Harmonikublaðið - 01.05.2018, Side 3

Harmonikublaðið - 01.05.2018, Side 3
Harmonikublaðið ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaður: Friðjón Hallgrímsson Espigerði 2, 108 Bxykjavík Sími 696 6422, fridjonoggudnj@interneUs Prentvinnsla: Héráðsprent, Egilsstöðum, nnm.heradsprent.is W Forsíða: Eorsíðumjndin sýnir stemmingu frá síðasta sumri til að minna á það sem er í vcendum. Meðal efnis: - Heiðursborgari Isafjarðar - Frá starfi Nikkólínu í Dölum - Fréttir frá Harmonikufélagi Þingeyinga - Harmonikufélag Þinge}inga 40 ára - Hagyrðingamót í Plornafirði - Veturinn hjá FHUR - Þá var kátt í höilinni! - Með harmonikuna að vopni - Minning, Þórir Magnússon - Lag blaðsins, Magnús Eiríksson - Harmonikuhátíð Reykjavíkur - Minning, Bjarni Marteinsson - Fréttabréf úr Eyjafirði - Fréttir frá Harmonikufélagi Vestfirðinga -1 þá gömlu góðu ... - FHUR í Sunnuhlíð - Frostpinnar að vestan Auglýsingaverð: Baksiða 1/1 síða kr. 28.000 1/2 síða kr. 18.000 ínnsíður 1/1 síða kr. 22.500 1/2 síða kr. 14.000 1/4 síða kr. 8.500 1/8 síða kr. 5.500 Smáauglýsingar kr. 5.500 Skilafrestur efnis fyrir næsta blað er 1. sepember 2018. v________________________;___________________ Stjórn S.Í.H.U. nöfn, netföng, heimilisföng og símanúmer: Formaður: Gunnar Kvaran alf7@mi.is Álfalandi 7, 108 Reykjavík S: 568-3670/824-7610 Varaformaður: Haraldur Konráðsson budarholl@simnet.is Búðarhóli, 861 Hvolsvöllur S: 487-8578 / 893-4578 Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir sigrunogvilli@gmail.com Breiðabólstað, 371 Búðardalur. S: 434-1207/861-5998 Gjaldkeri: Filippía Sigurjónsdóttir 8208834@internet.is Hólatúni 16, 600 Akureyri S: 462-5534 / 820-8834 Meðstjórnandi: Pétur Bjarnason peturbjarna@internet.is Geitlandi 8, 108 Reykjavík S: 456-4684 / 892-0855 Varamaður: Sigurður Ólafsson sandur2s@magnavik.is Sandi 2, 641 Húsavík S: 464-3539 / 847-5406 Varamaður: Sólveig Inga Friðriksdóttir solveiginga@emax.is Bólstaðarhlíð 2, 541 Blönduós S: 452-7107/856-1187 Ritstjóraspjall Gleðilegt sumar. Á aðalfundi SÍHU sem haldinn var norður við Mývatn síðastliðið haust kom fram áskorun frá Karítas Pálsdóttur um að Reykjavíkurfélögin tæku sig saman og héldu næsta landsmót í Stykkishólmi, en Karitas hafði með lagni og harðfylgi tekist að standa fyrir landsmótinu á Isafirði. Það eru nú að verða 36 ár síðan Félag harmonikuunnenda í Reykjavík stóð að fyrsta landsmóti SIHU í júní 1982. Það mót fór fram í Reykjavík og nágrenni dagana 4.- 6. júní og var með talsvert öðru sniði en síðar hefur tíðkast. Þátttökufélögin voru, eftir því sem ritstjórinn kemst næst, ekki nema fjögur, en landssambandið hafði verið stofnað árinu áður. Þetta fyrsta landsmót hófst með tónleikum á Lækjartorgi á föstudeginum. Síðan var dansleikur í Sigtúni um kvöldið. Daginn eftir var dansleikur í Festi í Grindavík. Á sunnudeginum var loks efnt til skemmtifundar í Glæsibæ, þar sem mótinu var slitið. Ekki er vitað til að einhverjir hafi gist á tjaldsvæði borgarinnar. Framan af var hefð fyrir því að í lok eins landsmóts kynntu næstu mótshaldarar sinn mótsstað. Þá gat verið spennandi að fylgjast með, því ekkert hafði spurst út og jafnvel fleiri en einn staður sem kom til greina. Þetta breyttist í Reykjanesbæ árið 2008, en þá var ekki tilkynnt um næsta mótsstað. Síðan hefur orðið erfiðara með hverju árinu að finna mótshaldara. Að halda landsmót í dag er talsvert meira mál en 1982, að ég tali nú ekki