Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.12.2020, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 22.12.2020, Qupperneq 28
Söfnuðir Reykjavíkurprófastsdæmis vestra. Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls nýárs og bjóðum ykkur að fylgjast með dagskrá kirknanna yfir hátíðirnar á heimasíðum okkar og á samfélagsmiðlum. Prestar, starfsfólk og sóknarnefndir Áskirkju, Bústaðakirkju, Dómkirkjunnar, Grensáskirkju, Hallgrímskirkju, Háteigskirkju, Langholtskirkju, Laugarneskirkju, Neskirkju og Seltjarnarneskirkju, Sérþjónustunnar og safnaða Íslendinga erlendis. ©Jóhann Ludwig Torfason / Hjarta Reykjavíkur Jólasögur eru gjarnan sagðar í skólum og á jólafundum félagasamtaka en jólasög- urnar í ár eru áþreifanlegar. Þær sýna kærleika og umhyggju fólks og birtast í hjálpsemi og gjöfum til náungans. Jól í skókassa er alþjóð- legt verkefni sem felst í því að fá börn og fullorðna til að gleðja börn sem búa við fátækt, sjúkdóma eða aðra erfiðleika og gefa þeim jóla- gjafir. Ungt fólk innan KFUM & KFUK hóf þátttöku í þessu verkefni fyrir 16 árum og alltaf fjölgar þeim sem gefa börnum í Úkraínu gjafir fyrir jólin. Aldrei hafa fleiri jóla- pakkar verið settir undir jólatré Mæðrastyrksnefndar í Kringlunni í Reykjavík en á þessu ári. Kona ein segir frá kærleiksverki þegar önnur kona greiddi vörurnar fyrir hana í Bónus á meðan hún skaust frá inn- kaupakörfunni við kassann til að ná í það sem hún hafði gleymt að setja í körfuna. Þrjár kjarnakonur í Ástjarnarsókn í Hafnarfirði settu á fót Kærleiksmarkað í kirkjunni sinni í Hafnarfirði þar sem fólk getur fengið föt, húsmuni, barna- vörur, mat og fleira án endurgjalds. Samkennd og samhugur Eftir náttúruhamfarirnar á Seyðis- firði voru margar sögur sagðar. „Dæmi eru um að verslunareig- endur þar (á Héraði) hafi gefið börnum ýmiss konar leikföng til þess að stytta þeim stundir á meðan þau eru fjarri heimilum sínum,“ segir í einni fréttinni og fram hefur komið að margir hafi opnað hús sín svo enginn þurfti að gista í fjöldahjálparstöðinni á Egilsstöðum. Samkennd og samhugur myndast með þjóðinni þegar svona atburðir verða enda þekkja margir af eigin raun að náttúran getur farið hamförum. Í viðtölum við Seyðfirðinga kemur orðið og hugtakið þakklæti oft fram. Þakklæti fyrir það sem veitt er og þakklæti fyrir að enginn skyldi slasast eða deyja í þessum hamförum. Jólin boða von Í heimi þar sem allt getur gerst og allt getur farið á annan veg en áætlað er, er gott að vita af góðu fólki sem sýnir kærleika og umhyggju í verki. Það er gott að búa í samfélagi þar sem samheldni ríkir. Það er fallegt, gott og gaman að gera jólalegt í kringum sig en miklu betra að finna fögnuð jólanna innra með sér. Hugsa um þau sem okkur þykir vænt um og hugsa og leggja af mörkum til þeirra sem búa við erfiðar eða óviðunandi aðstæður. Boðskapur jólanna kemur fram í sex orðum: „Yður er í dag frelsari fæddur.“ Bæn mín er sú að þú, lesandi góður, fáir reynt þann boðskap í lífi þínu og fáir að finna og trúa að þú sért ekki ein/einn á ferð á vegi lífsins. Ég óska þér gleðilegra jóla og far- sældar á nýju ári. Agnes M. Sigurðardóttir Hátíð fer að höndum ein Jólin 2020 eru ekki hefðbundin miðað við fyrri ár. Heimsfaraldurinn hefur breytt daglegu lífi fólks og hefðir jólanna verða margar hverjar að bíða betri tíma. Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 2 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RGUÐSÞJÓNUSTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.