Harmonikublaðið - 01.05.2018, Qupperneq 4
Frá starfi Nikkólínu í Dölum
Starfsemin í vetur hefur verið með
hefðbundnum hætti, æfmgar á 2ja vikna fresti
þegar því hefur verið við komið. Reyndar hefur
lítið gefið til æfinga eftir áramótin, bæði vegna
rysjótts veðurfars og mikilla anna félaga í öðru
tónlistarstarfi. En hauststarfið var öflugt.
Félagið hefur aðstöðu til æfinga í húsnæði
tónlistardeildar Auðarskóla og á æfingum er
bæði spilað og spjallað með kaffi og góðu
meðlæti.
Stærsta verkefnið á síðasta ári var auðvitað
þátttaka í landsmóti SIHU á ísafirði, 29. júní
til 2. júlí. Það var æft nokkuð þétt síðari hluta
vetrar og svo eftir sauðburð að vanda. Astvaldur
Traustason skólastjóri Tónheima bættist þá í
Landsmótið heppnaðist í alla staði vel og
Harmonikufélag Vestfjarða á mikið hrós skilið
fyrir skipulagningu og framkvæmd mótsins.
Þetta voru frábærir dagar í þessu fallega
umhverfi og ekki spillti veðurblíðan fyrir, en
það allra besta var samt þessi frábæri
félagsskapur harmonikuunnenda.
En það var í ýmsu öðru að snúast í júní en
æfingum fyrir landsmótið. Laugarbakkahátíðin
var haldin 16.-18. júní, þar spilaði Nikkólína
á föstudagsballinu að vanda. Held að 16
manns hafi tekið þátt í spilamennskunni í
upphafi dansleiks þegar við renndum í gegnum
landsmótslögin til að taka úr okkur mesta
hrollinn. Hátíðin er haldin í samstarfi við
Svo var farið að æfa jólalögin. Hljómsveitin
spilaði á jólamarkaði og kaffisölu
handverkshópsins Ossu í Króksfjarðarnesi 2.
des. Það var svo spilað að vanda á
Dvalarheimilinu Fellsenda á aðventuhátíð 3.
des. og eins heimsóttum við Dvalarheimilið
Barmahlíð á Reykhólum rétt fyrir jólin og
áttum skemmtilega stund með heimilisfólki
og gestum.
Stjórnarkreppan í landinu leystist skyndilega
á aðventunni þannig að forseti lýðveldisins,
Guðni Th. Jóhannesson, ákvað að skella sér í
opinbera heimsókn í Dalina í myrkasta
skammdeginu. Fimmtudaginn 7. des. var
haldið veglegt móttöku- (og kveðjujhóf í
Æfi jýrir fiorsetann
Spilað í samkomutjaldi n u á Ólafisdalshátíð. Ljósmynd: Steinþór Logi Arnarsson
Spilað í handverkshúsinu í Króksjjarðarnesi 30. júlí
Spilað í Hiisinu á Isafirði, ekki stórt dansgólfipar enflott stemming
Frá landsmótinu, spilað í Húsinu. Þarna jyrir miðri mynd er jyrsti formaður
Nikkólínu, Kristján Ölafsson, í góðri sveiflu með Láru Hansdóttur
hópinn og fínstillti landsmótslögin í samstarfi
við Halldór Þ. Þórðarson frænda sinn. Það
var svo þéttur hópur spilara og velunnara sem
mætti á landsmótið. Hljómsveitin taldi að
þessu sinni 12 manns. Spilað var á tónleikum
á föstudeginum, svo spilaði hljómsveitin fyrir
dansi á 2 stöðum á föstudagskvöldinu, í
Húsinu og Krúsinni og hóf svo dansleikinn í
íþróttahúsinu á laugardagskvöldinu.
HUH og hefur gengið mjög
vel. Á Jónsmessunni 24. júní
spilaði Nikkólína í Árbliki
fyrir Breiðfirðingafélagið
sem var þar í útilegu.
Á Reykhóladögum þann 30.
júlí var spilað í hand-
verkshúsinu (gamla kaup-
félaginu) í Króksfjarðarnesi
á meðan fólk gæddi sér á
vöfflukaffi og skoðaði
handverkið. Mjög skemmti-
legt að vanda. Ólafsdalshátíð
var haldin 12. ágúst og þar spilaði Nikkólína
nokkur lög við mjög góðar undirtektir. Daginn
effir var svo árleg messa í Dagverðarnesi, þar
sem harmonikufélagar sjá um tónlist.
Aðalfundur var haldinn 29. nóv. sl. Engar
breytingar á stjórnarliðinu en átta nýir félagar
boðnir velkomnir, mjög ánægjulegt. I byrjun
nóv. spiluðu Melkorka, Halldór og Ríkarður
í 90 ára afmæli Jóns Loftssonar á Hólmavík.
Dalabúð fyrir forsetahjónin og fylgdarlið.
Nikkólína tók þátt í tónlistarveislunni þar og
spilaði nokkur lög. Þetta var skemmtileg stund
en gaman væri að fá forsetahjónin aftur í
Dalina um bjarta sumardaga þegar allur gróður
er í blóma.
Nú er hafinn sauðburður í sveitum í Dölum
eins og um allt land. Á meðan liggja æfingar
niðri því flestir spilarar tengjast
sveitabúskapnum á einn eða annan hátt. En
ekki má taka langt hlé því 15. — 17. júní halda
Nikkólína og Harmonikuunnendur í
Húnavatnssýslum Harmonikuhátíðfjölskyld-
unnar á Laugarbakka í Miðfirði. Nikkó-
línufélagar hlakka til að eiga þar góða helgi
með vinum sínum Húnvetningum og við
vonum að sem flestir harmoniku- og
dansunnendur sjái sér fært að mæta og
skemmta sér með okkur.
Ritað á vordögum í maí í hríðarbyl!
SBH
Ljósmyndir Vilhjálmur Bragason