Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.12.2020, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 22.12.2020, Qupperneq 10
Ljóðabókin Vonin er tilfinningabomba! Öll sölulaun af bókinni renna óskipt til hjartadeildar Landspítalans Allur ágóði a f sölu bókar innar Vonin rennur til h jartadeildar Landspítala. Anna Lára M öller Vonin Anna Lára M öller A nna L ára M öller Vonin Kapa-01.indd All Pages 08/09/2020 10:37:50 NORÐURÞING Meirihluti sveitar­ stjórnar í Norðurþingi er ekki á einu máli um uppsetningu könn­ unarmasturs fyrir vindorkuver við Húsavíkurfjall. Á fundi byggðar­ ráðs á fimmtudag lagðist Kolbrún Ada Gunnarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna og forseti sveitarstjórnar, gegn því að gengið yrði frá sam­ komulagi við fyrirtækið Qair Ice­ land. Vinstri græn eru í meirihlutasam­ starfi við Sjálfstæðisflokk og Sam­ fylkingu. Fulltrúar minnihlutans voru einnig samþykkir málinu, þannig að Vinstri græn voru ein á móti. Kolbrún neitar því að málið sé mikið þrætuepli innan meirihluta­ samstarfsins. „Við getum stundum verið sam­ mála um að vera ósammála,“ segir hún. „Það var líka skilningur fólks á fundinum að aðeins væri verið að gefa leyfi fyrir rannsóknum en ekki uppsetningu vindorkugarðs.“ Fréttablaðið greindi frá því fyrir ári að franska orkufyrirtækið Qair, þá Quadran, hefði fengið stöðu­ leyfi fyrir rannsóknum á Hólaheiði í Núpasveit. Í samtali við Tryggva Þór Herbertsson, sem sér um fjár­ festingar fyrir Qair, kom fram að verið væri að skoða staðsetningar­ kosti en ekkert væri fast í hendi. Mastrið sem nú á að reisa, norð­ austan við Húsavíkurfjall, er vita­ skuld mun nær byggðinni á Húsavík en Hólaheiði, þótt það muni ekki sjást frá bænum. Kolbrún segir að Vinstri græn leggist ekki gegn vindorkuverum sem slíkum heldur staðsetningunni. „Þegar ég fór að skoða fyrirhug­ aða staðsetningu, umfang og fleira sá ég að þetta var mjög nálægt úti­ vistarleiðum, þar sem fólk gengur og hjólar,“ segir hún. „Ég gat ekki kosið með því að heimila þetta rannsóknarmastur vitandi að ég myndi ekki samþykkja að setja upp vindmyllugarð á þessum stað.“ Búist er við því að mastrinu verði komið fyrir strax á næsta ári. Kol­ brún bendir á að þó að það muni ekki sjást úr bænum breyti það ásýnd útivistarsvæðisins og muni sjást vel þegar keyrt er út úr bænum. Útivistarsvæðið er í uppbyggingu og mikið notað, til dæmis af hjól­ reiðaklúbbnum, og skotsvæðið er ekki langt undan. Þá telur Kolbrún orkuþörfina ekki vera mikla, raskið töluvert og ávinninginn lítinn fyrir byggðar­ lagið, hvort sem er fjárhagslega séð eða atvinnulega. „Ég get ekki séð að við fáum mikið fyrir þetta,“ segir hún og bendir á að rafmagnsmannvirki séu undan­ þegin fasteignaskatti. Vissulega þurfi mannskap við að reisa vind­ myllurnar en starfsemin kalli ekki á mikinn mannafla til lengri tíma. Þar sem um tímabundið rann­ sóknarverkefni er að ræða þurfti ekki umhverfismat, en það mun þurfa ef ákveðið verður að setja upp vindorkugarð. kristinnhaukur@frettabladid.is Telur vindorkumastur ógna útivistarsvæðinu Vinstri græn kusu gegn samstarfsflokkum sínum í meirihluta byggðarráðs Norðurþings varðandi rannsóknarmastur við Húsavíkurfjall. Fulltrúi VG segir mastrið raska ásýnd og skila litlu. Þess utan sé orkuþörfin ekki mikil. Húsavíkurfjall og nágrenni er mikið útivistarsvæði. