Harmonikublaðið - 01.05.2018, Page 18
Fréttabréf úr Eyjafirði
Vetrarstarf FHUE veturinn 2017-2018 hefur
að mestu verið með venjubundnum hætti, en
þó hafa verið prófaðar nýjungar í starfinu. A
aðalfundi félagsins sl. haust voru kjörin í
stjórn, formaður Filippía Sigurjónsdóttir,
varaformaður Jóhann G. Möller, gjaldkeri
Jóhannes Jónsson, ritari Bryngeir Kristinsson,
aðrir stjórnarmenn eru Einar Guðmundsson,
apríl. Bryngeir Kristinsson steig íyrstu á svið
ásamt BRAZ hrynsveit. Þá var komið að
hljómsveit undir stjórn Núma Adolfssonar og
BRAZ lauk síðan ballinu. Síðasti dansleikur
vetrarins verður hins vegar haldinn í Lóni 12.
maí. Þátttaka á dansleikjum hefur verið heldur
dræm í vetur og spurning hvort fjárhagslegur
grundvöllur sé fyrir dansleikjahaldi.
og hin besta skemmtun. Fyrir áramót var gerð
tilraun með það sem við kölluðum
„miðvikudags kaffispjall“ eða seinnipartskaffi,
hljóðfæraleikur og spjall, þátttaka var undir
væntingum og var þessi hittingur sleginn af
tímabundið. Eftir áramót var svo prófað að
efna til dansæfinga til að rifja upp sporin í
gömludönsunum og sérdönsum undir
Miðvikudagskaffí í Laxagötunni
Pdlmi í Tónabúðinni Stefánsson d marsballinu, vel studdur af Arna Katli
Pálmi Björnsson, Davíð Jónsson og Stella
Guðjónsdóttir. Reynt hefur verið að halda í
þá stefnu að hafa í það minnsta einn
stjórnarfund í mánuði, þó oftast hafi þeir verið
fleiri.
I vetur hafa verið haldnir fimm dansleikir og
voru þeir allir haldnir í Hofi, Sá fyrsti var á
fyrsta vetrardag 21. október og sáu Hafliði
Olafsson og Strákabandið um tónlistina. Næst
var blásið til leiks 4. nóvember með Braz og
Dansbándið á sviðinu. Eftir tvo mánuði var
svo aftur útkall þann 3. febrúar og hóf Hafliði
dansinn ásamt BRAZ hrynsveit, sem í voru
þeir Gunnar Möller, Jóhann Möller og Jón
Sigurðsson. Einar Guðmundsson var næstur
og BRAZ lauk síðan ballinu. Þann 3. mars
var á ný talin ástæða til harmonikudansleiks.
Að þessu sinni hóf Elín Gerður Jóhannesdóttir
upp raust sína ásamt BRAZ hrynsveit,
Hljómsveit Pálma Stefánssonar tók síðan við
og Dansbandið lauk ballinu. Eins og hefð er
fyrir var haldið ball á síðasta vetrardag 18.
Tvisvar sinnum hefur verið opið hús í handleiðslu harmonikuleikara og dansara úr
félagsheimilinu að Laxagötu 5, en þessi opnu FHUE og mæltist þetta vel fyrir. I vetur hafa
hús hafa verið samkvæmt venju ágætlega sótt danshljómsveitir æft flesta daga vikunnar í
Strákabandiðfrá Húsavík í Hofi í október
Númi Adolfison, Rafn Sveinsson, Árni Ketill Friðriksson, Einar Guðmundsson og Haukur Már Ingólfison á kunnuglegum
slóðum
húsnæði félagsins að Laxagötu 5 og hljómsveit
FHUE hefur æft einu sinni í viku í vetur undir
stjórn Roar Kvam og er stefnt á taka þátt í
þjóðlistahátíðinni Vöku sem haldin verður á
Akureyri í lok maí 2018, einnig stefnir
hljómsveitin á sér tónleika í vor. I síðasta
mánuði var svo byrjað að undirbúa hina
rómuðu Breiðumýrarhátíð sem í fyrra var
flutt að Ydölum í Aðaldal, þar sem er stórt og
rúmgott húsnæði með alla þjónustu.
Harmonikuhátiðin að Ydölum er haldin í lok
júlí og er hin mesta gleði samvera.
Jóhann Möller
18