Harmonikublaðið - 01.05.2018, Síða 21
FHUR í Sunnuhlíð í Kópavogi
íslendingar verða allra þjóða elstir. Það gefur
því augaleið að eldri borgurum fjölgar og þurfa
margir aðstoð við daglegt líf. Af þeim sökum
er nauðsynlegt að fjölga hjúkrunarheimilum.
Það er heilmikil breyting að flytja inn á
hjúkrunarheimili og eru miklar líkur á að
viðkomandi finni fyrir skertum lífsgæðum,
einmanaleika, leiða og vanmáttarkennd. Það
er hins vegar margt hægt gera til að bæta
lífsgæði íbúanna. Hægt að gera lífið á
heimilunum innihaldsríkara þrátt fyrir
augljósa annmarka. Starfsfólk heimilanna er
allt afvilja gert til að stytta íbúum stundir. En
þau hafa takmarkaðan tíma til þess. Fyrir
tveimur árum fékk undirritaður símtal frá
iðjuþjálfa Sunnuhlíðar, Þórdísi Guðnadóttur
varðandi harmonikuleik í Sunnuhlíð.
Undirrituðum leist bara vel á hugmyndina og
fór og kannaði aðstæður til skemmtihalds og
svo var bara að skella sér í djúpu laugina og
halda ball. Undanfarna tvo vetur hafa því
nokkrir félagar í FHUR tekið lagið, ca einu
sinni í mánuði á hjúkrunarheimilinu í
Sunnuhlíð í Kópavogi og nú nýlega bættist
Sólvangur við. Leikið er í þrjú korter til
klukkutíma og jafnvel sungið í lokin. A
þessum stöðum eru flestir íbúanna miklir
sjúklingar og eru jafnvel í hjólastólum. Þó
hefur með samstilltu átaki tekist að auka
heilmikið á lífsgleði hópsins og stytta aðeins
langa tíðindalausa dagana. Það eru þeir
Vindbelgir, Friðjón Hallgrímsson og Hilmar
Hjartarson, sem séð hafa um tónlistina, auk
þeirra Gyðu Guðmundsdóttur og Sveins
Sigurjónssonar, sem hlaupið hafa undir bagga,
þegar þannig hefur staðið á. Þá hafa nokkrir
dansarar úr FHUR tekið þátt og drifið íbúana
af stað í dansinn. Einnig hefur starfsfólk tekið
sporið með hópnum. Ekki er að efa að aðsókn
hefur stóraukist á þessar skemmtanir, sem
sannar að flest er hægt með góðum vilja. Vitað
er að nokkur félög hafa staðið að samskonar
skemmtunum víða um landið og væri gaman
að fá myndskreyttar fréttir af því.
Friðjón HalLgrímsson
Myndir: Þórdís Guðnadóttir
Glaóhlakkalegir spilarar í Sunnuhlíð
Dansinn stiginn í Sunnuhlíð
Landsmót 2017 DVD
Landsmót S.Í.H.U. á ísafirði 29. júní til 2. júlí.
Diskana er hægt að panta hjá Frummynd í tölvupósti.
netfang: frummvnd@amail.com
21