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Ég gat ekki kosið með því að heimila þetta rannsóknarmastur vitandi að ég myndi ekki samþykkja að setja upp vindmyllugarð á þessum stað. Kolbrún Ada Gunnarsdóttir, forseti sveitar- stjórnar ÁRBORG Á bæjarráðsfundi Árborgar á dögunum var rædd sú hugmynd að brúa bil milli leikskólabarna og aldraðra í sveitarfélaginu. Málið er nú hjá fræðslunefnd sveitarfélags­ ins. Bæjarstjóri Árborgar, Gísli Hall­ dór Halldórsson, virtist hrifinn af hugmyndinni þegar Fréttablaðið ræddi við hann. „Ég held að þetta væri virkilega hollt fyrir samfélagið og börnin að reyna að finna einhvern f löt á þessu. Það er ekki augljós kostur í stöðunni núna, við erum að byggja nýjan sex deilda leikskóla sem er ekki nálægur eldri borgara heimili en þetta er þörf og góð umræða. Þetta er önnur leið í mótun barna að einstaklingum,“ segir Gísli. Bergþóra Haralds Eiðsdóttir kynnti hugmyndina fyrir bæjar­ ráðinu. Þar er meðal annars stungið upp á einkareknum leikskóla með tilheyrandi starfsfólki í íbúðar­ kjarna aldraðra með sameigin­ legum matsal. Báðir hópar gætu nýtt svæðið og samskiptin milli hópanna myndu aukast. „Ég er sannfærður um að þetta gæti með réttu formi auðgað mál­ getu barna og veitt þeim breið­ ari innsýn í venjulegt líf. Leik­ skólastarfsmenn eru að vinna frábært starf eftir bestu þekkingu og að gera góða þegna úr börn­ unum okkar en það er svolítið í uppsettu umhverfi. Með þessu væri hægt að skapa stemmingu eins og var á gömlu f jölskylduheimili og gæti það verið ákveðinn fjár­ sjóður,“ segir Gísli og tekur undir að þetta gæti brotið upp daglegt líf eldri borgara. „Já, ég er sannfærður um að þeir eldri borgarar sem myndu taka þátt í þessu myndu líka fá heilmikinn ávinning úr þessu verkefni. Það eru mikil verðmæti í því að þau fái að hafa aukin persónuleg og mannleg samskipti.“ Sífellt f leiri f lytja á Selfoss, sér­ staklega barnaf jölskyldur. Það eykur þörfina fyrir leikskólapláss. „Það hefur mikil fólksfjölgun átt sér stað síðustu ár, hátt í 25 prósent á þremur árum og það er ekkert að hægjast á því. Ef við myndum gefa okkur nokkur ár í að móta þessa hugmynd myndum við örugglega geta komið þessu í framkvæmd ef haldið verður rétt á spöðunum,“ segir bæjarstjórinn. – kpt Mikill ávinningur fyrir börn og eldri borgarana Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar. dot.is DÓT Gæði á góðu verðiKíktu á úrvalið Sendum um land allt Áform um friðlýsingu Umhverfisstofnun, í samstarfi við land­ eigendur og sveitarfélagið Borgar byggð, kynnir áform um friðlýsingu Borgar vogs í Borgarbyggð sem friðlands í samræmi við 49. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Áformin eru kynnt í samræmi við málsmeðferðarreglur 2. og 3. mgr. 36. gr. náttúruverndarlaga, sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna en gert er ráð fyrir að svæði sem ekki eru á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skuli kynnt sérstaklega. Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 21. febrúar 2021. Frekari upplýsingar er að finna á ust.is. Athugasemdum við áformin má skila á vef Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.