um að fara í önnur byggðarlög en mótshaldarar eru búsettir í. Það kallar á algjörlega ný viðhorf fyrir harmo- nikufélögin í Reykjavík að halda landsmót tvö hundruð kílómetra frá höfuðborginni. Þar við bætist að ekkert félag er lengur í Hólminum. Það liggur í augum uppi að ekki er girnilegur kostur að halda mótið á Reykjavíkursvæðinu. Ekki er augljóst hvar landsmót skuii haldið ef Reykjavíkurfélögin treysta sér ekki til þess. Sömuleiðis er ekki hægt að draga mikið iengur að taka ákvörðun um mótsstað. Það er þó augljóst að tæplega verða aðrir en Reykvíkingar kallaðir til, þar eð flest hinna félaganna, sem á annað borð hafa bolmagn til þess, hafa staðið að landsmótum síðustu fimmtán árin. Það kallar á gríðarlega góða skipulagningu að halda mótið í Stykkishólmi. Ekki verður séð að það verði gert án aðkomu bæjarstjórnarinnar, sem kosin verður í lok maí. I Stykkishólmi eru nokkuð góðar aðstæður til mótshalds. Tjaldsvæði er í næsta nágrenni íþróttahússins, sem er ekki óáþekkt því sem er á Hellu og sundlaug sambyggð. Það er reyndar mjög stutt á hótelið, sem nýta mætti til dansleikjahalds með íþróttahúsinu. Það styttist því tíminn sem gefst til að ákveða næsta mótsstað. I versta falli gæti landsmótið á ísafirði hafa verið það síðasta sem haldið var á Islandi. Því verður ekki trúað fyrr en á reynir, að það verði raunin. Reykjavíkurféiögin eiga eftir að ráða ráðum sínum og svara stjórn landssambandsins, fyrr en seinna. f fréttum var þetta helst í vetur létu bíræfnir þjófar greipa sópa í Hljóðfærahúsinu við Síðumúla. Svo merkilegt sem það hljómar var einungis stolið vönduðustu harmonikum verslunar- innar. Það fer ekki á milli mála að þarna var verið að stela upp í pöntun eins sagt er. Hljóðfærahúsið sá sér því ekki fært að auglýsa í blaðinu núna, enda birgðirnar í lágmarki. Von er til að Eyjólfur hressist með hausdnu. I apríllok fór Þorvaldur Pálsson á Bjargi í Miðfirði í hljóðver til að hljóðrita nokkur af sínum bestu lögum. Með honum léku tveir náfrændur hans, þeir Sigurður Ingvi Björnsson á gítar og Sigurður Helgi Oddsson á píanó. Þremenningarnir slógu eftir- minnilega í gegn á Laugarbakkahátíðinni síðasta sumar, þegar þeir iéku af fingrum fram í eftirmiðdagskaffinu. Ekki er vafi að fengur verður að þessum nýja diski. Karítas Pálsdóttir hefur nú, eftir níu ár í forsvari, látið af formennsku í Harmoniku- félagi Vestíjarða. Hún tók við af Ásgeiri S. Sigurðssyni vorið 2009. Hennar verður ekki síst minnst fyrir landsmótið, sem hún stóð fyrir síðastliðið sumar, harmonikuunnendum landsins til mikillar ánægju. Harmoniku- blaðið þakkar langa og ánægjulega samvinnu og óskar henni langra og ánægjuríkra lífdaga. Aðalfundur SÍHU í ár verður haldinn í Eyjafirði í byrjun október í boði Féiags harmonikuunnenda við Eyjafjörð. Jón Þorsteinn Reynisson er kominn heim eftir sex ára nám í Kaupmannahöfn. Sem stendur er hann í barnseignarfríi á heima- slóðum ásamt eiginkonunni. Með haustinu flytja þau síðan til Akureyrar, þar sem tónlistarkennsla tekur við hjá Skagfirð- ingnum. Áður en af því verður ætlar hann þó að halda tónleika í Hofi á Akureyri þann 15. júní, ásamt félögum sínum í Ítríó, þeim Helgu Kristbjörgu og Jónasi Ásgeiri. 1 | Tfy Á Heiðursfélagar SÍHU: Aðalsteinn Isfjörð, Baldur Geirmundsson, Bragi Hlíðberg og Reynir Jónasson. V____________________________________J Kt. SÍHU: 611103-4170 3

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.