Fréttablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 20
Skatt má ekki leggja á nema með lögum en svo segir í 40. gr. stjórnarskrárinnar. Öðru gegnir um þjónustugjöld. Stjórn- völdum er almennt heimilt að krefjast greiðslu fyrir veitta þjón- ustu. Ef stjórnvöld á annað borð innheimta gjöld langt umfram kostnaðarþörf er ekki um annað að ræða en skattheimtu í dulbúningi. Hundaeftirlitsgjald í Reykjavík er skýrt dæmi um slíkt. Reykvíkingar þurfa að greiða árlega 19.850 kr. vilji þeir eiga hund. Sú gjaldtaka er sögð nauðsynleg til að standa undir kostnaði við hundaeftirlit í borginni. Eigendur skráðra hunda greiða auk þess skráningargjald þegar hundurinn er fyrst skráður og þegar hundurinn deyr er ekki hægt að afskrá hann nema fram- vísa vottorði frá dýralækni sem einnig þarf að greiða fyrir. Því vekur það athygli hvernig störfum hundaeftirlitsins er lýst í nýrri skýrslu stýrihóps um þjón- ustu við gæludýr. Í skýrslunni segir „Meginverkefni hundaeftirlitsins í dag felst í að taka við ábendingum um óskráða hunda sem og að fá óskráða hunda á skrá og sinna afskráningum á móti.“ Hvers vegna skyldi svo mikil áhersla vera lögð á skráningu hunda? Það gefur auga- leið að það er til að auka tekjurnar. Um 2.000 hundar eru á skrá í Reykjavík en samkvæmt skýrslu stýrihópsins má gera ráð fyrir því að hundar séu á að minnsta kosti 9.000 heimilum í borginni. Hunda- eftirlitið getur því aukið tekjur ef f leiri hundar eru skráðir. Það fylgir því vinna að hafa eftir- lit með hundum og fanga lausa hunda. Sú starfsemi er þó langt frá því að vera svo umsvifamikil að innheimta þurfi jafn hátt gjald og nú er gert. Samkvæmt upp- lýsingum frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar hefur hunda- eftirlitið tekið í vörslu 19 hunda síðastliðin tvö ár, minna en einn hund á mánuði. Sa m k væmt v i n nu sk ý r slu m hundaeftirlitsmanna það sem af er ári kemur fram að hunda- eftirlitsmenn hafi farið í 89 eftir- litsferðir vegna kvartana. Tveir hundaeftirlitsmenn eru í fullu starfi og samsvarar það um það bil einni eftirlitsferð í viku fyrir hvorn hundaeftirlitsmann. Það er því auðséð að starf hundaeftirlits- manna er ekki fullt starf fyrir eina manneskju, hvað þá fyrir tvær. Rangt er að innheimta eins hátt gjald og raun ber vitni. Gjaldtakan dregur augljóslega úr skráningu hunda og gerir þar með eftirlits- störf erfiðari. Þá er gjaldið nýtt í aðra hluti en þá þjónustu sem það á að standa undir. Í skýrslu stýri- hópsins er tekið fram að gjöldin „séu hugsuð til þess að þjónusta samfélagið í heild og þá ekki síður til þess að gæta hagsmuna þeirra sem ekki eru dýraeigendur.“ Því er ekki um þjónustugjald að ræða heldur ólögmæta skattheimtu. Meirihluti borgarstjórnar felldi tillögu mína um að leggja niður skráningar- og hundaeftirlits- gjaldið. Því mun borgin áfram innheimta skatt úr hendi þeirra hundaeigenda sem eru heiðarlegir og skrá sína hunda. Mikilvægt er að það verði skoðað fyrir alvöru hvort hundaeftirlitsgjaldið sé lögmætt. Hundaeftirlitsgjald ólögmætt? Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins Í ríkari mæli eru fyrirtæki, stofn-anir, félagasamtök og opinber stjórnsýsla að skoða þær fram- tíðaráskoranir, tækifæri og ógnir sem geta gert þau berskjölduð gagnvart breytingum. Tækni- og samfélagsbreytingar vega þarna þungt en ekki síst heimsfaraldur- inn sem nú stendur yfir. Hann hefur umbreytt hefðum og starfs- venjum á örskömmum tíma, inn- leitt hagnýta tækni, vinnubrögð og ný viðmið sem mörg voru þekkt en lítt nýtt fyrr en nú og verða til hags- bóta um ókomna tíð. Það er leitt til þess að hugsa að þurft hafi heims- faraldur til að breyta því sem var nauðsynlegt og æskilegt að breyta til að vera í takt við tímann. Að rýna í ólíkar framtíðir Eitt af mest notuðum orðum í dag er orðið sviðsmyndir. Orðið var kynnt til leiks hér á sviði stjórn- unar fyrir nokkrum árum og var þá nýyrði. Eins var orðið framtíð eingöngu notað í eintölu. Að rýna í ólíkar framtíðir var iðja örfárra og tekið með varúð. Nú er þetta orðið að eins konar f lóðbylgju. Vitundar- vakning hefur átt sér stað, enda eins og Þórólfur sóttvarnalæknir sagði: „Óvissan er eina vissan“. Framtíðarfræðin er sú grein félags- vísinda sem nærist á óvissuþáttum, fjallar um hvaða óvissu sem er en setur í forgang þá óvissuþætti eða drif krafta sem eru mikilvægastir. Sumir rekja fræðigreinina allt til útgáfu ritsins Ríkið eftir Plató frá 375 f.Kr. eða þá til ritsins Útópía eftir Thomas More sem kom út 1516. Alla vega á greinin sér langa þróunarsögu erlendis þó að saga hennar hér á landi sé stutt, eða frá 2006 þegar ein aðferð fræðanna, sviðsmyndagreiningin, var fyrst kynnt. Umbreytingar og fjórða iðnbyltingin Þær breytingar sem við höfum meðtek ið nú síðustu mánuði verða margar hverjar varanlegar en sumar dragast saman eða þró- ast enn frekar eftir þörfum sam- félagsins. Fyrir heimsfaraldurinn var mikið rætt um fjórðu iðnbylt- inguna og langtímaáhrif hennar á störf, fyrirtæki og stofnanir. Það sem fólk sá í henni hefur að hluta til ræst. Kennsluhættir og kennsluaðferðir hafa breyst, vinnumarkaðurinn hefur breyst, meðal annars viðhorf til stað- bundinna starfa. Kaupvenjur hafa breyst, dreifing vara og þjónustu, og eins er opinber þjónusta að taka verulegum breytingum, svo eitt- hvað sé nefnt. Þó svo að hugtakið fjórða iðnbyltingin sé áhugavert regnhlífarhugtak þá er nauðsyn- legt fyrir fyrirtæki og stofnanir að greina hvar tækifæri þeirra eru til framtíðar, og eins hvað geti ógnað þeim, með öf lugri greiningarvinnu á þeim áskorunum sem þau standa frammi fyrir. Undanfari aðgerða Niðurstöður aðferða framtíðar- fræða eiga að vera hráefni til frek- ari aðgerða. Sviðsmyndagreining ein og sér er ekki áhugaverð nema hún sé gerð í ákveðnum tilgangi og henni fylgi aðgerðir, svo sem á sviði stefnumótunar, nýsköpunar, sóttvarna eða jarðhræringa svo dæmi séu tekin. Stefnumótun sem grundvölluð er á ákveðinni fram- tíðarsýn er berskjölduð ef ekki er horft til ólíkra birtingarmynda sem framtíðin getur falið í skauti sér. Sama má segja um fjárfestingar í hagnýtum rannsóknum og þróun. Framtíðarfræðin leggur áherslu á að horft sé til langs tíma, þó mis- munandi langs eftir þeirri óvissu sem blasir við en gjarnan tíu til tuttugu ára ef ekki lengra. Þó er það svo að í verulegu ölduróti sam- tímans er það sem gæti gerst innan áratuga oft mun nær. Nýlega gaf einn stærsti vettvangur framtíðar- fræðinga, The Millennium Project, út skýrslu um yfirstandandi heims- faraldur sem nær aðeins til ársins 2022, „THREE FUTURES OF THE COVID-19 PANDEMIC“. Sami vett- vangur gaf út fyrr á árinu skýrsluna „Work/Technology 2050: Scenarios and Actions“, þar sem 93 sérfræð- ingar frá 50 löndum