Fréttablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 12
Lífeyrissjóðir eru einn af hornstein- um íslensks fjármálamark- aðar og hafa nánast einokun á skyldusparnaði íslenskra launþega. Ísland hefur alla burði til að vaxa út úr þeim vanda sem heims- faraldurinn hefur valdið á árinu 2020. Sterk lausaf járstaða og greiður aðgangur að fjár-magnsmörkuðum gera það að verkum að minnk-andi eftirspurn einstakra fjárfesta eftir ríkisskulda- bréfum skiptir ekki sköpum fyrir ríkissjóð. Engu að síður er það áhyggjuefni ef lífeyrissjóðirnir draga úr kaupum á skuldabréfum íslenska ríkisins. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efna- hagsráðherra, í samtali við Mark- aðinn. „Lífeyrissjóðir eru einn af horn- steinum íslensks fjármálamarkaðar og hafa nánast einokun á skyldu- sparnaði íslenskra launþega. Sterk staða ríkissjóðs, jákvæður vaxta- munur og hagsmunir umbjóðenda lífeyrissjóðanna gera skuldir ríkis- sjóðs að álitlegum kosti fyrir þá,“ segir Bjarni. Ávöxtunarkrafa lengri ríkis- skuldabréfa hefur hækkað töluvert á síðustu mánuðum, meðal annars vegna söluþrýstings frá erlendum sjóðum, lítillar eftirspurnar lífeyris- sjóða eftir ríkisbréfum og mikillar óvissu um það hvernig ríkissjóður ætlar að fjármagna fjárlagahallann á næstu árum. Á sama tíma og ríkissjóður horfir fram á stóraukna skuld- setningu vinna lífeyrissjóðir að því að minnka vægi ríkisskuldabréfa í eignasafni sínu og færa sig yfir í áhættumeiri eignir eins og fyrir- tækjaskuldabréf og veðskuldabréf. Samtryggingadeild Almenna lífeyrissjóðsins mun til að mynda lækka hlutfall ríkistryggðra skulda- bréfa af eignasafni sínu úr tæplega 22 prósentum niður í 10 prósent. Aðrir stórir sjóðir á borð við Gildi og LSR hyggjast einnig minnka vægi ríkisbréfanna. „Lífeyrissjóðir hafa í gegnum tíðina verið mikilvægir fjárfestar í skuldabréfum ríkissjóðs og verða það vonandi áfram,“ segir Bjarni en í dag eiga lífeyrissjóðir um 27 prósent af markaðsvirði heildar- skulda ríkissjóðs. Aðrir mikilvægir fjárfestar í skuldum ríkissjóðs eru fjármálastofnanir, verðbréfasjóðir, tryggingarfélög, erlendir fjárfestar og fleiri. Viðmiðið sett til áratuga Lítill áhugi lífeyrissjóða á ríkis- skuldabréfum hefur vakið upp spurningar um lögbundna 3,5 prósenta uppgjörskröfu sjóðanna – einnig kölluð ávöxtunarviðmið. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði á kynningarfundi fjármála- stöðugleikanefndar í gær að upp- gjörskrafan hefði verið mörkuð þegar áhættulausir vextir hérlendis voru mun hærri. Lækkun áhættulausra vaxta á síðustu tveimur áratugum hefur leitt til þess að lífeyrissjóðir fjár- festi með áhættusamari hætti til að geta staðið við skuldbindingar sínar. „Það er deginum ljósara,“ sagði Ásgeir. Spurður um uppgjörskröfuna bendir Bjarni á að ávöxtun lífeyris- sjóðanna hafi verið vel yfir þessu viðmiði undanfarin ár. Vitanlega geti ávöxtunin farið undir þetta tryggingafræðilega viðmið á ein- stökum árum, en að meðaltali hefur þetta viðmið ekki verið hærra en sú ávöxtun sem sjóðirnir hafa náð. Þá sé eignasamsetning lífeyris- sjóðanna margþætt og margar eign- ir þeirra, til að mynda sjóðfélagalán, gefi ávöxtun sem er undir 3,5 pró- senta viðmiðinu. „Það getur verið mikilvægt fyrir sjóðina að f járfesta í tryggum langtímaeignum sem gefa örugga ávöxtun til langs tíma, eins og rík- isskuldabréfum, sem sjóðirnir hafa sótt í og munu væntanlega gera áfram,“ segir Bjarni. „Því má svo bæta við að ef lækka ætti ávöxtunarviðmiðið, þannig að virði eigna lífeyrissjóða yrði minna í framtíðinni en ráð hefur verið fyrir gert, þyrfti að rýra réttindi og draga úr greiðslum lífeyris á móti. Á meðan ávöxtun lífeyrissjóðanna er svo góð sem hún hefur verið í sögu- legu tilliti, og er til að mynda hátt í 10 prósent á þessu ári miðað við horfur, er ekki tilefni til þess. Þetta viðmið er sett til áratuga.