Harmonikublaðið - 01.05.2017, Síða 26

Harmonikublaðið - 01.05.2017, Síða 26
ÞA GOMLU GOÐU.. /HHMIX Þeir voru fundvísir á forvitnilegar greinar þeir Hilmar og Þorsteinn. Þessi birtist í 2. tölublaði Harmonikunnar í 13. árgangi. Hér má lesa um nýja gerð af hljómborði frá Rússlandi. Ekki veit ég um vinsældir þess, en ég minnist ekki að hafa séð svona harmonikuborð hér á landi í það minnsta. Greinin er birt með góðfúslegu leyfi Hilmars Hjartarsonar. Kravtzow-kerfið nýtt harmonikuhljómborð Spennandi þróun á harmonikuhljóm- borðinu. Maður hefði talið að búið væri að finna upp allt sem mögulegt er í útfærsl- um harmonikuhljómborðs, en svo einfalt er það ekki. Hinn rússneski tónlistarpró- fessor Nikolaj Krawtzow hefur þróað nýtt kerfi fyrir harmonikuhljómborð eins og kynnt var í 2. tbl. 1997—'98 af Harm- onikunni. Er sú grein þýdd úr harmon- ikutímaritinu Nygammalt. Fleiri blöð hafa sýnt þessu mikinn áhuga og nú síð- ast Trekkspillsnytt þar sem Svenn Eng- elund skrifar og lýsir hrifningu sinni af kerfinu. Norðmaðurinn Per-Ola Sverre, sem er þarlendur umboðsniaður fyrir þessar nýju harmonikur, hefur góðfúslega gefið mér leyfi til að birta það sem skrif- að er og hefur sent ntér greinar til þýð- ingar. „Það er draumur framtíðar að geta fengið alla harmonikuleikara til að sam- einast um þetta kerfi, og þar með útiloka öll fyrri kerfa vandamál," segir í skrifum um kerfið á einum stað. Hvað sem því líður er hér á ferðinni ný uppfinning sem áhugavert væri að kynnast. Per-Ola Sverre hefur boðað mig ásamt fjölþjóð- legum aðilum til Saint Petersburg 2.-9. apríl f vor til sérstakrar kynningar og kennsluráðstefnu. Ég verð að segja það strax, að þvf miður get ég ekki lagt upp í slfkan leiðangur, þó spennandi sé. Heldur álít ég að verkefnið passi frekar aðilum sem þegar flytja inn harmonikur. Ég hef allar nánari upplýsingar (s: 565-6385) Til viðbótar við fyrri upplýsingar í Harmon- íkkunni læt ég nú fylgja með skýringar- ntynd af hluta hljómborðsins auk eftirtal- inna skýringa: • Borðið er slétt. • Það er aðallega ætlað fyrir þá sem spila þegar á píanóharmoniku og byrj- endur. • Passar vel fyrir barnahendur. • Nánast sama fingrasetning í öllum tóntegundum. • Auðvelt að byggja kerfið inn í eldri harmonikur eða kaupa nýtt borð. • Hægt er að læra á kerfið beint eða á bilinu 5-6 mánuðum frá pfanóborði. H.H. 'M hiegri: Rtfssneska sjónvarpsstjaman Alla að kynna lilnta tír Kravtzpw kerfinu. Til vinstri: Htír sést vel uppbygging nótnaborðsins á þessttm parti af hljómbordinu. Professor Kravtzow kynnir Itér Itið nýja kerfi með nemanda sínttm í St. Petersburg. Auka tónaröð Röð með hálfnótum Önnur tónaröð Fyrsta tónaröð 10

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.