Harmonikublaðið - 01.05.2018, Qupperneq 10

Harmonikublaðið - 01.05.2018, Qupperneq 10
Hagyrðingamót í Hornafirði Frekar tíðindalítið hefur verið hjá okkur í Félagi harmonikuunnenda Höfn í vetur, höfum þó verið að hittast, bakað kleinur til fjáröflunar félaginu og 3ja kvölda spilavist var fyrir skömmu. En um miðjan vetur var ákveðið að slá í klárinn og fórum við brokkandi suður á Hótel Smyrlabjörg til fundar við Laufeyju Helgadóttur staðarhaldara og bárum upp erindið, hvort möguleiki væri að vera með hagyrðingakvöld og ball þar á vormánuðum. Ekki var að spyrja að undirtektum hjá Laufeyju, bara sjálfsagt mál. Skemmtunin var svo haldin 21. apríl. Boðið var upp á 4ra rétta sérlega ljúffenga kvöldmáltíð. Fengnir voru fjórir hagyrðingar til mótsins, þau Snorri Harmonikufélag Þingeyinga meðsmá „dassi“af Húnvetningum og EyfirSingum á Smyrlabjörgum Hagyrðingarnir í ham. Þórður Júlíusson stjórnandi, Heiða Guðný, Fanney, Kristín og Hljómsveitin á hagyrðingakvöldinu. Halli Reynis, Birgir Reynis, Vigdis, Hildur Petra og Snorri Jónas Pétur Aðalsteinsson á Höfn, Kristín Jónsdóttir Hlíð í Lóni, Fanney Ásgeirsdóttir á Kirkjubæjarklaustri og systir hennar Heiða Guðný Ásgeirsdóttir frá Ljótarstöðum í Skaftártungu. Til að hafa stjórn á hagyrðingunum var fenginn Þórður Júlíusson frá Skorrastað í Norðfirði. Til að spila fyrir dansi fengum við enga heimamenn (gengur bara betur næst) jú reyndar var trommarinn frá Hornafirði, Birgir Reynisson sem spilaði með hljómsveit Vigdísar og Hildar Petru. Fjáröflunardagur hjá harmonikuunnendum á Homafirði 10 Mæting var framar björtustu vonum, en 170- 180 manns mættu til leiks þetta kvöld. Góður rómur var gerður að þessari skemmtun okkar og höfúm við ákveðið að hún verði aftur 13. apríl á næsta ári, sem er helgin fyrir páska. Allt verður þetta auglýst nánar síðar. Þeir sem komu lengst að og slógust í för með 22 Þingeyingum, voru frá Blönduósi og Húnaveri. Kærar þakkir öll þið sem komuð á þessa kvöldskemmtun okkar. Viljum við færa þeim Laufeyju, Bjössa og Birnu á Hótel Smyrlabjörgum alveg sérstakar þakkir fyrir þeirra hjálp og að gera okkur kleift að halda þessa skemmtun. Einn af hagyrðingunum Snorri Aðalsteinsson sendi mér þetta. En fleiri vísur birtast kannski í næsta blaði. Snorri Aðalsteinsson lýsti aðdragandanum að þátttöku sinni á eftirfarandi hátt. Hrefna Magnúsdóttir formaður harmonikufélagsins, matselja og listakokkur bauð mér í mat fyrir nokkru síðan, sagðist þurfa ráðleggingu vegna viðburðar sem félagið hefði á prjónunum. Og veitingarnar maður, það var fordrykkur, vín með dásamlegum mat og koníak í vatnsglösum á eftir. Þegar henni þótti ég nógu vígalegur og góður með mig fór hún að tala um hagyrðingakvöld og þar náði hún mér. Að eiga við Hrefnu Öræfing, er örðugra en taki nokkru gríni. Hún hugðist gera úr mér hagyrðing. Og hellti í mig brennivíni. Ort til Heiðu Guðnýjar Asgeirsdóttir bónda Ljótarstöðum Þinn menningarbragur er margháttaður en megin afikoma nokkuðfiorn. Mér finnst ég vera frægur maður að fá aðyrkja um þig vísukorn. Þórður Júlíusson sem stjórnaði hagyrðingunum á Smyrlabjörgum sendi mér þessar vísur, en Þórður og frú gistu í sumarbústað í Lóni eina nótt þegar þau komu til okkar. Övíða er fegurra á Fróni fjallahringur skartar tindum bláum. Gott er að eiga griðland hér í Lóni geymistþað í hugarfylgsnum smáum. I lífi mínu lánsamur ég er og leiðin vörðuð ótal gleðistundum. I kvöld ég stjórna hagyrðinga her á hornfirskum skáldagrundum. Gleðilegt sumar kæru harmonikuunendur Kveðja, Hrefna Magg. Ljósmyndir: Siggi á Sandi

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.