Fréttablaðið - 17.12.2020, Síða 19
Í Netapóteki Ly avers á lyaver.is
getur þú fundið þína lyfseðla, valið
samheitalyf og séð ly averðið þitt.
Mikið úrval af vítamínum og bætiefnum.
Lágt vöruverð og heimsending um land allt.
Gerðu verðsamanburð!
Netapótek Lyavers
–Apótekið heim til þín
Kaupaukifylgir*
lyaver.is Suðurlandsbraut 22
*Ef verslað er fyrir meira en 5.000 kr.
AF KÖGUNARHÓLI
Þorsteinn
Pálsson
Himinháar skuldir eru hin hliðin á mesta vexti ríkis-útgjalda í sögu landsins.
Við meðferð fjárlaga og fjárauka-
laga á Alþingi hefur nauðsyn
aukinna útgjalda verið vandlega
rædd og rökstudd.
Hitt er að mestu órætt: Hvar
og hvernig á að taka lánin? Og
hvernig á að borga brúsann?
Þröng staða
Fyrir liggur:
1. Ríkisstjórnir f lestra annarra
Evrópuþjóða taka lán í eigin
mynt á nánast engum vöxtum.
2. Langtímavextir ríkissjóðs á
innlendum markaði eru marg-
falt hærri.
3. Hagstæðum erlendum lánum
fylgir gríðarleg gengisáhætta.
4. Spár um hagvöxt koma ríkis-
sjóði í besta falli eftir tvö ár í
sömu stöðu og 2019. Þá á eftir
að skapa verðmæti til að borga
allar nýju skuldirnar. Engin
plön eru um þann viðbótar
hagvöxt.
5. Að óbreyttu þýðir þetta skatta-
hækkanir eða niðurskurð.
Ríkisstjórnin segir að hvorugt
komi til greina. Hvað þá? Meiri
lán?
Þótt hlutfall skulda ríkissjóðs
af landsframleiðslu sé lægra en
margra Evrópuþjóða, bendir
þetta til þess að svigrúm Íslands
sé verulega minna en annarra
vegna miklu hærri vaxta og mun
meiri áhættu í smáu peningakerfi.
Ríkisstjórnin segir það eitt að
hún hafi ekki áhyggjur af skuld-
unum. En hún skuldar rökstutt
svar við því hvers vegna hún hefur
þær ekki. Það kallar á umræðu.
Erlend lán eiga að halda
krónunni uppi
Seðlabankastjóri hefur hvatt fjár-
málaráðherra til að auka lántökur
erlendis til þess að halda uppi
gengi krónunnar. Á skuldadögum
virkar meðalið þó væntanlega
öfugt.
Launafólk fær ekki að taka lán
í erlendri mynt. Það er of mikil
áhætta af því að tekjur þess eru
í krónum. Tekjur ríkissjóðs eru
líka í krónum. Samt má hann taka
erlend lán. Það er talið áhættu-
laust af því að hann getur hækkað
skatta á launafólk.
Í athugasemdum með síðasta
fjáraukalagafrumvarpi kemur
fram að erlendar skuldir ríkis-
Áhyggjuleysi kallar á umræðu
sjóðs höfðu, þegar það var lagt
fram, hækkað á þessu ári um 45
milljarða króna vegna gengisfalls
krónunnar. Þetta er upphæð af
svipaðri stærðargráðu og þjóðin
hafnaði að ábyrgjast vegna vaxta
af Icesave.
Slíkar tölur rokka upp og niður.
Eigi að síður skulda ráðherrarnir
skýringu á því hvernig krónan
þjónar hér almannahagsmunum.
Sjálfstæð peningaprentun
og skuldavandinn
Önnur helsta málsvörnin fyrir
sjálfstæðri mynt hefur verið sú að
unnt sé að prenta krónur að vild,
þegar þörf krefur. Verðbólgan,
(lesist: launafólk), á svo að sjá um
að eyða skuldinni.
Veruleikinn er sá að Seðla-
bankinn taldi óráðlegt að prenta
krónur á þessu ári að nokkru
marki. Þótt hann gefi fyrirheit um
að gera það í ríkari mæli á næsta
ári, virðist erlend lántaka ríkis-
sjóðs ekki verða umf lúin.
Kjarni málsins er að ekki hefur
til þessa reynst fært að nota sjálfs-
ákvörðunarrétt til peningaprent-
unar til að leysa skuldavandann
í heild.
Hvaða rök eru þá eftir fyrir
sjálfstæðum gjaldmiðli? Er ekki
betra að viðurkenna að hann
dugar ekki?
Sjálfstæð króna og atvinna
Hin rökin fyrir sjálfstæðri krónu
eru þau að unnt sé að skapa f leiri
störf, þegar þörf krefur, með því
að láta gengið falla. Skoðum þessa
kenningu:
Í fjármálakreppunni fyrir
rúmum áratug fóru fyrirtækin á
hausinn af því þau stóðust ekki
þá hækkun skulda, sem hrun
krónunnar leiddi af sér. Krónan
var þannig orsök atvinnuleysis.
Til þess að komast út úr
núverandi kreppu þarf byltingu
í nýsköpun og þekkingariðnaði á
næsta áratug. Það er eina leiðin til
að fjölga vel launuðum störfum og
skapa nauðsynleg, ný verðmæti.
Flestir, sem starfa á þessu
sviði, segja að stærsta hindrunin
í vegi þeirrar atvinnubyltingar
sé óstöðug mynt. Í fjárlagaum-
ræðunum skýrðu ráðherrarnir
ekki hvernig þeir áforma að ryðja
þessari hindrun úr vegi svo leysa
megi nýja krafta úr læðingi. Sú
djúpa þögn er hættuleg.
Til þess að komast út úr nú-
verandi kreppu þarf bylt-
ingu í nýsköpun og þekking-
ariðnaði á næsta áratug. Það
er eina leiðin til að fjölga vel
launuðum störfum og skapa
nauðsynleg ný verðmæti.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 1 7 . D E S E M B E R 2 0 2 0