leggja upp sviðsmyndir og samþætta nauð- synlegar aðgerðir er tengjast þeim. Í þessu sambandi má einnig nefna nýlega skýrslu frá KPMG, „Sviðs- myndir ferðaþjónustu á Íslandi á komandi misserum“, sem hefur þetta yfirbragð. Framtíðin er „ferskvara“ Líkja má þeim straumum og kröftum sem við rýnum í í fram- tíðarfræðunum við veðurkerfi, áhrif lægða og hæða eru þann- ig greind að hægt sé að taka mið af því sem koma skal. Við nýtum ekki sömu veðurspána oft, heldur uppfærum hana með nýjustu vitn- eskju um stöðu mála. Sama má segja um greiningu á kröftum og straumum framtíðar. Fyrirtæki og stofnanir hafa mörg hver gert sér grein fyrir þessu og komið á skipu- lagi innan starfsemi sinnar til að huga að þessum málum. Sama má segja um mörg þjóðríki og má í því sambandi nefna Framtíðarnefnd Alþingis. Það þýðir ekki að trúa í blindni á eina ákveðna framtíð eða gera áætlanir óháðar breyti- leika starfsumhverfisins. Bælum niður óttann um óvissu með því að greina hvað framtíðin ber hugsan- lega í skauti sér og mótum hana með þeim upplýsingum. Ekki hvað síst þurfum við að skilja að fram- tíðirnar sem kunna að blasa við munu byggja á nýjum veruleika á öllum sviðum þjóðlífsins. Greinum tækifærin sem þar kunna að bjóð- ast og mótum okkar framtíð með markvissum aðgerðum. Flóðbylgja ólíkra framtíða Karl Friðriksson sérfræðingur í framtíðar- fræðum hjá Framtíðarsetri Íslands Sævar Kristinsson sérfræðingur í framtíðar- fræðum hjá Framtíðarsetri Íslands Hvers vegna skyldi svo mikil áhersla vera lögð á skráningu hunda? Það gefur augaleið að það er til að auka tekjurnar. Bælum niður óttann um óvissu með því að greina hvað framtíðin ber hugsan- lega í skauti sér og mótum hana með þeim upplýs- ingum. Í tveimur Kastljóssþáttum nýver-ið kom fram að peningamagn á Íslandi hafði verið aukið um 300 milljarða til þess að reyna að örva atvinnulífið á COVID tímum. Það var vonast til þess að hinir nýju peningar sem var ýtt úr vör, myndu virka hvetjandi á atvinnulíf í land- inu. En hinir nýju peningar hafa því miður fyrst og fremst leitt til þess að hlutir sem þegar voru til í landinu hafa verið keyptir dýrara verði. Það að auka peningamagn er ekki gert án tilkostnaðar; ef þetta væri ekki tvíeggjað sverð þá væri ein- faldlega alltaf verið að auka pen- ingamagn til þess að örva atvinnu- lífið. Þegar allt í einu verða til meiri peningar án þess að aukning verði á vörunum sem hægt er að kaupa fyrir þessa peninga, þá leiðir það til þess að meiri peningar verða gefnir fyrir vörurnar, það er þær hækka í verði. COVID-peningamagns- aukning Seðlabankans leitaði í íbúðarhúsnæði, enda hækkaði hús- næðisverð. Í raun og veru er aukn- ing Seðlabankans á peningamagni kostuð af öllum íbúum þessa lands með rýrnun á kaupmætti þeirra. Nú er komið að aðalatriði þessa máls. Gefum okkur að það hafi verið rétt ákvörðun hjá Seðlabank- anum að auka peningamagn til þess að örva atvinnulífið. Í fyrrgreindu Kastljóssviðtali hamraði Seðla- bankastjóri ítrekað á því að þeir væru að prenta peninga af miklum móð. Það er hins vegar ekki rétt, alla vega ónákvæmni. Seðlabankinn er nefnilega alls ekki að prenta neina peninga, hann er hins vegar að leyfa einkaaðilum að prenta peninga, eins mikla peninga og þeir vilja fyrir sjálfa sig! Í dag eru peningar skapaðir úr engu með því að bankar veita lán. Það eru margir sem ekki skilja hvernig farið er að þessu og skal það útskýrt hér: Arion banki lánar Íslandsbanka 100 milljarða sem Íslandsbanki getur lánað út til viðskiptavina sinna. Íslands- bank i lánar Landsbankanum 100 milljarða og Landsbankinn lánar Arion banka 100 milljarða. Nú hafa bankarnir þrír 100 millj- arða hver til þess að lána út. Allir skulda hverjum öðrum jafn mikið þannig að skuldin sléttast út; 300 milljarðar hafa verið skapaðir úr engu. Algengara er að hafa milli- liði heldur en að lána hver öðrum beint: Landsbankinn lánar við- skiptavinum sínum 100 milljarða sem þeir byrja að nota, millifæra á reikninga í öðrum bönkum o.s.frv. Aðeins 2-3% eru seðlar þannig að allir 100 milljarðarnir (98 millj- arðar) haldast áfram á reikningum í bankakerfinu. Af þeim 100 millj- örðum sem Arion banki lánaði enda 33 milljarðar (u.þ.b.) í Arion banka, 33 milljarðar í Íslandsbanka og 33 milljarðar í Landsbankanum. Hið sama gildir um hina tvo bankana, og nú eru komnir nýir 100 milljarð- ar í hvern banka, og bankarnir eru skuldbundnir hverjum öðrum jafn stórum upphæðum vegna þessara lána þannig að það sléttast út, 300 milljarðar hafa verið skapaðir úr engu. Seðlabankinn hefur ýmis tæki til þess að reyna að tempra að einka- bankar prenti sér peninga eins og að ofan er lýst. Það sem Seðlabankinn hefur gert er ekki að prenta peninga sjálfur fyrir COVID-kreppuna (eins og seðlabankastjóri sagði í Kastljós- viðtali) heldur að afnema bremsur Seðlabankans á peningaprentun einkabankanna, þ.e. hann hefur nánast afnumið bindiskyldu, lausa- fjárskyldu og önnur temprunar- verkfæri. Enn fremur jók hann getu einkabanka til þess að búa til pen- inga handa sjálfum sér með því að gera lántökur girnilegri, með því að lækka vexti og fá ríkisábyrgð á lán. Ef nota á aukningu á peninga- magni sem örvunaraðgerð (sem iðulega virkar þveröfugt) þá mun fórnarkostnaðurinn alltaf verða verðbólga, þ.e. minnkuð kaupgeta. Ef Seðlabankinn prentar peningana sjálfur þá er þetta eini gallinn við þessa aðferð, en ef Seðlabankinn útvistar peningaprentuninni til einkabanka og leyfir þeim að eiga nýprentuðu peningana, líkt og nú er gert, þá verður sama verðbólgan (þv í peningamag nsauk ning in er hin sama) en auk þess verður þjóðin 300 milljörðum skuldugri, en bankaeigendur 300 milljörðum ríkari; t.d. verða hinir fáeinu eigend- ur vogunarsjóðanna sem eiga Arion banka 100 milljörðum ríkari í boði Seðlabankans en viðskiptavinir bankans 100 milljörðum fátækari. Þessi eignatilfærsla hefði ekki gerst ef Seðlabankinn hefði prentað pen- ingana sjálfur. Peningastefna Seðla- bankans hefði passað ágætlega fyrir 40 árum síðan þegar enn voru notaðir seðlar í viðskiptum en hún er löngu úrelt nú þegar nánast ein- göngu er notast við rafrænar færslur skapaðar í bönkum. Stefnan hefur gert hverja fimm manna fjölskyldu á Íslandi 5 milljón krónum fátækari, algerlega að nauðsynjalausu. (Tölur eru rúnnaðar af, t.d. eru ekki allir bankarnir jafn stórir, horft er fram hjá öðrum fjármálastofnunum og smá hluti 300 milljarðanna var þegar til hjá Seðlabankanum). Dýpka viðbrögð Seðlabankans COVID -kreppuna? Andrés Magnússon Það að auka peningamagn er ekki gert án tilkostnaðar; ef þetta væri ekki tvíeggjað sverð þá væri einfaldlega alltaf verið að auka pen- ingamagn til þess að örva atvinnulífið. 1 7 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.