Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.12.2020, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 17.12.2020, Qupperneq 8
STJÓRNMÁL „Hreppsnefnd Ása- hrepps getur engan veginn fallist á að svo stór hluti sveitarfélagsins verði gerður að þjóðgarði,“ segir í bókun hreppsnefndarinnar um frumvarp umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð. H reppsnef nd Á s a h repps í Rangárvallasýslu vill að Alþingi og ríkisstjórn vísi frumvarpinu frá. Ekki verði fallist á að skipulagsvald og stjórnsýsla svæðisins færist frá kjörnum fulltrúum sveitarfélagsins til fulltrúa annarra sveitarfélaga, félagasamtaka og embættismanna. Í nýlegu máli á borði Vatna- jökulsþjóðgarðs varðandi opnun umferðar vélknúinna ökutækja inn í Vonarskarð, hafi umdæmisráð og stjórn gengið þvert á aðalskipulag Ásahrepps og hunsað vilja hrepps- nefndarinnar. „Þar sem þetta mál er í gerjun þessa dagana, er enginn trúverðug- leiki, í huga hreppsnefndar Ása- hrepps, að virða skuli skipulagsvald sveitarfélaga. Slíkar yfirlýsingar eru hjómið eitt,“ segir hreppsnefndin sem kveður málið unnið frá öfugum enda. Henni sýnist að „háttvirtur ráðherra umhverfismála hafi það markmið eitt að slá yfirráðum sínum yfir miðhálendi Íslands og færa í hendur embættismanna og sérhagsmunaaðila“. Að sögn hreppsnefndarinnar er mikil greiningarvinna og samráð óunnið. Fjármögnun verkefnis- ins vanti einnig. „Hér virðist sú aðferðafræði vera höfð í hávegum, að skjóta fyrst og spyrja svo,“ ályktar nefndin og bendir á að fjöldi svæða hafi verið friðlýstur á undanförnum árum. Það kalli á mikið fjármagn. „ Það er a fa r f u rðu leg t að umhverfisráðherra hlaupi af stað með þetta þingmál án þess að fjár- málaáætlun liggi fyrir eða þarfa- greining á innviðauppbyggingu,“ segir hreppsnefndin og hvetur til þess að málið verði dregið til baka og forsendur verði kortlagðar áður en það verði að þingmáli. „Þetta mál er alls ekki nægjanlega undir- búið og dregur einungis úr trú- verðugleika ríkisvaldsins á þessum tímum.“ – gar Hér virðist sú aðferðafræði vera höfð í hávegum, að skjóta fyrst og spyrja svo. Hreppsnefnd Ásahrepps Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag dot.is DÓT Gæði á góðu verði Atli Unnsteinsson fékk frásagarlist í vöggugjöf. Flugstjóri og fl ugkennari í yfi r 40 ár nýtti þennan hæfi leika vel. Atli er stórum hluta fl ugmanna kunnur en þessi bók á svo sannarlega erindi til allra sem hafa gaman að góðum sögum. Sögur úr fl uginu TRÚMÁL Kirkjuþing hefur beint þeim tilmælum til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráð- herra að fella á brott nokkur eldri lög og réttarreglur er gilda um þjóðkirkjuna, sum frá 18. öld. Eitt þeirra er Bréf kansellísins um tilhögun á kirkjuhurðum frá 1828. Það hljómar svo: „Hinn 7. þ.m. hefir Hans hátign allramildi- legast þóknast að úrskurða, að þegar kirkjur eru byggðar að nýju, þá skuli öllum hurðum þannig hagað, að þeim verði lokið upp að innan og gangi út.“ Annað er Forordning áhrærandi uppvaxandi ungdómsins con- firmation og staðfesting í hans skírnar náð sem gilt hefur síðan árið 1741. En „barna confirmation og innvígsla svo og þeirra opinber- legt examen og yfirheyrsla“ er sam- kvæmt þeirri löggjöf „almenn regla og fullkomin skylda.“ Þá vill kirkjuþingið losna við til- skipanir um að kirkjureikningar skuli gerðir eftir silfurmynt, að prestar heimsæki hvert heimili tvisvar á ári, að próföstum beri að tilkynna stiftamtmanni ef prest- setrum er ekki nægilega viðhaldið, og að hneykslanlegar myndir séu ekki í kirkjum á sunnudögum. „Engin annarleg höndlan má hafast um hönd í kirkjunni. Annars skal hver sá, sem gerir á móti þessu, sekjast einu lóði silfurs fyrir hvert sinn,“ segir í tilskipun um tilhlýði- legt helgihald sabb atsins. – khg Kirkjan vill kansellísins bréf og forordning á brott Kirkjuþing