Fréttablaðið - 22.12.2020, Síða 6

Fréttablaðið - 22.12.2020, Síða 6
SAMFÉLAG Í október aðstoðaði For­ eldrahús foreldra yfir fimm hund­ ruð barna, samanborið við rúm tvö hundruð í október í fyrra. Starfs­ fólki hefur verið fjölgað. „Við höfum fundið fyrir mjög þungum tón yfirleitt í samtölum okkar, það eru margir sem eiga mjög erfitt í þessu ástandi,“ segir Berglind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Foreldrahúss. „Það er mjög erfitt fyrir börn og unglinga sem eru til dæmis með greiningar, þegar allt skipulag fer úr skorðum,“ segir Berglind. Mörgum foreldrum reynist erfitt að setja unglingum mörk þegar skóli og tómstundir eru ekki til staðar. Líkt og fram hefur komið hafa margir framhaldsskólanemendur átt erfitt með að einbeita sér að námi þegar því þarf að sinna heima fyrir. Berglind kannast við það. „Það hafa margir lýst því að vera heima á náttfötunum allan dag­ inn, kveikja á tölvunni og þykjast sinna náminu. Það upplifa margir ákveðið tilgangsleysi, sumir leita þá á vafasamar brautir,“ segir Berglind. „Skólaskipti frá grunnskóla og yfir í menntaskóla, ekki er mikið um félagslíf eða nýja vini sem tengjast skólanum, það reynist erfitt.“ Þá er talsvert um neyslu meðal ungmenna. „Við sjáum talsverða aukningu í notkun spice og kannabisefni eru auðvitað til staðar. Efni sem nóg framboð er af,“ segir Berglind. Þrátt fyrir samkomutakmarkanir hafi ekki dregið úr hópamyndunum og flakki hjá unglingum í vanda. „Þeim sem eru að fikra sig á þessa braut er alveg sama um einhvern faraldur.“ Berglind segir dæmi um að for­ eldrar finni efni hjá unglingum sem standa sig yfirleitt vel í lífinu. „Þau neita yfirleitt alltaf að eiga efnin.“ Vandinn við spice er að það er ekki hægt að kaupa próf. „Við ráðleggjum alltaf, ef ungling­ urinn kemur heim undir miklum áhrifum efna, að fara beint niður á bráðamóttöku og láta tékka á þeim,“ segir Berglind. „Það er bæði til að skera úr um hvað þau voru að nota og líka til að gera þeim grein fyrir að þetta er alvarlegt mál.“ Hefur Berglind tekið eftir aukinni hörku í hópum unglinga, sérstak­ lega er kemur að því að taka upp slagsmál til að dreifa á samfélags­ miðlum. Leggur Berglind mikla áherslu á að fylgst verði með unglingunum yfir hátíðarnar, hafa reglu á mat­ málstímum og gera eitthvað með þeim, þannig að þeir vilji vera heima með fjölskyldunni. „Nýta samveruna til að rækta tengslin við börnin og unglingana. Þetta er erfiður tími en það má ekki gefa eftir að fylgjast vel með þeim,“ segir hún. „Ekki hika við að hringja í foreldrasímann okkar, 581­1799.“ arib@frettabladid.is Það hafa margir lýst því að vera heima á náttfötunum allan daginn, kveikja á tölvunni og þykjast sinna náminu. Það upplifa margir ákveðið tilgangsleysi, sumir leita þá á vafasamar brautir. Berglind Gunn- arsdóttir, framkvæmda- stjóri Foreldrahúss SAMGÖNGUR Áætlaður heildar­ kostnaður vegna hjólreiðastíga­ framkvæmda á næsta ári í Reykja­ vík verður um 1,7 milljarðar. Leggja á 10,3 kílómetra af stígum. Helstu göngu­ og hjólastíga­ verkefni sem eru í undirbúningi fyrir árið 2021 voru kynnt á fundi sk ipulags­ og samgöng uráðs. Fulltrúar meirihlutans bókuðu að gangi áætlanir eftir verði Reykjavík hjólreiðaborg á heimsmælikvarða. Fulltrúar Sjálfstæðisf lokksins sögðu nýlegar mælingar sýna að nær 27 prósent íbúa á höfuðborgar­ svæðinu myndu helst hjóla í vinnu. „Það er mikilvægt að svara þess­ ari eftirspurn og bregðast við þess­ ari jákvæðu þróun – en til þess þarf Reykjavíkurborg að ráðast í raun­ verulega stórsókn í lagningu nýrra hjólastíga,“ segir í bókun flokksins sem kvaðst harma að einungis hluti þeirra stíga sem voru tilbúnir til framkvæmda fyrir 2021 væri á nýsamþykktri fjárhagsáætlun borgarinnar. Aðeins 2,2 prósent af fjárfestingum 2021­2025 fari í hjóla­ stíga. „Sjálfstæðisflokkur hefði vilj­ að ganga lengra, fullfjármagna alla stígana og styðja enn betur við hjól­ reiðabyltinguna í Reykjavík.“ – ab Milljarðar fara í nýja hjólastíga Um 27 prósent borgarbúa vilja hjóla í vinnuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR REYK JANESBÆR Á fundi barna­ verndarnefndar Reykjanesbæjar í gær kom fram að tíu prósenta aukn­ ing hefði verið í tilkynningum sem bárust fyrstu ellefu mánuði ársins. Aukningin er þrátt fyrir fækkun mála í nóvember milli ára. Í nóvember bárust barnaverndar­ nefnd 46 tilkynningar vegna 36 barna. Alls voru átján ný mál í könnun í nóvember. Á sama tíma í fyrra voru málin 50, börnin 45 og 23 ný mál í könnun. Flestar tilkynn­ ingar voru frá lögreglunni. Alls hefur nefndin skoðað 397 mál á fyrstu ellefu mánuðum ársins. Til samanburðar voru málin 361 á á sama tíma í fyrra. – kpt Fleiri mál til barnaverndar ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla. Úrval af felgum fyrir Jeep® og RAM Upphækkunarsett í Wrangler Upphækkunarsett í RAM Falcon demparar ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 07:45 - 18:00 • OPIÐ FÖSTUDAGA 07:45 - 17:00 ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK. FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI BREYTINGAR Á JEEP®, RAM OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323 UMBOÐSAÐILI Meira en helmingi fleiri leita aðstoðar vegna barna í vanda Berglind Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Foreldrahúss, segir ráðgjafa finna fyrir þungum tón í sam- tölum við foreldra. Meira en helmingi fleiri hafi leitað aðstoðar þar í haust samanborið við árið á undan. Að sögn Berglindar eykst notkun fíkniefna og ekki sést að dragi úr hópamyndum meðal ungmenna. Þessi ungmenni skemmtu sér áhyggjulaus í miðborg Reykjavíkur löngu fyrir daga COVID-19. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR KÓPAVOGUR Forsætisnefnd Kópa­ vogsbæjar hefur komist að þeirri niðurstöður að Guðmundur Gísli Geirdal, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis­ f lokksins, hafi ekki brotið siða­ reglur með fjarveru sinni á fundum bæjarstjórnar á tímabilinu júní til október 2020. Málið verður afgreitt í bæjarstjórn í dag. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjar­ fulltrúi Pírata, óskaði eftir úrskurði nefndarinnar í síðasta mánuði, var málinu vísað til bæjarlögmanns. Guðmundur sagði ástæðuna vera að hann væri á sjó, það hefði legið fyrir þegar hann bauð sig fram. Það hitti þannig á að hann þyrfti að vera á sjó þegar voru bæjarstjórnar­ fundir. Sigurbjörg Erla sagði það eðlilegt að Guðmundur færi í leyfi á meðan hann sinnti öðrum störfum. Í bréf i Salvarar Þórisdóttur lögfræðings hjá Kópavogsbæ til nefndarinnar segir að það liggi fyrir að bæjarfulltrúum sé skylt að taka þátt í bæjarstjórnarfundum nema lögmæt forföll hamli. „Í lögskýr­ ingargögnum er tekið, sem dæmi um önnur óviðráðanleg atvik, að sveitarstjórnarmanni sé nauðsyn­ legt að vera fjarverandi vegna anna í launaðri vinnu eða eigin atvinnu­ rekstri,“ segir í bréfinu. Það liggi fyrir að Guðmundur Gísli sé sjó­ maður og það hafi hist svo á að hann hafi þurft að vera á sjó þegar fundir hafi verið. Það séu lögmæt forföll og honum því ekki skylt að taka þátt í fundunum. – ab Sjómennska lögmæt forföll fyrir bæjarstjórnarmann Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.