“ Ríkissjóður hefur að sögn Bjarna ýmsar leiðir til að mæta sveif lum í eftirspurn eftir skuldabréfum. Hann bendir á að sjóðsstaðan sé sterk og hafi undanfarið verið á milli 300 til 400 milljarðar króna þegar horft er til innlendra og erlendra innistæðna ríkissjóðs í Seðlabankanum. Ríkissjóður hafi einnig notið góðs af rúmri lausafjár- stöðu ÍL-sjóðs, áður Íbúðalánasjóðs, og muni gera það áfram. Framan af ári hefur ríkissjóði gengið vel að fjármagna sig með útgáfu styttri skuldabréfa í krónum sem keypt voru að miklu leyti af bönkum. „Eftirspurn í útboðum lánamála hefur verið góð á árinu, ekki síst á skemmri enda vaxtarófsins en það er eðlilegt þegar um er að ræða mikla aukningu útgáfu á skömmum tíma. Gera má ráð fyrir að það taki nokkur misseri að dreifa skulda- aukningunni yfir vaxtarófið,“ segir Bjarni. Skuldirnar verða sjálfbærar Markaðurinn fjallaði í gær um það hvernig hækkun ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa á síðustu mánuð- um, sem má meðal annars rekja til minni eftirspurnar frá lífeyrissjóð- um, gæti orðið til þess að íslenska ríkið yrði í verri stöðu til að rétta úr kútnum miðað við önnur vestræn ríki sem búa við betri vaxtakjör og sjá fram á minni skuldasöfnun vegna kórónakreppunnar. Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisbréfa til tíu ára, sem stendur nú í 3,3 prósentum, hefur til að mynda hækkað um rúma prósentu frá því um miðjan ágúst. Krafan er nú á svipuðu reki og hún var um miðjan janúar þrátt fyrir að Seðlabanki Íslands hafi lækkað stýrivexti um 2,25 prósent á árinu og efnahags- horfur hafi snarversnað Ef gert er ráð fyrir að skuldir ríkis- sjóðs árið 2025, um 65 prósent af landsframleiðslu samkvæmt fjár- málaáætlun, verði á þeim vöxtum sem ríkið fjármagnar sig á til tíu ára eins og staðan er í dag, um 3,3 prósent, þá verður vaxtabyrði rík- issjóðs 2,14 prósent af landsfram- leiðslu sem jafngildir 65 milljörðum króna á ári. Til samanburðar verður vaxta- byrði Grikklands um 0,98 prósent af landsframleiðslu, en Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn gerir ráð fyrir að skuldahlutfall hins opinbera í Grikklandi verði um 166 prósent árið 2025. Fjármálaráðherra segir rétt að hafa í huga að alþjóðlegi saman- burðurinn gefi aðeins til kynna að svigrúm Íslands til skuldsetningar sé að einhverju leyti minna en ann- arra ríkja. Samanburðurinn sýni aftur á móti ekki hvort svigrúmið sé nálægt því að vera uppurið eða ekki. Þá segir hann sjónarhorn og samhengi skipta verulegu máli en í umfjöllun Markaðarins kemur fram að vaxtabyrði ríkissjóðs sé sú hæsta í Evrópu. „Í því samhengi má líta til þess að sú vænta vaxtabyrði ríkissjóðs sem dregin er upp í Markaðnum, upp á ríf lega 2 prósent af vergri lands- framleiðslu, er um það bil jafn há og fyrir hrun. Hér kemur skýrt fram að lánakjör íslenska ríkisins eru umtalsvert hagstæðari bæði hér og erlendis en nokkru