Fréttablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 28
DRAUMAKÁPAN • JÓLAGJÖFIN HENNAR
laxdal.is/yfirhafnir
TRAUST Í 80 ÁR
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Fylgdu
okkur
á
Facebo
ok
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Flauel má vinna úr hvort tveggja náttúrulegum og gerviefnum og er sérstök
tegund af brúskóttum vefnaði þar
sem þráðunum er dreift jafnt og
hárin eru stutt og þétt sem gefur
efninu sína sérstöku áferð. Það er
ekki að ástæðulausu að flauel er
beintengt munúð og gæðum en
þegar eitthvað er ofurmjúkt þá
segjum við að það sé flauelsmjúkt.
Flauel kom fyrst á sjónarsviðið í
fórum kasmírsölumanna í Bagdad
á áttundu öld sem þá var undir
stjórn Harun al-Rashid. Eftir það
var mesta framleiðsla flauels í
heiminum í Kaíró í Egyptalandi.
Mikið af því f laueli sem fram-
leitt var þar var f lutt til Feneyja
og þaðan barst það um endilanga
Evrópu. Flauel var dýrt í fram-
leiðslu og bæði eftirsótt og vinsælt
hjá hástéttinni. En þess má geta að
Ríkharður II., konungur Englands,
skipaði svo fyrir í erfðaskrá sinni
árið 1399 að lík hans skyldi vera
grafið í velveto.
Því má fagna sérstaklega að
tískupallarnir fyrr í ár voru stút-
fullir af girnilegum flauelsflíkum
fyrir karla og konur.
Flauelsmýkt
um þessi jól
Flauelið er alltaf vinsælt yfir hátíð-
arnar enda einstaklega fallegt og
mjúkt, með guðdómlega áferð og
svo liggur það einfaldlega svo vel.
Hér má sjá vel sniðinn dumbrauðan
flauelskjól fyrir haust/vetur 2020
og 2021 úr smiðju Saint Laurent á
tískuvikunni í París í febrúar.
Þessi rauða flauelsdragt frá Elie
Saab er allt það sem við óskum
okkur fyrir jólin. Tískuvikan í París í
febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þessi lavenderblái flauelskjóll úr smiðju Junko Shim
ada á tískuvikunni í París í mars mun lengi ásækja
drauma margra hinna tískumeðvitaðri einstaklinga.
Hér kemur
Burberry með
sitt klass
íska mynstur
á svörtum
flauelskjól.
Skrifstofu
smart í bland
við jóladressið
er fullkomið
fyrir heima
vinnandi skrif
stofublækur.
Kjóllinn birtist
á tískuvikunni
í London í
febrúar.
Giorgio Armani er með puttann á púlsinum þegar
kemur að flaueli fyrir karla. Þessi frakki fer alla leið
og við hin fljótum með. Þessi er frá tískuviku karla í
Mílanó í janúar. Haust/vetur 2020/2021.
Dior Homme sýndi lit með því að
klæða fyrirsæturnar í flauelshanska
í ljósbláu, svörtu og drapplitu á
tískuvikunni í janúar í París.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R