vill láta nútímavæða löggjöfina. MYND/ÞJÓÐKIRKJAN Segja umhverfisráðherra ætla að slá yfirráðum sínum yfir miðhálendið HEILBRIGÐISMÁL Tæp 90 prósent starfandi hjúkrunarfræðinga telja að mál hjúkrunarfræðings sem var ákærður fyrir manndráp af gáleysi hafi haft mjög eða frekar mikil áhrif á störf sín. Í nýrri rannsókn koma fram skýrar áhyggjur meðal hjúkrunarfræðinga um að þeir þurfi að svara til saka ef eitthvað fer úrskeiðis í starfi þeirra. Dómsmálið vakti mikla athygli árið 2014 og þetta var í fyrsta skipti sem íslenskur heilbrigðisstarfs- maður var ákærður í sakamáli vegna starfa sinna. Hjúkrunar- fræðingurinn var sýknaður rúmu ári síðar, en þrátt fyrir það virðist málshöfðunin hafa haft afgerandi áhrif á heilbrigðisstarfsfólk. Þetta er meginniðurstaða rann- sóknar Sigurbjargar Sigurgeirs- dóttur, stjórnsýslufræðings og pró- fessors við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Fram kom í könn- un sem lögð var fyrir alla starfandi hjúkrunarfræðinga í fyrra að þeir íhugi nú betur hvort og þá hvern þeir láta vita, ef eitthvað fer úrskeið- is. „Það var greinilegt að málið hafði vakið mjög mikið óöryggi og aukið vitund um áhættuna sem starfinu fylgir, einkum og sér í lagi áhættuna fyrir hjúkrunarfræðingana sjálfa,“ segir Sigurbjörg. „Við getum ekkert treyst því að þetta verði bara til þess að halda heilbrigðisstarfsfólki á tánum og það muni bara passa sig eftirleiðis. Þetta getur aukið hættuna á því að fólk hugsi sig tvisvar um áður en það fer í störf á bráðamóttökum og gjörgæsludeildum þar sem mikil áhætta er til staðar. Það kemur greinilega fram í gögnunum að hjúkrunarfræðingar myndu hugsa sig betur um en nokkru sinni fyrr ef þeir væru kallaðir inn á aukavakt og látnir vinna undir miklu álagi.“ Þá segir hún að óttinn við að annað ákærumál gæti komið upp hafi verið áberandi og að niður- stöður bendi til að hætta sé á f lótta úr stétt hjúkrunarfræðinga ef slíkt ætti sér stað. „Það er þessi mikli ótti við að starfa við f lóknar og áhættusamar aðgerðir og þurfa að taka ákvarð- anir hratt og fumlaust. Ef það er til- fellið þá er okkur ákveðinn vandi á höndum, við þurfum nefnilega að reiða okkur á að stéttir á borð við slökkviliðsmenn, f lugmenn, lækna og hjúkrunarfræðinga geti unnið og beitt þekkingu sinni vel og örugg- lega og tekið hratt ákvarðanir sem mega ekki bíða.“ Með ákærunni sé búið að skapa ákveðið fordæmi fyrir því að hægt sé að ákæra heilbrigðisstarfsfólk fyrir það sem geti farið úrskeiðis í störfum þess. „ Alvarleg atvik í heilbrigðisþjón- ustu sem eru unnin af ásetningi eru óskaplega sjaldgæf og þau ber auð- vitað að rannsaka sem sakamál, en varðandi öll hin málin, sem eru miklu fleiri, þá þurfum við að stíga varlega til jarðar.“ „Ef verið er að kalla fram upp- lýsingar til að kanna saknæmi þá er starfsmaður ekkert mjög opinn fyrir því að koma með allt upp á borðið. Það er bara hinn mannlegi þáttur. Þá missum við mjög dýr- mætar upplýsingar um það hvað raunverulega kom fyrir og hvernig við getum fyrirbyggt það. Það er þá sem öryggi sjúklinga getur verið stefnt í hættu, því við náum ekki að læra af því sem fer úrskeiðis.“ Niðurstöður rannsóknarinnar verða kynntar nánar á fjarfundi Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála klukkan 16 í dag. eidur@frettabladid.is Níu af tíu telja ákæru hafa mikil áhrif á sig Sex ár eru liðin frá því að íslenskur heilbrigðisstarfsmaður var í fyrsta sinn ákærður vegna starfa sinna. Ný íslensk rannsókn bendir til að slík mál gætu orðið til þess að fólk veigri sér við að taka sér störf í heilbrigðiskerfinu. Áhyggjur eru meðal hjúkrunarfræðinga að þeir þurfi að svara til saka ef eitthvað fer úrskeiðis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor við Stjórnmála- fræðideild Há- skóla Íslands 1 7 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.