sinni fyrr,“ segir Bjarni. Ábyrg stefna í opinberum fjármálum undanfarin ár hafi skipt höfuðmáli. „Við fórum inn í þetta ástand með lægri skuldahlutföll en flest önnur þróuð hagkerfi,“ nefnir Bjarni. Burðir til að vaxa út úr vanda Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir að skuldir hins opin- bera, það er bæði ríkis og sveitar- félaga, sem námu tæplega 28 pró- sentum af vergri landsframleiðslu í árslok 2019, geti hækkað upp í 65 prósent fyrir lok árs 2025. Eftir það verður unnið að því að lækka hlut- fallið. Bjarni segir að þannig verði skuldahlutfallið „vel viðráðanlegt og bæði lægra en eftir efnahagshrun og lægra en hjá fjölmörgum OECD- ríkjum.“ Spurður hvort skuldasöfnun rík- issjóðs á næstu fimm árum í bland við lakar hagvaxtarhorfur muni á endanum skila sér í skattahækkun- um á fólk og fyrirtæki segir Bjarni að svo þurfi ekki að vera. „Ísland hefur alla burði til að vaxa út úr þeim vanda sem heims- faraldurinn hefur valdið á árinu 2020. Ríkissjóður leggur áherslu á að styðja við öflugt atvinnulíf sem skila mun heimilum, fyrirtækjum og ríkissjóði betri afkomu til fram- tíðar. Skuldirnar verða þannig sjálf bærar og lækka þegar til lengri tíma er litið án þess að koma þurfi til skattahækkana,“ segir Bjarni og ítrekar að stjórnvöld hafi náð gríð- arlega miklum árangri í að lækka skuldir á síðustu árum. „Ýmsar hagtölur virðast benda til þess að efnahagslífið taki víða hraðar við sér en f lestar spár sem gerðar voru á milli apríl og október gerðu ráð fyrir, sem styður við rök fyrir því að styðja við efnahagslífið í gegnum hremmingarnar.“ thorsteinn@frettabladid.is Með burði til að vaxa út úr vandanum Fjármálaráðherra segir áhyggjuefni ef lífeyrissjóðir draga úr kaupum á ríkisbréfum. Ríkissjóður í góðri stöðu til að mæta sveiflum í eftirspurn. Segir ekki tilefni til að endurskoða uppgjörskröfu lífeyrissjóða. Skuldasöfnun næstu ár kalli ekki endilega á hærri skatta. Sjóðsstaða ríkissjóðs er 300 til 400 milljarðar króna þegar horft er til innlendra og erlendra innistæðna ríkissjóðs í Seðlabankanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Viðhalda þarf trúverðugleika Stjórnvöld geta fengið hagstæðari lánskjör og létt á þrýstingi á inn- lendum skuldabréfamarkaði með erlendri lántöku. Fjárlagafrum- varp fyrir 2021, sem Alþingi hefur til meðferðar, gerir ráð fyrir að ríkissjóður hafi heimild til að afla lánsfjár upp á 430 milljarða króna, hvort heldur er á innlendum eða erlendum lánamörkuðum. Því til viðbótar er tilgreind sér- stök heimild til viðbótarlántöku upp á 220 milljarða króna, til að mynda í því skyni að efla gjaldeyr- isforða, endurfjármagna eldri lán eða til að mæta fjárþörf ríkissjóðs vegna rekstrar eða fjárfestinga verði það talið hagkvæmt. „Það ætti að vera rúmt, en Alþingi getur ákveðið að heimila frekari erlendar lántökur ef þörf er talin á,“ segir Bjarni og bendir á að ríkissjóður hafi verið að styrkja stöðu sína á erlendum lánsfjár- mörkuðum, lánshæfismat hafi batnað og um leið kjörin sem þar bjóðast. „Þar kemur til trúverðugleiki ríkisfjármálastefnunnar og traust á hagstjórn. Þessu þarf að við- halda. Það felst í því mikilvægur sveigjanleiki að geta sótt lánsfé á erlenda markaði ef á þarf að halda, og á sem bestum kjörum. Okkur hafa boðist stórbætt vaxtakjör síðustu árin.“ MARKAÐURINN 1 7 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.