóginum. Nú héldum við áfram að þróa mótið, bættum í dagskrána varðeldi og danspalli ásamt að vera með samkomutjald. Mótshaldið varð geysi vinsælt, tónlist samin tileinkuð mótinu og verðlaunin „Belgurinn“ afhentur þeim sem var mesti mannþekkjarinn varðandi gamalar myndir af harmonikuleikurum, yngsti nikkarinn, frumlegasta hljóðfærið og fl. Steini og Gústa hættu 1996, en við Sirrý héldum síðasta mótið 1997 og enduðum það með stæl þar sem par var gift. Brúðhjónin voru þau Guðný Sigurðardóttir og Friðjón Hallgrímsson. A þessum tíma voru aðrir byrjaðir með harmonikumót, þar með var markmiði okkar náð og formleg mót orðin 10 að tölu, (1988 - 1997). Allt frá fyrstu harmonikumótunum höfum við hjónin notið ánægjustunda á hinum fjölmörgu mótum sem við höfum heimsótt vítt og breitt um landið. Þar höfum við hitt vini og kunningja, en að blanda geði 22 við harmonikuunnendur er ánægjulegt innlegg í minningabanka sérhvers manns. Hvenær hófst þátttaka þín í heimsóknum erlendra harmonikuleikara? Félagsstörf innan Félags harmonikuunnenda í Reykjavik voru nú komin á fullt skrið og fleiri félög verið stofnuð, m.a. Harmonikfélag Þingeyinga og Harmonikuunnendur Vesturlands. Þáverandi formaður þess, Aðalsteinn Símonarson, hafði heilmikil tengsl við Noreg og náði þar sambandi við Málselv Nye Trekkspillklubb. Þetta endaði með því að áðurnefnd félög stóðu saman að því að annast mótttöku norska félagsins á íslandi. Þarna var ég fenginn í spilið vegna norskukunnáttu minnar, bæði varðandi móttöku í Reykjavík og til að fylgja hljómsveitinni upp í Borgarfjörð og víðar. Þessi heimsókn reyndist nú aðeins byrjunin, því hver viðburðurinn rak nú annan og 1982 bauð Málselvog SenjaTrekkspillklubb umræddum félögum til síns heima, þar sem ég ásamt fleirum annaðist skipulagningu fyrir sunnan en Ingvar Hólmgeirsson fyrir norðan. Ferð þessi reyndist mikill viðburður og skemmtun bæði tónlistarlega sem og að kynnast Noregi betur vítt og breitt ásamt að kíkja aðeins inn til Svíþjóðar og Finnlands. Uppúr þessu ferðalagi er Senja Trekkspillklubb átján manna stórhljómsveit boðið til fslands árið 1983. Þarna kom ég mikið við sögu ásamt Jóni Inga Júlíussyni. Eg annaðist allar bréfaskriftir milli landanna, en á þeim tíma var skriftaleiðin öruggust og ódýrust til að hafa allt á hreinu. Eg var svo fenginn til að fylgja hljómsveitinni sem kom hingað með mökum sínum um allar trissur sunnan og vestanlands og til Húsavíkur. Lars Ek boðið til landsins Nú varð skammt stórra högga í milli, boðskapurinn um merkan sænskan harmonikusnilling að nafni Lars Ek barst inn á borð til SIHU. Landssambandið hafði fullan hug á að útbreiða boðskap léttleikans í harmonikutónlist og úr varð að SÍHU bauð Lars til landsins í júlí 1985 til stórtónleikahalds, en hann fékk með sér hérlenda undirleikara, þá Þorstein Þorsteinsson á gítar og Þórð Högnason á bassa. Ráðamenn sambandsins fengu mig til liðs að vera fararstjóra og að fylgja hersingunni eftir á hina ýmsu staði. Komið var fram hjá eftirtöldum félögum, HUV, FHUE, HFÞ, HFR og FHUR. Þessi tónleikaferð sló í gegn og verður lengi minnst. Lars hefur ætíð lagt mikla áherslu á tónlist eftir Pietro Frosini og ýmsa aðra þekkta höfunda hinnar glaðlegu harmonikutónlistar. Eftir þessa fyrstu heimsókn samdi hann vals, sem hann tileinkaði Islandi, Twilight on Iceland, sem birtist í blaðinu Harmonikunni í október 1986. Enn fleiri tónlistarviðburðir Ef ég man rétt hafði Lars Ek samband við mig kringum áramótin 1985-86 og sagðist vera áhugasamur um að halda tónleika í Reykjavík ef við vildum, með hljómsveit sinni Lars Ek‘s Hot-Trio. Hann gæti hagað seglum sínum þannig að koma yfir helgi með þeim félögum sínum, sem voru auk Lars, Bengt Sjöberg á bassa og Karl Erik Holmgren á gítar. Eftir skyndifund með stjórn FHUR var stokkið á þetta og íslenska Operan (Gamla Bíó) tekin frá eitt föstudagskvöld í febrúar 1986. Unnið var hörðum höndum að koma boðskapnum um hæfileika Lars og hans manna til skila. Húsfyllir varð og slóu þeir félagar svo rækilega í gegn að Lars varð nánast að þjóðsagnapersónu fyrir vikið meðal áheyrenda. Þess má og geta að Lars hefur oft komið til landsins síðan, bæði til tónleikahalds og í einkaheimsóknir, þar sem ég hef ávallt verið hans hægri hönd. Þessi góði vinur minn veitti mér þá óvæntu virðingu að tileinka mér lag í maí 2001, Trasteskogvalsen, sem birtist í síðasta tölublaði Harmonikunnar 2001. Sigmund Dehli Næst bauð SÍHU Norðmanninum Sigmund Dehli og fimm manna hljómsveit hans til landsins, í maí 1987. Hljómsveitin kom fram hjá HUV, FHUE, HFÞ, HFRog FHUR. Þar var ég fararstjóri allan tímann, en auk þess fór SIHU fram á það að ég annaðist allar bréfaskriftir við tengiliðinn í Noregi, John Mandelit. Þetta þjálfaði mann í norskunni (skandinaviskunni) og sjálftraustið jókst. Léttleikinn var í fyrirrúmi hjá hljómsveitinni og túlkun norskrar tónlistar var mögnuð. Sigmund Dehli og félagar fóru um víðan völl með snilldina að leiðarljósi er skildi eftir gleði og undrun áheyrenda hvar sem farið var um. Sigmund Dehli hefur komið margoft til íslands eftir þetta til tón- og dansleikjahalds m.a. á árshátíð FHUR. Hann hefur samið fjölda laga, eitt þeirra er tileinkað Islandi, Islands mynner. Grieghöllin í Bergen Fljótlega eftir heimsókn Sigmundar Dehli sendi umræddur John Mandelit, sem búsettur var í Bergen, enn eitt bréfið til mín og bauð félagshljómsveit FHUR ásamt völdum einleikurum til Bergen að koma fram í Grieghöllinni, á margrómuðum harmonikutónleikum sem hann hélt þar árlega. Við þekktumst boðið í október 1987, ég sem tengiliður og fararstjóri í enn eitt

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.