Fréttablaðið - 22.12.2020, Síða 24

Fréttablaðið - 22.12.2020, Síða 24
Fyrir mér eru það hefðirnar sem skapa hinn sanna jólaanda, eins og að pakka inn síðustu pökkunum á aðfangadag, finna matarilminn fylla húsið, fara í sturtu klukkan fjögur og setjast inn í stofu uppábúin klukkan sex til að hlusta á aftansöng í útvarp­ inu,“ segir Hildur Þórðardóttir hjá Rúmföt.is. Ein jólavenja er kannski ekki jafn sýnileg en alveg jafn mikilvæg og það er að skipta á rúminu á aðfangadagsmorgun og setja það allra, allra besta á. „Jólanóttin er eitthvað svo heilög og óspillt, tákn nýs lífs og nýs upphafs og hluti af því er að sofna í hreinum og straujuðum sængurfötum.“ Sængurkonfekt við allra hæfi Hildur segir gaman að fá fólk í búðina sem er að kaupa sér ný sparisængurföt. „Þá vill það oftast það fínasta sem er að sjálfsögðu silkidamask­ ið. Fyrst ber að nefna rúmfötin frá ítalska lúxusmerkinu Quagliotti. Það hefur starfað frá árinu 1933 og er eitt af fáum fjölskyldufyrirtækj­ um eftir í bransanum. Ef sængur­ föt væru konfekt þá væru þau frá súkkulaðimeistara sem hand­ gerir hvern einasta mola og leggur sálina í verkið. Verin eru hvert öðru fallegri, bæði úr silkidamaski sem og úr dásamlegri silkiblöndu. Maður fær alveg hamingjutilfinn­ ingu í fingurna bara við að snerta efnin og þeir sem þekkja Quagli­ otti vilja ekkert annað.“ Þá má nefna Bauer­sængurfötin sem væru þá eins og framúrstefnu­ legir konfektmolar. „Röndótta silkidamaskið er með breiðari röndum en venjulega, sem gerir þau nútímalegri og meira að segja eru til svört og dökkgrá röndótt fyrir þá sem vilja sofa með mjög dökkt. En auðvitað eru líka til bleik, blá, grá, hvít og beige. Þá komu líka svaka flott rúmföt með gylltu eða silfruðu mynstri, sem smellpassar inn í áramótatískuna,“ segir Hildur. Sængurverin eru lokuð með vönduðum rennilás og þar sem Bauer kemur frá Þýskalandi má treysta því að hann endist vel. „Bauer er fyrir þá sem vilja vera með töff rúmföt en ekki endilega svo dýr.“ Skrautsaumað silkidamask Verin frá Rúmföt.is eru svo klass­ ísku molarnir. „Þau eru saumuð úr ítölsku lúxus silkidamaski og með skraut­ saumi á koddaverunum sem er eingöngu gert hjá fínustu merkj­ unum. Það er eitthvað eftir af þeim en Margrét mun halda áfram að sauma á næsta ári, svo allir geta fengið fín rúmföt fyrir næstu jól. Miðað við hvað þau runnu hratt út nú í nóvember mæli ég með að fólk komi tímanlega, jafnvel bara strax í vor. Þá er líka miklu meira svig­ rúm til að sérsauma óvenjulegar stærðir,“ upplýsir Hildur. „Bómullarsatínverin okkar og venjulega damaskið væru svo eins og stóru konfektkassarnir. Margir ólíkir molar og allir eiga sína uppáhalds. Þau koma bæði elegant einlit, sem og með alls kyns mynstrum og henta alls kyns pyngjum, bæði þungum og léttum.“ Dásamlegar viðtökur á árinu Leiðarljós hjá Rúmföt.is er að veita góða þjónustu og að viðskiptavinir séu ánægðir. „Við fengum til dæmis fyrir­ spurn í dag um hvort of seint væri að panta Quagliotti sængurver því hjónin langaði svo að fá sér ný fyrir jólin. Af því ég var ekki viss um að það kæmist í tæka tíð með póst­ inum, keyrði ég það heim til þeirra þegar ég var sjálf á heimleið,“ segir Hildur í jólaskapi. „Allir geta því eignast nýtt á rúmið fyrir jólin, þótt ég lofi ekki heimkeyrslu í hvert sinn. Við erum með opið í dag þriðjudag og á morgun Þorláksmessu frá klukkan 12 til 18. Við erum lítið fjölskyldu­ fyrirtæki svo það er lokað milli jóla og nýárs. Að lokum viljum við þakka dásamlegar viðtökur á árinu og óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum yndislegra jóla og gleðilegs nýs árs.“ Rúmföt.is er á Nýbýlavegi 28 í Kópavogi. Sími 565 1025. Opið alla virka daga frá klukkan 11 til 18 og á laugardögum frá klukkan 11 til 16. Sjá nánar á rumfot.is. Framhald af forsíðu ➛ Áprentuð mynstur fást við allra hæfi í Rúmföt.is og á góðu verði, frá 10.900 krónum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARIRöndótt silkidamask frá Bauer er með breiðari röndum en hefðbundið er. Góð þjónusta er í öndvegi hjá Rúmföt.is og hefur Hildur meira að segja sjálf keyrt rúmföt heim til viðskiptavina. Sængurfatnaður utan um tvöfaldar sængur fæst nú í heillandi úrvali.Damask í mjúkum litum fyrir góðan nætursvefn, líka fyrir tvöfaldar sængur. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.