Víkurfréttir - 26.08.2020, Blaðsíða 86
Skrýtnir tímar en við berjumst áfram
„Sumarið hefur verið öðruvísi en við áttum svo sem ekki von á öðru en samdrætti þegar
allt fór í frost, bara spurning hversu miklum. Nú er þetta spurning um framhaldið, haustið,
veturinn og ekki síst næsta ár,“ segir Ásgeir Elvar Garðarsson, framkvæmdastjóri Bíla-
leigunnar Geysis í Reykjanesbæ.
Nýlega var greint frá því að tvær
bílaleigur með starfsemi í nágrenni
Keflavíkurflugvallar hafi hætt
rekstri. Bílaleigan Green Motion,
sem var með aðsetur á Vesturgötu
í Keflavík, hefur verið tekin til gjald-
þrotaskipta og Lagoon Car Rental
hefur farið sömu leið. Báðar leig-
urnar voru nokkuð umsvifamiklar
síðustu árin.
Ásgeir Elvar segir að eitt af verk-
efnunum hjá Geysi á þessu ári hafi
verið að minnka bílaflotann í ljósi
afleiðinga COVID-19 og hafi það
gengið vel. Í fyrrasumar hafi fyrir-
tækið verið með nærri 1200 bíla
en í sumar hafi þeir verið um sjö-
hundruð. Víkurfréttir hafa heyrt
svipaða sögu frá fleiri bílaleigum þar
sem þær hafa allar reynt að minnka
bílaflotann. Margir nýlegra bíla-
leigubíla hafa selst í vor og sumar
á sama tíma og sala á nýjum bílum
hefur dregist mikið saman.
„Í sumar höfum við verið á um 25
til 30% afköstum miðað við í fyrra.
Íslendingar hafa verið duglegir að
leigja húsbíla og þeir hafa verið nær
allir í leigu góðan part sumarsins.
Verðið samt helmingi lægri en það
var. Útlendingar hafa líka mætt og
leigt húsbíla og bílaleigubíla.
Það fer hins vegar enginn með
mikinn forða frá sumrinu inn í
haustið og veturinn. Það er ljóst að
fjöldi ferðamanna verður áfram í
lágmarki og mikil óvissa framundan.
Geysir á sem betur fer langa og góða
sögu á Íslandi og við eigum flottan
kúnnahóp á innanlandsmarkaði.
Í vetur munum við því hlúa vel
að honum og setja frekari fókus á
landann hér heima.
Þetta eru skrýtnir tímar en við
berjumst áfram.“ sagði Ásgeir Elvar
Garðarsson.
Hertar sótt-
varnarreglur vegna
Covid-19 koma í veg
fyrir að ekki tekst
að halda tónleika á
Ljósanæturhelginni.
Stefnt er á að frumsýna Rokk-
veisluna miklu föstudagskvöldið
25. september ef búið verður að
aflétta þeim fjöldatakmörkunum
sem nú eru í gildi. Tvær sýningar
fylgja svo í kjölfarið laugardaginn
26. september.
Sýningar verða því á eftirfarandi
tímum:
Frumsýning: Föstudaginn
25. september kl. 20.
(var áður 2. september kl. 20)
Önnur sýning: Laugardaginn
26. september kl. 16.
(var áður 6. september kl. 16)
Þriðja sýning: Laugardaginn
26. september kl. 20.
(var áður 6. september kl. 20)
„Við biðjum alla þá sem búnir voru
að kaupa miða á áður auglýstar
dagsetningar velvirðingar á þeim
óþægingum sem þessar breytingar
kunna að valda. Þeir sem hafa keypt
miða og geta ekki nýtt sér nýja
sýningartíma geta að sjálfsögðu
fengið endurgreitt. Eru þeir beðnir
að hafa samband við Tix.is vegna
þess,“ segir í tilkynningu frá tón-
leikahöldurum.
Friðrik Árnason er búinn að reka hótelið vel á annan áratug en það opnaði árið 1983. Frið-
rik hefur upplifað ýmislegt í hótelrekstri og ferðaþjónustu en ekkert í líkingu við afleiðingar
kórónuveirunnar. „Eftir langt stopp vegna Covid-19 fór allt í gang seinni part júnímánaðar
þegar Íslendingarnir fóru að mæta og þeir hafa verið góðir viðskiptavinir í sumar. Það er
mikill munur á íslenskum og erlendum ferðamönnum þegar þeir eru í fríi. Íslendingarnir
velja sér til dæmis dýrari rétti á matseðli, gjarnan dýrustu steikina og fá sér gott rauðvín
með á meðan útlendingurinn velur sér það ódýrasta á matseðli og fær sér sjaldan vín með
matnum. Við höfum verið að selja jafn mikið af rauðvíni á einu kvöldi eins og við gerðum á
þremur vikum þegar útlendingar voru að megninu til gestir á hótelinu,“ segir Friðrik.
Aðbúnaður til
fyrirmyndar á Bláfelli
Eitthvað hefur verið um erlenda
ferðamenn í sumar en þó í mjög
litlum mæli og þegar Víkurfréttir
litu við hjá Friðriki um miðjan
júlí var von á svissneskum ferða-
mönnum sem ætluðu að hertaka
hótelið eina nótt. Njarðvíkingurinn
segir að sumarið eigi eftir að verða
fínt en mikil óvissa sé með haustið
og veturinn.
Á Hótel Bláfelli eru margar teg-
undir herbergja í boði í hótelbygg-
ingunni og í gömlu pósthúsi sem
nú sinnir gistihlutverki á staðnum.
Alls eru 39 vel búin herbergi í boði,
standard herbergi, bjálkaherbergi,
junior-svítur og fjölskylduherbergi.
Aðbúnaður á herbergjum er til fyr-
irmyndar. Þá er á hótelinu hugguleg
setustofa með arni og bókasafni.
Þar er líka finnskt sána og veitinga-
staður þar sem boðið er upp á ekta
íslenska rétti, matreidda úr fersku,
íslensku hráefni úr nærumhverfi
hótelsins.
Ástríðuverkefni
„Þetta er skemmtilegur rekstur og
það er gaman að vinna í ferðaþjón-
ustu. Ísland er magnað land og það
er gaman að skoða það og heim-
sækja, Íslendingar og útlendingar
eru sammála um það, en að reka
hótel er svolítið ástríðuverkefni
og tekur mikinn tíma ef maður vill
gera það vel,“ segir Friðrik.
Auk hefðbundins hótelsreksturs
hefur Friðrik staðið fyrir ýmsum
uppákomum á staðnum en á móti
Hótel Bláfelli er hann með aðgang
að stórum salarkynnum fyrir allt
að 300 manns þar sem frystihúsið
á staðnum var áður með starf-
semi. Þar er góð aðstaða fyrir hvers
kyns fundarhald og þá hafa verið
haldnir þar margir tónleikar og
fyrir jólin hefur hann fengið vini
sína frá Suðurnesjum til að hjálpa
sér með jólahlaðborð. Friðrik hefur
verið útsjónarsamur í ýmsu sem
hann hefur gert þarna eystra. Hann
útbjó til dæmis stórar ljósakrónur í
veislusalinn úr trampólínum.
Njarðvískur hótelkóngur á Breiðdalsvík
„Íslendingarnir eru allt öðruvísi ferðamenn en þeir útlendu. Þeir gera til dæmis miklu betur við sig í mat og drykk og svo
eru þeir bara skemmtilegir,“ segir Njarðvíkingurinn Friðrik Árnason, eigandi Hótels Bláfells í Breiðdalsvík.
Rokkveislunni miklu frestað
Frumsýnd í
lok september!
22 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár