Fréttablaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 45
ÞARNA ER FJALLAÐ UM HÁTT Á ANNAÐ ÞÚSUND DÝRATEGUNDIR OG SKIPAN ÞEIRRA Í ÆTTIR OG ÆTTBÁLKA OG SVO FRAMVEGIS. Weber Pulse Rafmagnsgrill Weber salurinn Skútuvogi 1h (inng. frá Barkarvogi) Sími: 58 58 900 BÆKUR Hilduleikur Hlín Agnarsdóttir Útgefandi: Ormstunga Blaðsíðufjöldi: 225 Aðalhugmyndin í nýrri bók Hlínar Agnarsdótt­ ur, Hilduleik, minnir á eftirminnilega stiklu Fóstbræðra frá síðustu aldamótum þar sem framtíð Afa er ákveðin á afar kaldlyndan hátt, svo ekki sé meira sagt. Í þeirri framtíðarsýn sem birtist í Hilduleik hefur þjóðin elst og upp hefur komið vandi er lýtur að mál­ efnum eldri borgara. Íslensk stjórn­ völd hafa boðið út málaflokkinn og er vandinn þannig einkavæddur. Það er fyrirtækið Futura Eterna sem hefur tekið að sér að leysa þetta mál og svo virðist sem samfélagið setji ekki frekari spurningarmerki við hvernig það er gert. Undir fyrirtæk­ inu eru síðan margar deildir sem sjá um þau verkefni sem fylgja ellinni og dauðanum; húsnæði fyrir eldri borgara, jarðarfarir, greftrun, erfða­ mál og jafnvel minningar fólks. Boðskapur skáldsögunnar fer ekki fram hjá lesendum, og er hnippt allrækilega í okkur um stöðu eldra fólks, aldursskeið sem í heimi Hilduleiks hefur fengið heitið „aflifunaraldurinn“. Dystópían sem birtist í bók Hlín­ ar er fjölskrúðug og við lesendur fáum ekki endilega skýringar á því sem stingur í stúf við það sem við eigum að venjast. Sagan minnir að sumu leyti á hressilega spennusögu, þar sem margt er á huldu varðandi starf­ semi Futura Eterna. En það er aðalpersónan Hild a sem heldu r uppi sögunni. Hilda er eldri kona sem hefur átt ævintýraríkt líf og nýtur nú efri áranna með aðstoð ljóðskálds­ ins og húshjálparinnar Braga, en það er einmitt Bragi sem leiðir okkur í gegnum söguna. Þau passa illa inn í veruleik­ ann sem þau lifa við, en mótstaða þeirra við ríkjandi ástand er smávægileg og lítt trúverðug ef lesendur setja sig í spor þeirra. Hilda er vel undirbyggð sem persóna, og á það við um allt per­ sónugalleríið. Andstæðurnar í karakter hennar og Jóhönnu, hinni pottþéttu tengdadóttur, eru sterkar og áhrifamiklar. Jóhanna stendur fyrir hraða og afköstum ofar öllu, í heimi sem metur dugnað fram yfir góðmennsku. Persónurnar birtast ljóslifandi eins og á leiksviði og það er í raun margt í Hilduleik sem væri gaman að sjá í sviðsetningu. Leikmyndin í íbúð Hildu, klæðn­ aður margra aukapersónanna og aðrar skrautlegar lýsingar myndu njóta sín í leikverki en koma ekki söguþræðinum beinlínis við þó að þessi smáatriði bæti við umgjörð og andrúmsloft sögunnar. Hlín tekst þó afar vel að minna okkur á hvað betur mætti fara í áherslum okkar í samfélaginu sem við tilheyrum í dag. Guðrún Baldvinsdóttir NIÐURSTAÐA: Áhugaverð fram- tíðarsaga sem ætti mögulega frekar heima á leiksviði. Hvað á að gera við Afa? Dýraríkið eftir Örnólf Thorlacius er yfir­gripsmikið verk um dýrafræði í tveimur bindum, prýtt fjölda mynda. Verkið er í senn fræðslurit og uppf lettirit um undirstöður dýrafræðinnar, f lokkun og einkenni dýra af öllum stærðum og gerðum. Örnólfur Thorlacius lærði líffræði, efna fræði og dýra fræði í Há skól an­ um í Lundi í Svíþjóð. Hann skrifaði og þýddi bækur og sá lengi um sjón­ varpsþátt inn Nýj asta tækni og vís­ indi sem var í mörg ár á dag skrá RÚV. Hann sinnti kennslu og var rektor í Menntaskólanum í Hamra­ hlíð. Örnólfur lést í byrjun árs 2017, 85 ára gamall. Textinn að megin­ máli Dýraríkisins var þá tilbúinn. Sonur Örnólfs, Lárus Thorlacius eðlisfræðingur, og tveir sonarsynir, Árni Thorlacius lífefnafræðingur og Magnús Thorlacius líffræðingur, gengu síðan frá verkinu til útgáfu. Mikið efni á löngum tíma „Okkar verkefni var annars vegar að fara vandlega yfir handritið og huga að samræmi í framsetningu og hins vegar að velja myndir og skrifa myndatexta,“ segir Lárus. „Af því að dýrafræðin er lifandi fag þurftum við líka að uppfæra ýmsar tölu­ legar upplýsingar, sem pabbi hefði annars gert, eins og fjölda þekktra dýrategunda innan mismunandi flokka og fylkinga. Sjálf f lokkunar­ fræði dýraríkisins hefur líka verið að breytast mjög mikið á síðustu árum vegna nýrrar þekkingar úr sameindalíffræði. Við fórum yfir textann með þetta í huga og það kallaði á breytingar hér og þar. Við gerðum líka ítarlega atriðisorðaskrá þar sem hægt er að fletta upp bæði latneskum og íslenskum heitum dýranna.“ Lárus segir að faðir hans hafi unnið lengi að verkinu. „Upphaf­ lega áttu þessi skrif hans að verða hluti af alfræðibókaútgáfu Menn­ ingarsjóðs, en það breyttist og á endanum ákvað pabbi að skrifa dýrafræðibók. Þegar ég var krakki vann hann að henni inni á milli annarra verka og hélt því áfram eftir að ég f lutti að heiman. Hann safnaði saman miklu efni á löngum tíma. Eftir að hann hætti að kenna og fór á eftirlaun þá byrjaði hann aftur frá grunni að skrifa og úr því varð þessi bók sem nú er komin út.“ Árni Thorlacius, barnabarn Örnólfs, segir: „Bókin er í sextán köf lum. Hún byrjar á fræðilegum inngangi þar sem dýrafræðin er skilgreind. Eftir þennan almenna inngang er skipulega farið í gegnum dýraríkið, allt frá frumdýrum til stærstu spendýra. Þarna er fjallað um hátt á annað þúsund dýra­ tegundir og skipan þeirra í ættir og ættbálka og svo framvegis. Við erum afskaplega glaðir að bókin skuli vera komin út og ánægðir með útkomuna. Þetta er mjög fallegt og veglegt verk.“ Yfirgripsmikið verk um dýrafræði í tveimur bindum Dýraríkið eftir Örnólf Thorlacius er veglegt og ríkulega mynd- skreytt verk. Örnólfur lést árið 2017 og en hafði unnið lengi að bókinni. Afkomendur hans tóku að sér að ganga frá verkinu. Árni Thorlacius og Leifur Thorlacius með stórvirki Örnólfs Thorlacius sem nú er komið út. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Tónleikar verða sý ndir á Facebook­síðum Salarins og Jazz í Salnum í dag, þriðju­ daginn 22. desember, klukkan 20 og milli jóla og nýárs mánudaginn 28. og 29. desember klukkan 20. Multiverse kvartett trommu­ leikarans Scotts McLemore frum­ flytur fjórar nýjar tónsmíðar eftir Scott þriðjudaginn 22. desember. Auk Scotts skipa k vartettinn gítarleikararnir Hilmar Jensson og Andrés Þór og franski bassa­ leikarinn Nicolas Moreaux. Hljóm­ diskurinn Multiverse kom út árið 2018 og hlaut þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Efnið sem kvartettinn f lytur nú verður hljóðritað fyrir Multiverse II útgáfu sem er væntanleg á næsta ári. Enginn standard spuni er fram­ reiddur af munnhörpuleikaranum Þorleifi Gauki Davíðssyni og pían­ istanum Davíð Þór Jónssyni verður á dagskrá milli jóla og nýárs. Fjórði viðburðurinn er Fagra ver­ öld Sunnu Gunnlaugs. Fyrir átján árum fékk Sunna Kristjönu Stefáns­ dóttur til liðs við sig er þær hljóðrit­ uðu diskinn Fagra veröld. Nú dusta þær rykið af þessum tónsmíðum Sunnu við texta eftir hana sjálfa, Tómas Guðmundsson og Sofíu Thorarensen. Auk þeirra Sunnu og Kristjönu koma fram kontrabassa­ leikarinn Leifur Gunnarsson og trommuleikarinn Scott McLemore. Jazz í Salnum streymir að þessu sinni fram Sunna Gunnlaugsdóttir verður á tónleikum. MYND/AÐSEND M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31Þ R I Ð J U D A G U R 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.